Frjáls verslun - 01.05.2002, Síða 66
FRÉTTASKÝRING KflUPIN fl EDPSl
„Fyrirtækið á helst að bera arð og skila því sem lagt hefur verið í það og gengist
hefur verið í ábyrgðir fyrir. Við viljum líka halda virðingu félagsins á lofti og standa
þannig að því fjárhagslega að það geti verið merkisberi í íslensku menningarlífi og sé
traustur og góður vinnustaður, góður þjóðfélagsþegn þannig að allir geti borið
höfuðið hátt í kringum það,“ segir Páll Bragi.
er komin á viðunandi grundvöll núna og með þessum ráðstöf-
unum teljum við okkur hafa svigrúm í rekstrinum næstu tvö
árin,“ segir Páll Bragi.
Þolinmótt fjármayn Fullt jafnræði er með báðum aðilum í
stjórn fyrirtækisins enda segja fulltrúar beggja fylkinga að mjög
gott samstarf hafi tekist þarna á milli. Páll Bragi segir að fulltrúar
Máls og menningar - Heimskringlu hafi verið „okkar aðalvið-
semjendur og þeir hafa dregið með okkur vagninn og verið
„primus motorar" með Halldór Guðmundsson forstjóra í farar-
broddi. Við erum miklir samheijar og þess vegna gætum við
jafnræðis í stjórninni." Fulltrúar Björgólfs eru Páll Bragi Krist-
jónsson, stjórnarformaður, Olafur B. Thors, fv. forstjóri Sjóvár-
Almennra, og Þór Kristjánsson rekstrarhagfræðingur. I vara-
stjórn er Þórunn Guðmundsdóttir hrl. Fulltrúar Máls og menn-
ingar eru Þröstur Olafsson varaformaður, framkvæmdastjóri
Sinfóníuhljómsveitar Islands, og Örnólfur Thorsson, sérfræð-
ingur hjá forsetaembættinu. Daníel Helgason rekstrarhagfræð-
ingur er í varastjórn.
Björgólfur og Páll Bragi koma inn í Eddu sem rekstrarmenn.
Þeir hafa gert sér far um að vinna að málinu á rekstrarlegum
forsendum frá upphafi og hyggjast halda því áfram. Páll Bragi
segir að þeirra markmið sé að rétta við reksturinn hratt og
örugglega. Farið verður vandlega yfir málin og kannað hvar
hægt er að hagræða og laga til. „Við ætlum að vinna þetta eins
og við teljum að eigi að reka fyrirtæki. Við viljum ekki tapa ijár-
magni. Fyrirtækið á helst að bera arð og skila því sem lagt hefur
verið í það og gengist hefur verið í ábyrgðir fyrir. Við viljum lika
halda virðingu félagsins á lofti og standa þannig að því íjárhags-
lega að það geti verið merkisberi í íslensku menningarlífi og sé
traustur og góður vinnustaður, góður þjóðfélagsþegn þannig að
allir geti borið höfuðið hátt í kringum það,“ segir hann og bætir
við að ijármagnið sé „þolinmótt. Við vitum að það eru aldrei
miklir peningar á þessu sviði. Það á að vera eðlilegur afrakstur
af rekstrinum en það er ekki hægt að græða á bókaútgáfu. Við
erum ekki að tjárfesta í félaginu til að koma rekstrinum í lag og
selja það svo með hagnaði. Það er ekki okkar ætlun. Þetta er tjár-
festing til lengri tima.“
Elfur í þjóðarsálinni Ýmsar nýjar áherslur eiga eftir að koma í
ljós innan Eddu innan skamms en fyrirhugað er að bókaforlögin
haldi starfsemi sinni óbreyttri og ekkert er í spilunum sem
breytir þvi en búast má við þvi að Nýja bókafélagið og Þjóðsaga
bætist í hópinn. Hins vegar má búast við að svið verði sameinuð
og svo segir Páll Bragi að velta megi því fyrir sér hvort Edda eigi
að vera í tímaritaútgáfu, hljómplötuútgáfu, rekstri bókaverslana
o.s.frv. Það verði skoðað. Þegar mannabreytingar ber á góma
segir hann að nýir eigendur séu ekki „með sveðjurnar á lofti og
höggvi ótt og títt. Við viljum gera þetta skynsamlega og rólega."
