Frjáls verslun - 01.04.2004, Blaðsíða 8
Undanfarin ár hefur Pfaff-Borgarljós uið Grensásueg stóraukið þjónustu sína á hljóð- og mynd-
lausnum. Pfaff-Borgarljós, sem í ár á 75 ára afmæli, hefur um 4B ára skeið haft umboð fyrir
ýmsar gerðir hljóðbúnaðar. Fyrir rúmum fjórum árum uarð talsuerð breyting á þegar fyrir-
tækið tók uið öllum heimilishljómtækjaumboðum sem uerslunin Reynisson og Blöndal hafði til stilu.
„Við gerum okkur far um að kynna okkur hvað það er sem fólk vantar og vinnum út frá því," segir
Guðmundur E. Finnsson, verkefnastjóri hjá Pfaff-Borgarljósum. „Við höfum í gegnum tíðina fundið
réttu samstarfsaðilana erlendis og getum útvegað lausnir í hvað sem er, lítið og stórt, en fyrsta
skrefið er þarfagreining, við seljum ekki bara til að selja."
j hljóðdeild Pfaff-Borgarljósa starfa þrír menn, hver um sig sérfræðingur á sínu sviði. Þetta
eru þeir Bragi Kort sölustjóri sem hefur víðtæka þekkingu á hljóðnemum og þráðlausum hljóð-
nemakerfum. Svo er það Guðmundur E. Finnsson verkefnastjóri sem er lærður leiksviðsstjóri og
hefur sótt mörg námskeið í leikhússtækni, Ijósatækni, hljóðtækni og fleiru því skyldu. Sá þriðji er
Reynir Reynisson sem hefur tæplega 20 ára reynslu í hljómtækjaiðnaði og er sérfræðingur Pfaff-
Borgarljósa í heimilishljómtækjum.
Fjölbreytt verkefni
Flestir viðskiptavina Pfaff-Borgarljósa eru fyrirtæki og stofnanir af ýmsu tagi og raunar allir þeir
sem þurfa á einhvers konar hljóðkerfum að halda. Pfaff-Borgarljós sá til að mynda um uppsetn-
ingu og hönnun á d&b audiotechnik hljóðkerfinu sem var í íslenska skálanum á heimssýningunni í
Hannover árið 2000, hönnun og uppsetningu í hátíðarsal Verslunarskóla íslands, hljóðkerfi í
Bessastaðakirkju og þráðlausum skólastofukerfum í fjölmörgum skólum, þar af eru 15 slík kerfi í
Húsaskóla í Grafarvogi.
PFAFF BORgArLJÓS
Grensásvegi 13 ■ 108 Reykjavík ■ Verslun sími 414 0400
Þjónusta 414 0450 ■ Fax 414 0401 • www.pfaff.is ■ pfaff@pfaff.is
KYNNING
Guðmundur E. Finnsson uerkefnastjóri, Bragi Kort sölustjóri, Reynir Reynisson sölumaður og Margrét Kristmannsdóttir framkuæmdastjúri.
Úrualið í hljóðdeildinni er gott.
AÐEINS HIÐ BESTAi