Frjáls verslun - 01.05.2002, Blaðsíða 21
Kenneth Peterson er ekki fæddur með fullar hendur flár.
Hann kemur úr hefðbundinni bandarískri millistéttarJ]öl-
skyldu sem lagði upp úr þvi að menntun væri bæði nauð-
synleg og verðmæt. Enda fór það svo að hann gekk mennta-
veginn og útskrifaðist sem lögfræðingur við góðan orðstír. Eftir
að hafa rekið eigin lögfræðistofu í yfir átta ár skrapaði hann sam-
an fé og dembdi sér út í skuldir til að kaupa gamalt álver sem var
í eigu Astrala og hafði verið lokað um skeið. Stórt skref fyrir
Kenneth Peterson; úr lögfræðinni yfir í álið. Saga hans sem
athafnamanns var hafin.
Hann er forstjóri og eini eigandi Columbia Ventures, móður-
félags Norðuráls við Grundartanga, og eigandi meirihlutans í
símafyrirtækinu Halló-Fijálsum Ijarskiptum. Halló skerpti mjög
á samkeppninni á símamarkaðnum á dögunum þegar það bauð
símnotendum aðgang að fastlínukerfinu - heimtauginni - sem
Síminn hefur til þessa einn setið að. Starf hans núna sem alþjóð-
legur frumkvöðull er nokkuð langur vegur frá fyrstu störfum
hans þegar hann vann við uppvask á veitingahúsi og á bónda-
býli. Og vel á minnst; þessi bandaríski athafnamaður sem svo
mjög lætur að sér kveða í íslensku athafnalifi heyrði fyrst um
ísland í barnaskóla. Það var í sögutíma þegar sagt var frá Leifi
Eirikssyni og landafundum hans í Vesturheimi.
Fimmlugur eftir tvo mánuði Kenneth verður fimmtugur eftir tvo
mánuði. Hann er fæddur í ágúst árið 1952, í borginni Portland í
Oregon-fylki á vesturströnd Bandaríkjanna og þar ólst hann upp.
KEIMIMETH
petersoim
Fæddur: í borginni Portland í Oregon
í ágúst 1952.
Fjölskylda: Hefur verið kvæntur
Claudiu frá árinu 1978. Bömþeirraem
tvö; Emily, 17ára, og Erik, 9 ára.
Menntun: Lögfræðingur með ágætis-
einkunn.
Starf: Frumkvöðull, forstjóri og eini
eigandi Columbia Ventures Corporation.
Norðurál við Grundartanga. Velta þess var um 7,9 milljarðar í fyrra en um 5,5 milljarðar árið
á undan. Árið 2000 var hagnaður Norðuráls um 389 milljónir, eigið fé um 7,2 milljarðar og
starfsmenn um 180 talsins.
Fyrsta starf: Uppvask á veitingahúsi
°9 vinna á bóndabýli.
Ferill: Lögfræðingur á eigin lögfræði-
stofu í átta ár áður en hann söðlaði um
og fór í áliðnaðinn.
Áhugamál: Lestur sagnfræðirita.
Hljóðfæri: Spilar á píanó.
Uppáhaldsíþrótt: Körfubolti
Uppáhaldsborg: Portland í Oregon.
Hvenær heyrði hann fyrst um
Island? í sögutíma í barnaskóla þegar
sagt var frá Leifi Eiríkssyni.
Stjórn Halló-Ftjálsra fjarskiþta. Frá vinstri: Bjarni Þorvarðarson stjórnarformaður, Ingvar
Garðarsson framkvæmdastjóri, Ragnar Guðmundsson, framkvœmdastjóri hjá Norðuráli,
Kenneth Peterson og Guðmundur Tómasson, framkvæmdastjóri hjá Islandsbanka. A myndina
vantar Gísla Baldur Garðarsson lögmann.
21