Frjáls verslun - 01.05.2002, Side 48
Kristján Loftsson, framkvœmdastjóri Hvals: „Við eigum ekki að láta segja okkur svona fyrir verkum afþjóðum sem eiga engra hagsmuna að
gæta og stunda ekki hvalveiðar sjálfar. “ Mynd: Geir Ólajsson
sem notaðar eru um stærð hvalastofna mjög svo varfærnisleg-
ar og nokkuð víst að fjöldinn er talsvert meiri en tölur sem nú
eru notaðar segir til um.“
Þrir StOfnar Gögn þau sem liggja fyrir benda til þess að í
Norður-Atlantshafi séu a.m.k. þrír stofnar hrefnu með höfuðút-
breiðslu á hvalveiðimiðunum við Vestur-Grænland, Austur-
Grænland/ísland/Jan Mayen (Mið-Atlantshafsstofn) og Noreg
(Norðaustur-Atlantshafsstofn). Samkvæmt talningunum 1995,
sem tóku til tveggja síðarnefndu stofnanna, var heildarljöldi
hrefna á talningasvæðinu um 184 þúsund dýr, þar af töldust 72
þúsund dýr til Mið-Atlantshafsstofnsins. Samkvæmt talningum
árin 1987 og 1989 og fýrri merkingum við strendur Kanada var
áætlað að stofnstærð langreyðar á Norður-Atiantshafi væri
a.m.k. 50 þúsund dýr. Árið 1999 var gerð sérstök úttekt á ástandi
langreyðar í Norður-Atlantshafi á vegum vísindanefndar
NAMMCO. Niðurstöður vísindanefndarinnar voru að ástand
Austur-Grænlands/íslandsstofnsins væri gott og að veiðar á 200
dýrum árlega næstu 10 ár myndi ekki minnka stofninn niður
fyrir 70% af því sem hann er talinn hafa verið áður en veiðar
hófust fyrir um það bil 120 árum þótt gengið
sé út frá varfærnustu forsendum. Samkvæmt
talningunum 1995 voru um 9.200 sandreyðar í
Norður-Atlantshafi, þar af um 8.800 á íslenska
talningasvæðinu. Vegna suðlægrar útbreiðslu
tegundarinnar er talið að talningarnar 1989
hafi náð til stærri hluta stofiisins, en þá voru
um 10.500 sandreyðar vestan og suðvestan
Islands. Miðað við að veiðarnar undanfarna
áratugi hafi eingöngu verið stundaðar frá
Islandi er sennilegt að stofninn hafi þolað þær
vel enda námu þær aðeins 0,6% af áætiaðri
stofnstærð. Veiðiþol stofnsins hefur þó ekki
enn verið metið né þróaðar aflareglur sem fara
mætti eftir við úthlutun aflamarks.
Áhrif á fishveiðar „Hvalirnir í kringum landið
éta um það bil 6,4 milljónir tonna af æti og af því
eru líklega um tvær milljónir tonna fiskur,“
segir Kristján. „Þegar það er borið saman við
Spá fjölstofnalíkans á þróun þorskafla miðað við
uöxt hvalastofna (---) og stöðuga hvalastofna ( )
Þróun þorskafla samkvœmt fjölstofnalíkani þarsem tillit er tekið til áhrifa þriggja skíðis-
hvalategunda (óbrotin lína) eða ekki (þunktalína).
48