Halldór Guðmundsson verður áfram forstjóri Eddu og Páll
Bragi Kristjónsson verður starfandi stjórnarformaður. Akveðin
kaflaskil hafa orðið hjá Ólafi Ragnarssyni. í samtali við Frjálsa
verslun sagðist hann á næstunni ætla að sinna ýmsum hugðar-
efnum sínum, þar á meðal skriftum. Hann vinnur nú að bók um
kynni sín af Halldóri Laxness þau ár sem hann var útgefandi
skáldsins, og hefur ýmis önnur verk í undirbúningi. Samkvæmt
heimildum Fijálsrar verslunar höfðu tveir lykilstarfsmenn Eddu
lagt sagt upp störfum í vor áður en eigendaskiptin urðu. Þetta
eru þeir Sigurður Svavarsson, ffamkvæmdastjóri sölu- og starfs-
mannasviðs, og Kjartan Örn Ólafsson, framkvæmdastjóri mark-
aðs- og þróunarsviðs. Kjartan hefur þegar yfirgefið fyrirtækið en
ekki er vitað hvað Sigurður hyggst fyrir. Þessi breyting getur
gefið svigrúm fyrir tilfærslur á mönnum.
- En af hverju hefur Björgólfur keypt í Eddu?
„Það er ýmislegt sem getur gefið gleði í lífinu. Kaupin áttu sér
ekki stað vegna þess að það gefi ljóma út á við. En þetta er hug-
lægari ijárfesting en margt annað. Björgólfur hefur áhuga ef
svigrúm er fyrir hendi að taka þátt í þjóðfélaginu og megin-
straumum þess. Þvi er ekki að neita að félag með þennan
bakgrunn er talsverð elfur í þjóðarsálinni. Sumir fara í pólitík,
aðrir vilja koma að bókaútgáfu. Báðir eru með sín markmið og
sína starfsemi en það getur líka verið farvegur í ýmsar áttir
aðrar,“ svarar Páll Bragi.
Tveir fortíðarheimar Við kaup Björgólfs á Eddu koma saman
tveir ólíkir menningarheimar, Björgólfur og Páll Bragi úr Sjálf-
stæðisflokknum og Almenna bókafélaginu, sem var á sínum
tima svar hægri manna við þeim menningarítökum sem vinstri-
menn áttu áratugum saman í gegnum Mál og menningu. Páll
Bragi kannast við að talsverð umræða hafi orðið um þetta en
segir að þeir Björgólfur komi „undirhyggjulaust og fölskvalaust"
inn í fyrirtækið. „Þetta er gert á heiðarlegum nótum,“ segir
hann. „Við, sem að þessu stöndum, höfum gaman af þessu. Við
höfum mikinn áhuga á bókaútgáfu og viljum vera í þessum
rekstri. Hinu er auðvitað ekki að neita að með þessum tveimur
hluthafahópum mætast tveir ólíkir fortíðarheimar úr menningu
og pólitík en það ræður ekki för. Við Björgólfur höfum starfað í
Sjálfstæðisflokknum og mitt fyrsta starf var hjá Almenna bókafé-
laginu undir stjórn BaldvinsTryggvasonar á sínum tíma. En það
er með þetta eins og annað í henni veröld okkar: Berlínarmúr-
inn féll. Eg finn ekki annað en að sú samvinna sem við höfum átt
við fulltrúa Máls og menningar hafi gengið vel og allir ættum við
að geta borið þroska til að vinna úr þessum málum."
Halldór Guðmundsson er sammála þessu og bjartsýnn á
samstarfið. Hann bendir á að fulltrúar Máls og menningar hafi
átt í ítarlegum viðræðum við fulltrúa Björgólfs í marga mánuði.
I slíkum viðræðum skapist trúnaður milli manna og því sé hvor-
ugur aðilinn að horfa á málin út frá pólitískum forsendum, nema
þá einna helst menningarpólitískum. Þeir hafi ekki átt í neinum
árekstri vegna þess hvar þeir standi í pólitík, þvert á móti. Gott
samstarf hafi skapast þarna á milli. Ul
66