Frjáls verslun - 01.04.2004, Blaðsíða 9
„Verkefnin eru bæði stór og smá en sala
þráðlausra kerfa hefur aukist gríðarlega,"
segja þeir félagar. „Við vinnum í nánu sam-
starfi við framleiðendur tækjanna og viðskipta-
vinir okkar fá það sem hentar þeim best.
Pegar sett er upp hátalarakerfi í stærri
rýmum er það sett upp ítölvuforriti til þess að
hljóðdreifing verði rétt. Hátalarar eru stað-
settir með tilliti til lögunar rýmisins, fjölda
gesta og staðsetningu þeirra, tegund hátalara o.s.frv. Það skiptir meginmáli að hljóðið berist jafn-
skýrt til allra og það fæst ekki nema með því að uppsetning kerfisins sé í lagi og búnaðurinn henti."
Hljóðið geymt á annan máta
Guðmundur segir mikið hafa breyst varðandi geymslu hljóðs og hvernig það sé spilað út á útvarps-
og sjónvarpsstöðvum. „Nú þarf að vera til staðar skjalastjórnunarkerfi í tölvurnar til að halda utan
um tónlistina. Við settum t.d. upp afspilunarbúnað í hótel hér í bæ og þar er hægt að spila tónlist
og tilkynningar í 48 sólarhringa samfleytt án þess að spila sama lagið tvisvar. Svo dæmi sé tekið
er hægt að stýra þessum búnaði heiman frá hótelstjóranum f gegn um netið og því engin þörf á
því að nokkur sé við stjórn tækjanna."
Pfaff-Borgarljós býður ekki aðeins upp á hljóðkerfi þó þau séu fyrirferðarmest i vöruúrvali hljóð-
deildarinnar. Einnig hafa þeir uppá að bjóða ýmsar lausnir varðandi dreifingu myndmerkis, tjöld,
skjávarpa og heimabíókerfi svo eitthvað sé nefnt.
„Við leggjum áherslu á hljómgæði og almenn gæði þeirra tækja sem við seljum og höfum
umboð fyrir mörg af bestu merkjunum," segja þeir félagar. „Grunnurinn er sá sami, hvort sem um
er að ræða hljóðkerfi fyrir verslun, skóla, kirkju eða íþróttasal, við könnum þörfina og seljum kerfi
til samræmis við hana."
Hlustunarherbergið
Væntanlegir viðskiptavinir geta notið þess að hlusta og horfa í vel búnu hlustunarherbergi Pfaff-
Borgarljósa. Það er hljóðeinangrað og í því eru sæti í réttri fjarlægð þannig að besta hugsanleg
reynsla fæst af því tæki sem verið er að hlusta á hverju sinni.
Pfaff-Borgarljós er til húsa að Grensásvegi 13.