Frjáls verslun - 01.05.2002, Blaðsíða 64
Húsnœði Máls og menningar við Laugaveg, sem sagt var að hefði
m.a. verið reist fyrir rússagull. Gögn hafa staðfest að stuðningur
Sovétmanna við Mál og menningu hafi að mestu leyti miðast við
styrki til útgáfu á sovéskum bókmenntum og enga verulega þýðingu
haft fyrir reksturfyrirtœkisins.
Á Stall með Skrani Bókaútgáfan hefur einkennst af miklum
sveiflum síðustu árin. Fróði og Iðunn hafa gengið í eina sæng,
FBA eignaðist fyrir nokkrum árum helmingshlut í Vöku-
Helgafelli á móti Olafi Ragnarssyni og fjölskyldu og Vaka-
Helgafell og Mál og menning eru komin í eina sæng með
flestöll forlögin í landinu innan sinna vébanda. Staða bókar-
innar hefur versnað og verðlagning er komin úr tengslum við
raunveruleikann í gegnum sölu stórmarkaðanna á bókum.
„Eg hugsa að það þekkist hvergi á byggðu bóli að vara sé
komin á útsölu áður en hún kemur í verslanir. Bókin hefur
kannski lækkað í verði um helming daginn eftir að hún
kemur á markaðinn. Við þetta keppir auðvitað enginn og það
skilar bara tapi fyrir alla aðila. Þetta hefur hins vegar haft
áhrif til hins verra fyrir bókina. Með þessu er hún sett á stall
með skrani," segir Páll Bragi og greinilegt er að bókamaður-
inn er svolítið sár.
En víkjum sögunni að Vöku-Helgafelli. Eigendur þess fyrir-
FRÉTTASKYRING KflUPIN fl EDÐU
tækis eignuðust helmingshlut í Eddu við stofnun fyrirtækis-
ins, Islandsbanki 25 prósent og Olafur Ragnarsson, fv.
stjórnarformaður Eddu, og ijölskylda hans 25 prósent. Bóka-
forlagið Vaka var stofnuð 1981 og keypti Helgafell ijórum
árum síðar. Bókaútgáfan var hefðbundin til að byija með en
smám saman var farið út í ijölbreyttan rekstur sérklúbba auk
þess sem Vaka-Helgafell hafði einkarétt til útgáfu tímarita og
bóka frá Walt Disney. Fyrirtækið var rekið með hagnaði frá
upphafi, jók jafnt og þétt umsvif sín og var snemma á síðasta
áratug orðið annað stærsta útgáfufyrirtæki landsins á eftir
Máli og menningu. Vöku-Helgafelli var breytt í hlutafélag um
1990 og nokkrum árum seinna ákveðið að opna félagið fyrir
nýjum hluthöfum. Eftir að FBA, sem nú er íslandsbanki, eign-
aðist helmingshlut hætti Olafur Ragnarsson sem fram-
kvæmdastjóri og varð stjórnarformaður. Vaka-Helgafell keypti
bókaklúbba Almenna bókafélagsins, Iceland Review útgáfuna
og bókaforlagið Lögberg og fyrir rúmum tveimur árum stofn-
uðu Vaka-Helgafell og Mál og menning sameiginlega dreifing-
armiðstöð. Það samstarf leiddi til þess að fyrirtækin voru sam-
einuð í Eddu - miðlun og útgáfu sumarið 2000. Markmiðið var
að byggja upp öflugt fyrirtæki sem gæti sinnt fjölbreyttri
efnismiðlun og keppt við alþjóðleg risafyrirtæki, sem dytti í
hug að heíja starfsemi hér á landi. Stefnt var að því að skrá
fyrirtækið á markað. Við samrunann eignuðust eigendur
hvors móðurfélaganna 50 prósent í hinu nýja fyrirtæki.
Bjargað Ira hruni A þeim tveimur árum sem liðin eru frá því
Edda varð til hefur leiðin legið stöðugt niður á við í rekstrinum.
Fyrirtækið hefur átt við verulega Jjárhagserfiðleika að etja þó
að umfang þeirra hafi reyndar ekki verið að fullu ljóst fyrr en
síðla vetrar eða í vor. Hlutafé hafði verið aukið tvisvar, einu
sinni með þátttöku allra hluthafa í Eddu sem keyptu þá nýja
hluti í hlutfalli við eignarhlut sinn í félaginu og öðru sinni með
þátttöku Máls og menningar eingöngu. Þetta dugði ekki til og
smám saman varð ljóst að félagið þurfti að fá inn meira flár-
magn til að mætti „bjarga því frá hruni,“ segir Páll Bragi.
Björgólfur hafði áhuga á þessu sögufræga fyrirtæki og hófust
könnunarviðræður í febrúar. Hlé varð á þeim í mars eftir að
tilboði frá Björgólfi var hafnað og ræddu fulltrúar Eddu við
aðra. Það reyndust hins vegar „mýrarljós,“ eins og Páll Bragi
orðar það, svo að viðræður hófust aftur. Gengið var frá kaup-
unum í lok maí. Páll Bragi segir að þeir Björgólfur hafi strax frá
upphafi unnið málið með faglegum hættí og fengið ljárhags-
stöðuna staðfesta í áreiðanleikakönnun. „Við vorum tilbúnir í
þetta á réttum forsendum. Markmið okkar var ekki að verða
ráðandi hluthafi en það endaði samt með því að svo varð.“
Margir hljóta að spyrja sig hvernig í ósköpunum fyrirtæki,
sem sprettur upp úr tveimur stöndugum fyrirtækjum, hafi tekist
að koma sér í svo mikla erfiðleika. Svarið er að hluta til augljóst.
Sameiningin átti sér stað á tíma þar sem mikil bjartsýni ríkti í
þjóðfélaginu, spennan var í toppi og margir höfðu ofurtrú á
nýmiðlun. Halldór Guðmundsson, forsljóri Eddu, segir að menn
Eftir að Ijóst varð um kaup Björgólfs á Eddu hefur verið haft á orði að nú sé
rússagullið komið aftur inn í Mál og menningu en Björgólfur og sonur hans, Björgólfur
Thor, seldu eins og kunnugt er bjórverksmiðjuna Bravo í byrjun þessa árs fyrir 40
milljarða króna. Það má sjálfsagt orða þetta þannig.
64