Frjáls verslun - 01.05.2002, Qupperneq 53
„GluggasmiSjan var stofnuS árið 1947 og er því elsta starfandi glugga-
verksmiðja í landinu," segir Gunnar Gissurarson, forstjóri Gluggasmiðj-
unnar hf. Framleiðsla fyrirtækisins skiptist í fjóra meginþætti:
• Trédeild annast framleiðslu á trégluggum, tréhurðum, álklæddum
trégluggum, sólstofum og svalayfirbyggingum.
• Aldeild framleiðir álglugga, álhurðir, þakglugga, sjálfvirkar renni-
hurðir og sveifluhurðir.
• Bílskúrshurðadeild framleiðir bflskúrshurðir fyrir íbúðarhús,
bílageymslur og iðnaðar- og verksmiðjuhús.
• Innflutningsdeild flytur inn ýmsar gerðir af byggingavörum, s.s.
hringhurðir, sjálfvirkan opnunarbúnað á allar gerðir af hurðum, full-
málaða og glerjaða álklædda tréglugga, loftunarristar, bréfalúgun
öryggisrúllugardínur o.fl.
Lena Németh, sölustjóri Besam Export ab, afhenti Gunnari
Gissurarsyni forstjóra uiðurkenningarskjal og glerlistauerk þegar
Gluggasmiðjan uar ualin umboðsfyrirtæki ársins hjá Besam.
Gunnar segir að mjög vel hafi gengið hjá fyrirtækinu á sfðasta ári eins
og reyndar mörg undanfarin ár „og við horfum björtum augum á fram-
tíðina. Nú starfa 35 manns hjá fyrirtækinu og fyrirhugað er að stækka
húsnæði fyrirtækisins á þessu ári.“
í samfélagi nútímans er mikið lagt upp úr vöruþróun og hefur Glugga-
smiðjan verið í fararbroddi um margra ára skeið við að hanna, kynna og
framleiða það nýjasta og besta sem er á markaðnum. Gunnar segir að
Gluggasmiðjan hafi innleitt álklædda tréglugga hér á landi fyrir 15 árum.
Krafan um viðhaldsfría glugga var til staðar og Gluggasmiðjan hannaði
Lux-gluggakerfið til að mæta þeirri kröfu. Gluggasmiðjan var einnig
brautryðjandi í sölu á sjálfvirkum rennihurðum og var eina fyrirtækið um
margra ára skeið sem framleiddi lyftuhurðir fyrir iðnaðarhús hér á landi,"
segir hann.
Umboðsfyrirtæki ársins
Gluggasmiðjan var nýlega valin umboðsfyrirtæki ársins af sænska stór-
fyrirtækinu Besam Export ab, sem er í fararbroddi á sínu sviði og leið-
andi í heiminum í framleiðslu á sjálfvirkum rennihurðum, hringhurðum og
sveifluhurðum. Besam hefur eigin söluskrifstofur út um allan heim en
auk sinna eigin söluskrifstofa hafa þeir 35-40 sjálfstæða umboðsaðila
og er Gluggasmiðjan einn þeirra. Viðurkenningin „Umboðsfyrirtæki árs-
ins", sem Besam veitir á um það bil þriggja ára fresti, er viðurkenning
til fyrirtækis sem skarar fram úr hvað varðar sölu og þjónustu. Glugga-
smiðjan fékk þessa eftirsóttu viðurkenningu að þessu sinni og af því til-
efni kom Lena Németh, sölustjóri Besam Export, hingað til lands og
afhenti Gunnari viðurkenningarskjal og glerlistaverk við hátíðlega athöfn
í fyrirtækinu.
„Þetta er mjög mikil hvatning fyrir okkur," segir Gunnar, „og mikil
viðurkenning. Fólkvill stöðugt meiri þægindi og sjálfvirkni og það er hægt
að nota þennan búnað á hvaða hurðir sem er, bæði inni og úti. Þessi
búnaður er líka mikið notaður fyrir fatlaða. Það er hægt að setja hann á
gamlar hurðir og fá ýmsan aukabúnað á hann, s.s. fjarstýringu o.fl."
Gerðaruottuð gluggaframleiðsla
„Gluggasmiðjan hf. hefur ávallt lagt mikla áherslu á vöruþróun og gæða-
mál,“ segir Pétur Þórarinsson, framleiðslustjóri Gluggasmiðjunnar. „Á
undanförnum árum höfum við verið með markvissa gæðauppbyggingu
og vöruþróun í fyrirtækinu þannig að varan standist ströngustu kröfur
markaðarins á öllum sviðum."
Gluggasmiðjan hefur nú fengið svokallaða Gerðarvottun á fram-
leiðslu sína en það er vottun sem Rannsóknarstofnun byggingariðnað-
arins veitir ef varan stenst ströng-
ustu gæðakröfur. Til að öðlast Gerð-
arvottun þarf fyrirtæki að hafa innra
eftirlit þar sem strangt gæðaeftirlit
er með framleiðslu vörunnar. Ein-
göngu eru notuð vottuð og viður-
kennd efni í framleiðsluna og öll
framleiðslan fer eftir fyrirfram-
gerðum framleiðsluferlum. Þá
þarf fyrirtækið að gera samning
við óháðan eftirlitsaðila sem sér
um ytra eftirlit með framleiðsl-
unni og vottar að varan standist
þær gæðakröfur sem til hennar
eru gerðar. Rannsóknastofnun
byggingariðnaðarins, RB, sér
svo um prófanir á vörunni og
gefur út Gerðarvottun. „Gerðar-
vottun veitir viðskiptavininum
tryggingu fyrir því að varan
standist ákveðnar gæðakröfur
og sé af þeirri gerð sem boðin
er,“ segir Pétur að lokum. H3
Pétup
sjóri með skjal frá RB sem S|
að Gluggasmiðjan hefur fen
Gluggar og hurðir frá Gluggasmiðjunni eru í húsi PuuC uið Skógarhlíð.
mmmmm
53