Frjáls verslun - 01.05.2002, Blaðsíða 92
Fjörkálfurinn Léttuín
Förum í vín
Við fórum núna í vínheimsreisu og kynnum okkur sögu nokkurra pekktra léttvína frá fjórum
/ /
löndum; Italíu, Astralíu, Frakklandi og Chile. Ferðin er hafin.
Myndir: Geir Ólafsson
g§pASmiOBA\f:
Ítalía
San Angelo Pinot Grigio 2001
Castello Banfi 12,5%
San Angelo Pinot Grigio er eitt
af þessura nýju glæsilegu hvítu
vínum frá Italíu. Þessi þrúga Pinot
Grigio er sífellt að verða vinsælli í
hvítvínsframleiðslu á Italíu. Banfi
er hér með þurrt ávaxtaríkt vín
sem er enn ein sönnunin á gæðum
italskra hvítvína í dag. 33
1
CHARDONNAY
Ástralía
Rosemount Estate Shouu
Reserue Chardonnay 1999
Hunter Ualley 13,5%
Show Reserve er löngu orðin
heimsfræg gæðalína frá þess-
um frábæra framleiðanda í Ástr-
alíu. Rosemount Estate er orðið
mest selda ástralska léttvínið á
Islandi og þetta vin er í gæðalínu
næst fyrir ofan þau sem hafa náð
mestum vinsældum hér á landi.
Vínið er vel bragðfyllt, virkar feitt
og þykkt í munni og er þrungið af
bragði og ilmi af sítrus og suð-
rænum ávöxtum. Þetta er frábært
dæmi um hágæða víngerð Ástrala
í dag. S3
Frakkland
Hugel Geuuiirztraminer
Tradition 1997
Alsace 14%
Gewurztraminer er ein bragð-
mesta og ilmbesta hvítvíns-
þrúga veraldar. Bestu vínin sem
gerð eru úr þessari þrúgu koma
frá Alsacehéraðinu í Frakklandi.
Hugel er frægasta og virtasta
fyrirtæki héraðsins. Þetta vín er
merkt með orðinu „Tradition”
sem merkir að það er í gæða-
flokki fyrir ofan „standard" vín
fyrirtækisins. Þessi glæsilegi
drykkur virkar þykkur og jafnvel
eilítið olíukenndur í munni, með
frábæru jafnvægi í bragði og ilmi.
Gewíirztraminer vín verða ekki
betri en þetta. H3
Frakkland
Joseph Drouhin Chablis
Grand Cru LesClos 1999
Chablis 13%
Chablis Grand Cru er toppur-
inn frá Chablishéraðinu. Þessi
100% Chardonnay vín hafa alla tíð
verið talin glæsilegustu hvítu
matarvínin. Joseph Drouhin
hefúr alla tíð verið einn virtasti
framleiðandinn í Búrgund. Les-
Clos garðurinn þeirra skilar frá-
bæru, bragðmiklu, þurru víni
sem ber öll bestu einkenni þrúg-
unnar ogjarðvegarins sem vinvið-
urinn vex í. Ef tíl er klassík í vín-
gerð þá er hana að finna hér. 33
92