Frjáls verslun - 01.05.2002, Qupperneq 51
HLUTABRÉFAMARKflÐURINN
Hreggviður Jónsson. End- Bogi Þór Siguroddsson, frá-
anlega verður gengið frá farandi forstjóri Húsasmiðj-
kaupum hans á Pharmaco unnar. Vissi ekkert hvaðan
íslandi í byrjun júlí, á sig stóð veðrið fyrr en allt
var um garð gengið.
Þorsteinn Már Baldvins- Björgólfur Jóhannsson,
son, forstjóri Samherja. forstjóri Síldarvinnslunnar,
Kraftmikill og ótrúlega telst einn af prímusmótor-
framsækinn á hlutabréfa- unum í yfirtökunni á SR-
markaðnum. mjöli.
sem atvinnustjórnandi - í einhveiju stórfyrirtæki. Hann mun hins
vegar hafa tekið þá ákvörðun að fara í eitthvað sjálfur, verða frum-
kvöðull. Tilkynnt var um kaupin föstudaginn 17. maí sl. Kaup-
verðið hefur ekki verið gefið upp en ætla má að það liggi á bilinu
2,5 til 3,0 milljarðar. Gengið verður frá kaupunum 1. júlí næst-
komandi. Hvaða ijárfestar standa með Hreggviði hefur ekki verið
gefið upp, en þeir munu vera örfáir. Eins og í tilviki Húsasmiðj-
unnar var um mikinn vilja af hálfu seljenda, þ.e. eigenda
Pharmaco, að selja innanlandsdeildina sem nýlega varð sjálfstætt
fyrirtæki, og kom Búnaðarbankinn viðskiptunum á. Halda má þvi
fram að eigendur Pharmaco, með þá Björgólf Guðmundsson,
Björgólfur Thor Björgólfsson og Sindra Sindrason í fararbroddi,
hafi verið komnir í þá erfiðu aðstöðu að vera stór lyfjaframleið-
andi erlendis (Balkanphai'ma), og dreifa á sama tíma hér heima
fyrir erlend ljdjafyrirtæki sem þeir voru að keppa við erlendis.
Núna verður Pharmaco því eingöngu í lyijaframleiðslu erlendis.
Þess má geta að Hreggviður er 38 ára og nam viðskiptafræðin í
hinum þekkta Harvard háskóla í Bandaríkjunum.
Yfirtakan á SR-mjÖN Yfirtaka Síldarvinnslunnar og Samheija á
SR-mjöli var tilkynnt mánudagsmorguninn 27. maí. sl., efúr kosn-
ingahelgina, og þar sýnist mikil flétta hafa verið í gangi þar sem
Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samheija, og Björgólfur
Jóhannsson, forsljóri Síldarvinnslunnar, hafa greinilega verið í
essinu sínu. Þennan mánudagsmorgun keyptu fyrirtæki þeirra
32,1% hlut í SR-mjöli af Sundagörðum, Bergi-Hugin í Vestmanna-
eyjum og Magnúsi Kristinssyni í Vestmannaeyjum, auk þess sem
nokkrir lifeyrissjóðir seldu hluti sína. Fjárhæðin í þessum við-
skiptum nemur tæpum 2 milljörðum. Hlutirnir skiptast þannig að
Síldarvinnslan keypti 24,2% og Samheiji 7,9%. Fyrir áttu þau sam-
tals 9,8% hlut þannig að hlutur þeirra er núna orðinn um 42% í SR-
mjöli. Þess má geta að Samheiji og tengd fyrirtæki, eins og Snæ-
fugl og Kaldbakur, eiga um 41% í Síldarvinnslunni og stýra henni.
Miklar sögur hafa verið í gangi um yfirtökuna í SR-mjöli og
kom hún flatt upp á menn, meðal annars sþórnarformanninn,
Benedikt Sveinsson. Eins og í tilviki Húsasmiðjunnar og
Pharmaco var kominn fram vilji hjá eigendum til að selja og mun
Fjárfestingafélagið Straumur, með framkvæmdastjórann, Þórð
Má Jóhannsson, í fararbroddi, hafa leikið afar stórt hlutverk í að
koma viðskiptunum á og annast hugmyndavinnuna. Fullyrt er að
a.m.k. tveir mánuðir séu síðan menn voru farnir að fara á Jjör-
urnar hverjir \4ð aðra og verður það að teljast með ólíkindum að
ekkert skyldi hafa spurst út um þessar þreifingar, ekki síst þar
sem býsna margir komu að málinu, meðal annars lífeyrissjóð-
irnir og stjórnir þeirra - sem og nokkur Jjármálafyrirtæki. Það
vekur líka athygli að stjórn Síldarvinnslunnar fékk ekkert að vita
af kaupunum fyrr en mánudagsmorguninn 27. maí, þegar þau
voru þá í raun afstaðin. Augljóst er að þeir Þorsteinn Már Bald-
vinsson og Björgólfur Jóhannsson stýra núna flota Samheija,
Síldarvinnslunnar og SR-mjöls inn á verksmiðjur SR-mjöls. Þeir
eru núna í forsvari fyrir þessu öllu. Það verður sameiginleg flota-
stýring og framleiðslustýring þessara þriggja fyrirtækja, auk þess
sem þeir félagar hafa tekið afdráttarlaust skref inn á markað
loðnuverksmiðja, en búist er við að þeim muni fækka á næstu
árum. Líklegt er að SR-mjöl verði áfram rekið í núverandi mynd
sem sjálfstætt fyrirtæki fremur en að það verði tekið inn í Síldar-
vinnsluna eða Samherja. Hvað sem sagt hefur verið um hluta-
bréfamarkaðinn undanfarin tvö ár verður því ekki neitað að hann
hefúr einkennst af lifi, flöri og leiftursóknum að undanförnu. Það
virðast vera nógir peningar á markaðnum. B3
51