Borgin - 01.11.1932, Síða 14

Borgin - 01.11.1932, Síða 14
andi ásökun fyrir að vera til- vonandi mrs. Jackson. Eftir þennan málsverð valdi lnin eintalsaðferðina við Indverj- ann. Jón .Takobsson tók í fyrstu naumast eftir þessari ástríðu Ástu, hann hafði of mikið að ífera og fíngerðar hugarhrær- ingar annara komust ekki í gegn um gufuhvolf ákafa hans. Hann botnaði ekkert í kappi því, sem Ásta lagði á að brúðkaup þeirra hrottför drægist, en Ijet góð- látlega undan henni eins og eft- irlætis harni. En þegar hann tvi- vegis var húinn að komast að ökuferðum Indverjans og Ástu úl úr borgimii, án þess að hann væri látinn vita, eða undir ó- sönnu yfirskyni, sagði liann eitt amerískl stopp! Á morgun gift- um við okkur og förum vestur. Ásta var viðhúin árásinni. Bjálkakofi og svínaflokkar höfðu að undanförnu átt i skærum við páhnalunda hennar og indversk musteri. Hún leit alt í kring um Jón Jakobsson og svaraði með indverskri ró: Jeg get elcki, mr. .lackson. Lífsviðhorf okkar eru svo ólik að lótus hamingju okk- ar mundi óðara ski-ælna. Jón Jakobsson hló heitan lilát- ur. Við ræktum ekki lótus held- ur svín, skilurðu ? Það eru þau, sem við fáum dollarana fyrir, láttu Indverjaaulann rækta lótus og sjáðu hvað hann græðir á því. Lífsviðhorf okkar? Erum við ekki alin upp í sömu sveitinni? Fyrir vestan sjerð þú bara grísi i staðinn fyrir lömb. Þessi barsmíð hans stælti hara ásetning Ástu. Hún fann að þessi maður var bara einn stór munn- ur, sem altaf hló og hrópaði orð eins og svín og penihgar. Það vantaði djúpsæi og dulræni i hann. Hugur hennar þuldi upp frásagnir Indverjans um spiki sterkra sálna og sjálfræði þeirra gagnvart efninu. Ákvörðun mín er óhaggai. leg, mr. Jackson, jeg get ekki gifst þjer. Bull, Ásta, til þess ertu hing- að komin. Þú hefir í svipinn ekki þolað þessar snöggu hreytingar, að koma að heiman mitt út i lieimshringiðuna, svo hefir þú farið að leggja eyrun við þvætt- ingi, sem þessi indverski letingi hefir verið að segja þjer. Þú hef- ir truflast um stund, það fer af þjer við sjóferðina yfir Atlants- liafið og svo kemur þú í nýjan heim, þar sem hlegið er að heila- brotum en starfað, og menn verða ríkir. Ákefð hans var Ástu eins og íjarlægur gnýr, sem manni kem- ur ekkert við. Hún var óbifan- leg. 3. Jón Jakohsson, sein kominn var alla leið vestan frá Ameríku til að sækja konuefnið sitt ofan úr sveit á Islandi, sat í anddyri gistihússins yfir whiskyglasi, daginn eftir þessa árangurslausu ráðstefnu. Ilann var alt annað 12

x

Borgin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Borgin
https://timarit.is/publication/691

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.