Frjáls verslun - 01.05.2002, Blaðsíða 31
r
Ovenjumiklar mannabreyt-
ingar hafa átt sér stað
meðal sveitarstjóra í vor
og hefur nánast verið
skipt um bæjarstjóra í
öðru hverju sveitarfélagi.
Ingi Sigurðsson, bœjarstjóri í Eyjum, er landsfrœgur fyrir að leika með knattspyrnuliði
IBV. Hérséstlngi með börnunum sínum ígrasi gróinni brekku íEyjum. Stúlkan heitir
Eva Lind og er á öðru ári en drengurinn Jón og er á sjöunda ári.
Mynd: úr einkasafni
Halldór Halldórsson
BÆJARSTJÓRIÁ ÍSAFIRÐI
alldór Halldórsson heldur áfram sem bæjarstjóri meiri-
hluta Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks á ísafirði
annað kjörtímabilið í röð. Halldór er 38 ára gamall og
alinn upp í Ögri við Isafjarðardjúp. Hann var bæjarstjóraefni
sjálfstæðismanna vorið 1998 og settist svo á lista sjálfstæðis-
manna og leiddi hann í vor. Halldór telur að eitt brýnasta
verkefni nýrrar bæjarstjórnar sé að halda ljárhagslegu sjálf-
stæði sveitarfélagsins „og stilla reksturinn þannig að hann
skili nægjanlegu ijármagni til framkvæmda því að lántaka er
ekki á dagskránni," segir hann.
Forgangsverkefni bæjarstjórnarinnar á ísafirði er að huga
að uppbyggingu í atvinnulífi og koma að nýsköpunarverk-
efnum og styrkja atvinnulífið með almennum hætti. Hug-
myndir eru um að stofna eignarhaldsfélag sem Jjárfestir í
sprotafyrirtækjum og verða hugsanlega settar 100-300 millj-
ónir í það eftir því hve mikil þátttakan verður. „Ég vona að það
takist að byggja upp bjartsýni og trú á framtíðina á staðnum
þrátt fyrir þær sviptingar sem eru alltaf í atvinnulífinu. Það er
hlutverk sveitarfélagsins að byggja upp gott umhverfi, t.d.
með góðum skólum, leikskólum, höfnum, vatnsveitum og
götum. Ég legg áherslu á að sveitarfélagið sinni sínum verk-
efnum og sé ekki að vasast í öllu,“ segir hann.
- Hvaða markmið heftir þú sem stjórnandi?
,Að vera sívakandi yfir rekstrinum þannig að hann skili því
sem þarf og halda áfram að innleiða nýja stjórnunarhætti
sem fela m.a. í sér að móta stefnu í hverjum málaflokki með
íbúum og starfsfólki bæjarins. Ég legg mikið upp úr sam-
starfi.“ H3
Ingi Sigurðsson
BÆJARSTJÓRI í VESTMANNAEYJUM
ngi Sigurðsson er byggingatæknifræðingur að mennt og
starfaði sem framkvæmdastjóri fýrir byggingaverktakalyrir-
tækið Steina og Olla í Vestmannaeyjum áður en hann tók við
bæjarstjórastarfinu. Ingi er þekktur knattspyrnumaður, hefur
leikið með IBV frá 1985. Hann hefur jafnframt unnið mikið
fýrir íþróttahreyfinguna í Eyjum og var til að mynda fram-
kvæmdastjóri knattspyrnudeildarinnar í tvö ár strax eftir að
skóla lauk. Hann er ópólitískur bæjarstjóri meirihluta sjálf-
stæðismanna og framsóknarmanna en fv. bæjarstjóri, Guðjón
Hjörleifsson, heldur áfram sem forseti bæjarstjórnar.
„Helstu verkefnin snúa að samgöngumálum, atvinnu-
málum, skólamálum og íjármálum bæjarins. Skuldir Vest-
mannaeyja hafa lækkað undanfarið í kjölfar sölu bæjarins á
Bæjarveitum Vestmannaeyja en það þarf að vinna áfram í því að
laga skuldastöðuna. I samgöngumálum þurfum við að treysta
betur flugsamgöngur og fá stærri flugvélar hér á milli. Einnig
þarf að huga að því að endurnýja Herjólf, fá stærra og hrað-
skreiðara skip, og svo þarf að huga að betri tengingu við fasta-
landið, t.d. með höfn eða annarri samgöngubót. I atvinnumál-
unum þarf að treysta það atvinnulíf sem er til staðar og huga
svo að nýjum atvinnutækifærum," segir Ingi.
- Hvaða markmið seturðu þér sem stjórnandi?
,Að treysta og efla mannlíf og atvinnulíf í Vestmannaeyjum og
vera tiltækur fyrir hinn almenna bæjarbúa, einnig að efla byggð
í Eyjum og aðstoða fólk við að hrinda í framkvæmd góðum hug-
myndum,“ segir hann. H3
ísafjörður: Vestmannaeyjar:
Meirihlutasamstarf Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks. Bæjarstjóri verður áfram Halldór Halldórsson, odduiti D-lista. Meirihluti sjálfstæðismanna og framsóknarmanna hefur tekið við. Opólitískur bæjarstjóri er Ingi Sigurðsson, fv. framkuæmdastjóri uerk- takafyrirtækisins Steina og Olla og knattspyrnumaður með ÍBlf.
31