Frjáls verslun - 01.08.2004, Blaðsíða 138
Róhert Trausti Árnason rekstrarfræðingur og Jens Ingólfsson rekstrarhagfræðingur hjá fyrirtækjadeild Hússins. Peir aðstoða uiðskiptauini sína uið að kaupa, selja
og sameina fyrirtæki. Myndir: Geir Úlafsson
Fyrirtækjasvið Hússins aðstoðar við kaup, sölu og sameiningu fyrirtækja:
Uftuni að réiíia íynrtvánmi
Uið hjálpum fólki að kaupa, selja og sameina fyrirtæki. Okkur
þykir það skemmtilegt og uið kunnum það uel. Þetta er það eina
sem uið gerum,“ segja þeir Jens Ingólfsson og Róbert Trausti
Árnason hjá fyrirtækjasuiði Hússins.
Jens er rekstrarhagfræðingur og Róbert Trausti er rekstrarfræðingur.
Báðir hafa þeir langa reynslu af íslensku viðskiptalífi og rekstri
fyrirtækja þannig að þeir vita mæta vel um hvað málið snýst og hvað
er mikilvægast þegar kaupa skal, selja eða sameina fyrirtæki. Þeir
leggja áherslu á trúnað við viðskiptavini sína og að veita þeim faglega
ráðgjöf og þjónustu. Þó að þeir hafi fjöldann allan af fyrirtækjum á
skrá, eru fæst þeirra nokkurn tíma auglýst eða kynnt opinberlega.
Þetta eru viðkvæm, persónuleg viðskipti þar sem miklu skiptir að
virða trúnað.
Trúnaðurinn er mikilvægur
„Það getur skaðað fyrirtæki verulega ef kviksögur komast á kreik um
að það sé hugsanlega til sölu," segja þeir félagar. „Kviksögur skapa
óróa meðal starfsmanna í fyrirtækjum og jafnvel meðal viðskiptavina
fyrirtækjanna og lánardrottna þeirra. Sömuleiðis kæra kaupendur sig
oft ekkert um að það fréttist að þeir séu að leita að fyrirtæki. Við
verðum að taka tillit til margra ólíkra hagsmuna og gæta þess að ekki
komi upp misskilningur og óvissa. Trúnaður og gætni er því upphaf og
endir alls í öllum okkar viðskiptum."
Viðskiptavinir þeirra tilheyra víðum markhópi og til hópsins
teljast bæði hugsanlegir kaupendur og seljendur. Meðal kaupenda
eru t.d. stjórnendur fyrirtækja sem vilja nýta reynslu sína og
þekkingu í eigin rekstri, fyrirtæki sem vilja stækka með ytri vexti
og loks má nefna viðskiptavini sem hafa selt fyrirtæki sín og vilja
stærra eða minna fyrirtæki.
Seljendur hafa mjög mismunandi ástæður fyrir sölu. Þeir geta
verið komnir á þann aldur að þeir vilji hætta eða minnka við sig
vinnu. Aðrir vilja spreyta sig á stærri verkefnum eða skipta um svið.
„Ástæðurnar eru ótrúlega fjölbreyttar," segir Jens, „en sjaldnast
þær að fyrirtækið gengur illa.“
„Við fáumst mest við meðalstór fyrirtæki sem velta 50-500
milljónum króna, en sum hafa verið mun stærri og önnur minni,“ segir
Róbert Trausti. „Aðalatriðið að þau séu fjármögnunarhæf," bætir Jens
við. „Þau verða að skila rekstrarhagnaði og standa undir fullnægjandi
ávöxtun á fjárfestingunni."
Koma atburðarásinni í gang...
Jens og Róbert Trausti eru hvatamenn. Ef þeir fá hugmynd að
sameiningu, kaupum eða sölu fyrirtækja þá stuðla þeir gjarnan að því
að atburðarás fari af stað. „Kaupandi sem kemur til okkar verður oft í
spjalli við okkur hvatinn að því að eigendur, sem fram að þessu höfðu
ekkert velt þessu fyrir sér, íhuga að selja. Við erum því raunverulega
hvetjandi á þessum markaði. Við fáum fólk til að hugsa um það sem
það hefur sennilega ekki leitt hugann að áður," segja þeir.
En hvernig er ferlið?
„Þegar seljandi leitar til okkar skoðum við fyrirtækið og reynum að
átta okkur á stöðu þess og framtíðarmöguleikum," segir Jens. „I
mörgum tilfellum verðmetum við fyrirtækið sjálfir en stundum eru
138
KYNNING