Frjáls verslun - 01.05.2002, Blaðsíða 98
Beaujolais er fallegt hérað sem enginn verður svikinn afað heimsœkja. Lítil vinaleg þorp kúra í hlíðum skógi prýddra hœða.
Ferðast um Beaujolais
Fyrir áhugafólk um vín, já og góðan
mat, er áhugavert að ferðast um
vínhéruð þeirra landa sem fram-
leiða vín. A vínræktarsvæðunum
dafnar menningin og þá ekki minnst
matargerðarlistin. Fyrir þau ykkar
sem hafa áhuga á að skreppa út fyrir
pollinn þegar fer að líða á sumarið eða
þegar fer að hausta skal bent á vín-
ræktarhéraðið Beaujolais í Bour-
gogne í Frakklandi. Frá Beaujolais
koma samnefnd vín sem tilvalið er að
drekka á sumrin.
I kalksteinskjöllurum sem sprengdir eru inn í hæðirnar proskast vínið
við bestu hugsanleg skilyrði.
Beaujolais Beaujolais er falleg sveit.
Lítil og vinaleg þorp kúra utan í skógi
vöxnum hæðum. A milli hæðanna og í
hlíðum þeirra teygja sig vínakrarnir.
Beaujolais-hérað nær allt suður til
borgarinnar Lyon. Þekktustu vín-
þorpin eru níu. Ekrur þorpanna eru
„cru“ héraðsins enda vínin þaðan í
sérstökum gæðaflokki. Vínin bera
nafn hreppsins eða þorpsins en ekki
héraðsins, en þau eru Julienas,
Fleurie, Chénas, Morgon, St. Amour,
Moutin a Vent, Brouilly, Chiroubles og Regne. Þessi vín þykja
þau bestu í Beaujolais. Einnig eru framleidd ódýrari hvers-
dagsvín í héraðinu og heita þau Beaujolais og Beaujolais-Villa-
ges. Frægustu Beauolais Nouveau vínin eru nýpressuð vín
ársins sem eru sett á markað þriðja fimmtudag í nóvember.
Þetta er vafalaust snjallasta sölubragð sem um getur og auð-
veldar vínframleiðendum að koma framleiðslu sinni strax á
markaðinn. Beaujolais-vínin eru ilmrík og með ljúfu ávaxta-
bragði. Gott er að drekka þau ein og sér, en þau eru ljúffeng
með hvítlaukskrydduðu lambakjöti, góðum ostum og jafnvel
fiski, t.d. lúðu og laxi. Það eru margir vínframleiðendur í
Beaujolais-héraði. Stærstur þeirra og sá sem hefur aukið mjög
frægð og vegsemd Beaujolais-vínanna er Geroges Duboeuf.
Gamy Gamy nefnist þrúgan sem Beaujolais-vinin eru pressuð
úr. Eins og áður sagði eru vínin sem koma úr Gamyþrúgunni létt
og ávaxtarík. I eftirbragðinu er iðulega bragð af kirsu- og jarðar-
beijum og stundum vottar fýrir bragði af kanil. Hvergi hefur
náðst eins góður árangur við að framleiða ljúffeng vín úr Gamy-
Vínin bera nafn hreppsins eba
porpsins en ekki héradsins, en pau
eru Julienas, Fleurie, Chénas,
Morgon, St. Amour, Moutin a Vent,
Brouilly, Chiroubles og Regne. Þessi
vín pykja pau bestu í Beaujolais.
Eftir Sigmar B. Hauksson Myndir: Geir Olafsson
98