Frjáls verslun - 01.05.2002, Blaðsíða 41
STJÓRNUN KÍNVERSK HERKÆNSKULIST
Guðmundur Arnar Guðmundsson, hag- og
viðskiptafræðinemi í Kanada, jjallar hér um
hina 2.500 ára gömlu kinversku herkænsku-
list sem kennd er við herforingjann Sun
Tzu. „Þegar fyrirtæki hætta að vera „pau
sjálf og reyna sífellt að herma eftir öðrum
ná pau aldrei lengra en að vera næstbest. “
Eftir Guðmund Arnar Guðmundsson
„Að vinna hundrað sigra í hundrað
orustum er ekki herkænska.
Að vinna án þess að til baráttu komi
er hin raunverulega herkænska. “
Fyrir um það bil 2.500 árum var uppi herforingi í Kína, að
nafni Sun Tzu, sem rómaður var fyrir herkænsku og
skilað hafði ótrúlegum ávinningum fyrir ríkið Ch’i.
Til að miðla aðferðafræðinni, sem hann hafði mótað
með reynslu sinni af deilum í gegnum ævina, setti
hann saman rit sem í enskri þýðingu nefnistThe
Art of War. Fleiri kínverskir herforingjar lögðu
til efni í ritið en meginþunginn kemur frá Sun
Tzu sjálfum. Það sem segir okkur best hversu
mikilvægt þetta rit er, er að í upphafi keisaratíma-
bilsins í Kína var öllum bókmenntum eytt, að fimm
ritum undanskildum. The Art of War var eitt þeirra.
Bókin er í dag kennd við langflesta herskóla heimsins,
Aðferðafræðin var notuð í Persaflóastríðinu, seinni heimstyij-
öldinni, af Mao Zedong í byltingunni í Kína, Napóleon
studdist við fræðin og svona mætti lengi halda áfram.
Á síðustu tíu árum hefur það færst mjög í vöxt að
fyrirtæki tileinki sér The Art of War og hafa aðferð-
irnar skilað þeim ótrúlegum árangri.
Gordon Gekko vitnaði mikið í Sun
Tzu í myndinni Wall Street og sagði
eitt sinn: „Stríð er ávallt unnið áður
en til baráttu kemur.“ Um þetta
snýst rit Sun Tzu í hnotskurn.
Að vinna án þess
að til baráttu komi