Frjáls verslun - 01.05.2002, Side 50
HLUTABRÉFAMARKAÐURINN
Líf, dirfska og leiftursóknir einkenna núna hlutabréfamarkað-
inn. Nýir frumkvöðlar eru komnir fram á sjónarsviðið. Árni
Hauksson og Hallbjörn Karlsson hafa ásamt fleirum keypt
Húsasmiðjuna og Hreggviður Jónsson ásamt örfáum öðrum ijár-
festum kaupir 80% í Pharmaco íslandi. Á sama tíma sýnir Þor-
steinn Már Baldvinsson með yfirtökunni á SR-mjöli hve ótrúlega
framsækinn hann er í viðskiptum. Þess má geta að met var slegið
í veltu með hlutabréf á Verðbréfaþingi íslands í maí; 34,5 millj-
arðar, en fyrra metið var sett í mars sL; 32,8 milljarðar. Það virðast
því vera peningar í gangi á markaðnum.
Kaup flrna og Hallbjörns Árni Hauksson, Ijármálastjóri Húsa-
smiðjunnar, fékk vin sinn Hallbjörn Karlsson, starfsmann Kaup-
þings, í lið með sér ásamt fleiri tjárfestum til að yfirtaka fyrir-
tækið. Þeir Árni og Hallbjörn eru 35 ára gamlir, fyrrum skólafé-
lagar úr MR og verkfræðideild Háskóla Islands, og eiga það sam-
eiginlegt að hafa báðir stundað nám við Stanford háskólann í
Bandaríkjunum. Þeir keyptu fyrir hönd ijárfesta, eins og það er
orðað, 70% hlut í Húsasmiðjunni, um 197 milljónir að naihverði, á
genginu 19,0. Andvirði viðskiptanna er því um 3,7 milljarðar. Til-
kynnt var um viðskiptin mánudaginn 10. júní. Seljendur voru Is-
landsbanki og systkinin Jón, Sturla og Sigurbjörg, börn Snorra
Jónssonar, stofiianda Húsasmiðjunnar. Kaupin eru gerð með fyr-
irvara um áreiðanleikakönnun og ijármögnun kaupanna og að
uppfylltum þessum fyrirvörum verður kaupsamningur undirrit-
aður hinn 1. ágúst nk. Öðrum hluthöfum verður gert yfirtökutil-
boð eftir 1. ágúst, eins og reglur Verðbréfaþings kveða á um þeg-
ar um yfirtökur skráðra iýrirtækja er að ræða en Húsasmiðjan er
skráð á þinginu. Hún verður hins vegar afskráð þar um leið og
kaupin eru frágengin. Heildarkaupverðið á Húsasmiðjunni er því
rúmlega 5,3 milljarðar. Yfirtakan á Húsasmiðjunni hafði á sér yf-
irbragð leiftursóknar. Fullyrt er að hugmyndin að kaupum þeirra
Árna og Hallbjörns hafi fæðist innan Búnaðarbankans og að unn-
ið hafi verið dag og nótt í tiltölulega stuttan tíma áður en látið var
til skarar skríða. Þannig hafði forstjóri Húsasmiðjunnar, Bogi Þór
Siguroddsson, ekki hugmynd um kaupin fyrr en þau voru afstað-
in og hélt Jón Snorrason, stjórnarformaður Húsasmiðjunnar,
fund með Boga Þór þar sem honum var tilkynnt um yfirtökuna
og að Jón myndi stýra fyrirtækinu fram til 1. ágúst. Vitað er að
eindreginn vilji hefur verið hjá þeim systkinum, Jóni, Sturlu og
Sigurbjörgu, að minnka hlut sinn í fyrirtækinu og jafnvel að fara
út úr því að fullu, eins og nú hefur orðið raunin. Ymsum þekktum
ijái'festum mun hafa verið boðið að kaupa bréf systkinina í vetur.
Þau fóru upphaflega með fyrirtækið á markað til að draga sig
smám saman út úr því. Margar kjaftasögur eru um það hverjir
séu með þeim Árna og Hallbirni, en engin þeirra hefur fengist
staðfest. Raunar er það orðið svo að stórviðskipti á hlutabréfa-
markaði verða ekki án þess að nöfn þeirra feðga Jóhannesar
Jónssonar og Jóns Ásgeirs skjóti upp kollinum. Því er hins vegar
harðneitað að þeir komi þarna nálægt heldur sjái þeir Árni og
Hallbjörn mikil tækifæri í fyrirtækinu. Um er að ræða skuldsetta
yfirtöku, eigið fé er upp á 3,5 milljarða, hagnaður fyrir ijármagns-
kostnað, afskriftir og skatta (EBIDTA) hefur verið um einn millj-
arður og ýmsir telja að duldar eignir séu upp á einn milljarð. Fast-
lega má búast við því að þeir Árni og Hallbjörn muni selja eignir
út úr fyrirtækinu við fýrsta tækifæri.
Kaup Hreyyvlðs Kaup Hreggviðs Jónssonar, fyrrverandi for-
stjóra Norðurljósa, á 80% hlut Pharmaco Islandi komu nokkuð á
óvart, en margir héldu að Hreggviður tæki við forstjórastöðu -
Árni Hauksson tekur við sem forstjóri Húsasmiðjunnar í
byrjun ágúst. Hann og félagi hans Hallbjörn Karlsson yfir-
tóku fyrirtækið með leiftursókn. Myndir: Geir Ólafsson
Yfutökur á nokkrum stórfyrirtœkjum sýna að það
er lífog dirfska á markaðnum. Nýir frumkvöðlar
eru komnirfram á sjónarsviðið, eins ogArni
/
Hauksson og Hreggviður Jónsson. A sama tíma
sýna „gamlirfrumkvöðlaf, eins og Þorsteinn
Már Baldvinsson, framsækni sem aldrei fyrr!
Eftír Jón G. Hauksson Mvndir: Geir Ólafsson
50