Frjáls verslun - 01.05.2002, Side 6
RITSTJÓRNARGREIN
Hámenntaðir og hugrakkir
Tii er gömul tugga um að langskólanám dragi
úr þörf manna til að verða athafnamenn, eða
frumkvöðlar eins og þeir eru oftast nefndir
núna í viðskiptaritum, og að flestir viðskipta-
fræðingar séu í vinnu hjá öðrum. Fylgir hún þá
gjarnan með gamansagan um unga mennt-
skælinginn sem sagði við kennara sinn að hann
ætlaði að hætta í skóla til að fara út í eigin
rekstur. Kennarinn spurði á móti hveiju þetta
sætti og fékk það svar piltsins að hann yrði að
byija strax í eigin rekstri svo skólasystkini hans
fengju einhvers staðar vinnu þegar þau kæmu
mörgum árum síðar sprenglærð út á vinnu-
markaðinn.
Vissulega er alltaf ákveðinn ljómi yfir sögunum um vinnu-
þjarkinn sem fórnar langskólanámi og byijar atvinnurekstur í
litlum skúr eða á lítilli trillu einhvers staðar og hefst til vegs og
virðingar sem djarfur og kappsfullur athafnamaður með
hundruð manna í vinnu. En tímarnir breytast og mennirnir
með! Þeim Jjölgar athaíhamönnunum sem eru langskóla-
gengnir. Fæstir byija þeir núna smátt í litlum skúr heldur
sýnist algengast að þeir yfirtaki rótgróin stórfyrirtæki í sam-
vinnu við fjárfesta og banka. Þeir eru engu að síður svonefndir
frumkvöðlar, athafnamenn sem hafa frumkvæði og kjark, en
hvorugt verður víst kennt í skólum.
aður frá Northwestern háskólanum í Bandaríkj-
unum, keypti ásamt Sigfúsi Sigfússyni, athafna-
manni í Heklu, fyrirtækin Vífilfefl og Sól-Víking
fyrir rúmu einu og hálfu ári. Kaupin voru gerð í
samvinnu við Kaupþing.
Þá má geta þess að hinn þekkti athaiha-
maður að norðan, Þorsteinn Már Baldvinsson,
sem er skipaverkfræðingur frá Noregi og for-
stjóri Samheija, keypti ásamt frændum sínum,
þeim bræðrum Þorsteini og Kristjáni Vilhelms-
sonum, gamlan ryðkláf fyrir nær tuttugu árum
og þau kaup urðu grunnurinn að þeim Sam-
heija sem við þekkjum svo vel. Björgólfur Thor
Björgólfsson, stofnandi bjórverksmiðjunnar Bravo
International í Rússlandi og stjórnarformaður Pharmaco, er
aðeins 35 ára að aldri og hefur haslað sér völl í alþjóðlegum við-
skiptum með þeim hætti að athygfl vekur. Hann er menntaður
í íjármálafræði frá New York University í Bandaríkjunum. Einn
framsæknasti og þekktasti maður viðskiptalífsins, Jón Asgeir
Jóhannesson, stjórnarformaður Baugs, er hins vegar ekki
langskólagenginn þótt allar þær fléttur í viðskiptum, sem hann
hefur farið í gegnum, séu á við marga meistaragráðuna. Jón
hætti í skóla eftir stúdentspróf úr Verslunarskólanum og stofii-
aði fyrirtækið Bónus með föður sínum, Jóhannesi Jónssyni, í
litlu afdrepi við Skútuvoginn. Þá sögu þekkja aflir.
Stórfyrirtæki yfirtekin Undanfarna átján mánuði hafa nokkrir
ungir langskólagengnir menn keypt þekkt stórfyrirtæki.
Nýjasta dæmið eru kaup Arna Haukssonar og Hallbjörns
Karlssonar ásamt nokkrum ijárfestum á Húsasmiðjunni.
Kaupin eru ekki aðeins gerð með aðstoð Búnaðarbankans
heldur að frumkvæði hans. Þeir Árni og Hallbjörn eru verk-
fræðingar og með framhaldsnám frá Stanford háskólanum í
Bandaríkjunum. Skömmu áður hafði Hreggviður Jónsson,
sem er útskrifaður frá Harvard háskólanum í Bandaríkjunum,
keypt bróðurpartinn í Pharmaco Islandi. Hreggviður hætd
sem kunnugt er sem forstjóri Norðurljósa í vetur og ákvað að
fara út í eigin rekstur. Þorsteinn M. Jónsson, sem er útskrif-
Frá fræðum til athafna Athafnamennska er einstakflngs-
bundin. Sumir hafa hana í sér og aðrir ekki. Það einkennir
flesta athafnamenn að þeir eru hugaðir, bjartsýnir, hugmynda-
ríkir, snjaflir, útsjónarsamir og hafa mikla þörf fyrir sjálfstæði.
Þeir eru hreyfiafl og láta hlutina gerast. Utgeislun þeirra
smitar út frá sér og hvetur aðra til dáða. Þeir skapa störf fyrir
aðra og þeir geta heldur ekki án annarra verið til að ná mark-
miðum sínum. Það er hins vegar tímanna tákn að hún eigi ekki
lengur við gamla kflsjan um að langskólagengnir viðskipta- og
verldræðingar séu eingöngu í vinnu hjá öðrum. Það er ekki
lengur haf og himinn á mifli fræða og athafna.
Jón G. Hanksson
JPi rrm
MTi /1 /ríTt iLli
Stofiiuð 1939
Sérrit um viðskipta-, efnahags- og atvinnumál - 64. ár
Sjöfn Guðrútt Helga Geir Óla/sson Hallgrímur
Sigurgeirsdóttir Sigurðardóttir Ijósmyndari Egilsson
auglýsingastjóri blaðamaður útlitshönnuður
RTTSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR: Jón G. Hauksson
RTTSTJÓRN, AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA:
AUGLÝSINGASTJÓRI: Sjöfn Sigurgeirsdóttir
BLAÐAMAÐUR: Guðrún Helga Sigurðardóttir
LJÓSMYNDARI: Geir Ólafsson
Borgartúni 23,105 Reykjavík, sírai: 512 7575, fax: 561 8646, netfang: fv@heimur.is
ÁSKRIITARVERÐ: kr 7.700.-10% afsláttur ef greitt er með kreditkorti.
LAUSASÖLUVERÐ: 799 kr.
UMBROT: Hallgrimur Egilsson
ÚTGEFANDI: Heimur hf.
M heimur
DREIHNG: Heimurhf., sími 512 7575
FILMUVINNA, PRENTUN OG BÓKBAND: Gutenberghf.
UTGREININGAR; Heimur hf. - Öll réttindi áskilin varðandi efni og myndir
ISSN 1017-3544
6