Frjáls verslun - 01.05.2002, Page 8
m
HITAVEITA
SUÐURNESJA
Hitaueita Suðurnesja hf.
Brekkustíg 3B
Reykjanesbæ
Sími: 422-5200
Fax: 421-4727
Netfang: hs@hs.is
Höfuðstöðuar Hitaueitu Suðurnesja í Reykjanesbæ.
Sennilega er Bláa lónið þekktast af uerkum Hitaueitu Suður-
nesja þó að Drkuuerið í Suartsengi sé nokkuð uel kynnt og
margir heimsæki það sér til fróðleiks og ánægju.
Þessir tveir staðir, Bláa lónið og Svartsengi, eru meðal vinsæl-
ustu ferðamannastaSa landsins og Svartsengi er fyrsta „opna"
orkuver landsins, þ.e. sem var almenningi opið með kerfisbundnum
hætti. Orkuverið að Svartsengi er raunar fyrirmynd orkuversins að
Nesjavöllum og hefur mælst vel fyrir þar sem fjöldi skólabarna
kemur árlega að skoða og ferðamenn af öllum þjóðernum einnig.
Enda sýningarsvæðið sérlega vel heppnað auk þess sem allt
umhverfi og frágangur við Svartsengi er til fyrirmyndar.
„Fleiri nýjungar má telja því að Hitaveita Suðurnesja varð fyrst til
að verða hlutafélag af orkuveitum og eitt af fyrstu orkufyrirtækjum
landsins til að verða „stofnvatnsveita" en það gerðist með vatns-
öflun fyrir Grindavík," segir Júlíus Jónsson forstjóri. „Árið 1985
varð Hitaveita Suðurnesja fyrsta „fjölveita" landsins, en hún sinnir
öllu í senn; hitaveitu, vatnsveitu, rafmagnsveitu, framleiðslu, flutn-
ingi og dreifingu. Mikið og öflugt frumkvöðla- og iðnþróunarstarf á
sér stað en orkuverið að Svartsengi er hið fyrsta í heiminum þar
sem tvfvökva gashverflum var komið fyrir strax á eftir bakþrýsti-
gufuhverflum. Einnig má segja að HS sé frumkvöðull hvað það
varðar að fjölnýta auðlindir sínar og skilgreina hugtakið auðlinda-
garð sem ef til vill útskýrir betur starfsemina í Svartsengi en hug-
HIIHlHlilMilTiH
Hitaveítu Suðurnesja hf.