Frjáls verslun - 01.05.2002, Blaðsíða 44
Gólflagnir ehf. hafa nýlega skipt um eigendur en Flotun ehf. ásamt
nokkrum fyrri starfsmönnum Gólflagna keyptu fyrirtækið af
Eignarhaldsfélagi Hörpu hf. Gólflagnir ehf. eru 12 ára gamalt
fyrirtæki. Fyrirtækið hefur verið í fararbroddi hvað varðar nýjungar í
fjölliðugólfefnum en þau henta sérlega vel fyrir matvælaiðnaðinn.
„Gólflagnir hófu mikið brautryðjendastarf í lögn sementsbundinna flot-
efna fyrir um það bil 10 árum en eitt fyrsta verkefnið var flotun allra gólfa
í Ráðhúsi Reykjavlkur sem tókst mjög vel," segir Rafn Valur Alfreðsson,
framkvæmdastjóri Gólflagna ehf. „Allar götur síðan hefur fyrirtækið inn-
leitt nýjar aðferðir 1 gólflögnum, aðferðir sem aukið hafa gæði gólfa og
stytt byggingartíma og léttvinnu iðnaðarmanna. Gólflagnir hafa frá upp-
hafi verið umboðsaðilar Optiroc sem framleiðir ABS flotefni, en þau eru
þekkt um allan heim fyrir gæði og mikla markaðshlutdeild."
Skýr stefna fyrirtækisins
„Það hafa þegar átt sér stað miklar breytingar í rekstri fyrirtækisins en
því var mörkuð skýr stefna, starfsmannamál og innkaupastefna var
endurskoðuð og rekstrinum skipt upp í þrjú ábyrgðarsvið. Þau eru
iðnaðargólfefni, flotun og efnissala. f apríl var einnig opnuð ný verslun,
Múrbúðin, sem selur allt sem þarf til múrviðgerða. Rekstur fyrirtækis-
ins gengur mjög vel og útlit er fyrir metár
í rekstrartekjum en fyrirtækið hefur alla
tíð verið rekið með hagnaði og markvisst
hefur verið unnið með vöruþróun innan
fyrirtækisins," segir Rafn. „Vöruþróuninni
hefur vaxið fiskur um hrygg undanfama
fimm mánuði þar sem henni hefur verið
sinnt sérstaklega enda erum við í sumum
tilfellum að bjóða algerlega nýja vörulínu í
stað þeirrar sem fyrir var en endur-
bættar vörur í öðrum. Meðal nýjunga má
nefna Topp Steritex gólf- og veggefni sem hindra sveppa- og bakteríu-
gróður, til dæmis í hreinlætisaðstöðu íþróttamannvirkja. Einnig mætti
nefna Topp 4000 Compact gólfefnið sem er endurbætt útgáfa Topp
4000 sem hefur verið okkar vinsælasta söluvara um árabil. Topp
Compact er hagkvæmara í vinnslu sökum nýrrar tækni við ásetningu
efnisins og nýtist vel á stærri gólfflötum en það er einnig þéttara og
hefur betri eðliseiginleika samkvæmt niðurstöðum rannsókna sem
gerðar voru fyrir Gólflagnir af óháðri rannsóknastofu."
Epoxy Terrazo
Fyrirtækið bindur og miklar vonir við nýtt fúgulaust gólfefni fyrir mat-
vælaiðnaðinn en verið er að Ijúka prófunum fyrir það í samvinnu við
erlend fyrirtæki. Þetta gólfefni, sem verið hefur á markaði í Danmörku
í hálft annað ár, byggist á samsetningu nýrra bindiefna og leysir það
ýmis vandamál tengd ásetningu gólfefna á raka steypu.
Gólflagnir hafa nýlega hafið markaðssetningu á Epoxy Terrazo gólf-
efnum sem hafa verið afar vinsæl erlendis vegna endingar og glæsi-
legs útlits. Þessi gólfefni er hægt að leggja í 7 mm þunnu lagi sem
ekki er mögulegt í gömlu sements-terrazo gólflögnunum. Hönnuðir
geta skoðað liti og litasamsetningar í gegnum forrit sem leyfir notand-
anum að sjá mögulegar samsetningar á
bindi- og fylliefnum.
Súðarvogur 14 • 104 Reykjavík
Sími: 564 1740 • Fax: 554 1769
Netfang: golf@golflagnir.is
hiimimvvijiiiuh
Markaðir erlendis
Síðustu árin hafa Gólflagnir selt fjölliðu-
gólfefni til nokkurra landa, s.s. Færeyja,
Kanada, Bandaríkjanna og ísrael.
Nokkur verkefni eru f vinnslu á þessu ári
og má nefna m.a. gólf í nýrri lyfjaverk-
smiðju Balkanpharma í Búlgaríu en það
verkefni var boðið út í nokkrum Evrópu-
44