Frjáls verslun - 01.05.2002, Side 30
STJORNUN BÆJARpELAGA
hlutasamstarf Uinstri-grænna og Sjálfstæðisflokks. Bæjar-
er Arsæll Guðmundssnn, oddviti UG og fv. aðstoðarskóla-
ari Fjölbrautaskóla Norðurlands uestra.
Ársœll Guðmundsson, bæjarstjóri í Skagafirði, leiðir meirihluta
Vinstrihreyfingarinnar-grœns framboðs og Sjálfstæðisflokks. Hann
segir eitt af forgangsverkefnum meirihlutans í Skagafirði „að byggja
upþ trúnað og innviði hins nýja sveitarfélags sem varð til fyrirfjórum
árum við sameiningu ellefu sveitarfélaga í Skagafirði og standa vörð
um þjónustu sveitarfélagsins við íbúana. “
Ársæll Guðmundsson
BÆJARSTJÓRI í SKAGAFIRDI
r
Isameinuðu sveitarfélagi í Skagafirði er Sjálfstæðisflokkur í
meirihlutasamstarfi með Vinstrihreyfingunni-grænu fram-
boði og er Ársæll Guðmundsson, oddviti VG, sveitarstjóri á
því kjörtímabili sem er að hefjast. Ársæll var aðstoðarskóla-
meistari og eitt ár settur skólameistari Fjölbrautaskóla
Norðurlands vestra á Sauðárkróki áður en hann tók við starfi
sveitarstjóra. Ársæll segist binda vonir við að nýi meirihlutinn
verði traustur og samheldinn þar sem gagnkvæmt traust sé
grundvöllur fýrir því að uppbygging geti átt sér stað í sveitar-
félaginu. Hann vill treysta búsetu og velferð í Skagafirði þar
sem áhersla er lögð á öflugt og fjölbreytt atvinnulíf.
Eitt af forgangsverkefnum meirihlutans í Skagafirði verð-
ur að styrkja fjárhagsstöðu sveitarfélagsins. „Við þurfum að
byggja upp trúnað og innviði hins nýja sveitarfélags sem varð
til fýrir fjórum árum við sameiningu ellefu sveitarfélaga í
Skagafirði og standa vörð um þjónustu sveitarfélagsins við
íbúana. Við þurfum að auka upplýsingaflæðið og aðgengi
íbúa að upplýsingum um stöðu mála og rekstur sveitarfélags-
ins, styrkja menntun og nýta þær ríku auðlindir sem eru í
Skagafirði á sjálfbæran hátt til hagsbóta fyrir Skagfirðinga.
Meirihlutinn er samtaka í því að efla hina blómlegu menn-
ingu Skagafjarðar,“ segir Ársæll.
- Hvaða markmið seturðu þér sem stjórnandi?
„Markmið mitt er fýrst og fremst að skila vinnu sem verði til
heilla fyrir Skagfirðinga. Eg er kjörinn í sveitarstjórn og því
pólitískur sveitarstjóri og hef þannig á mér meiri þrýsting og
kröfur um að standa mig vel og fylgja af einurð eftir þeirri
stefnu sem meirihluti sveitarstjórnar hefur markað sér. Vinnu-
semi, virðing og vellíðan eru einkunnarorð sem ég hef fylgt í
mínum störfum og mun ég leitast við að hafa þau að leiðarljósi
í starfsemi sveitarfélagsins." 03
Halldór Halldórsson, bæjarstjóri á
ísafirði, er kjörinn fulltrúi og odd-
viti sjálfstæðismanna jafnframt
því að vera við stjórnvölinn á bæj-
arskrifstofunum. Hann segir að
mikil vinna sé framundan í at-
vinnuuppbyggingu og vill leggja
sitt af mörkum til að gera sprota-
fyrirtækjum jarðveginn góðan.
30