Frjáls verslun - 01.04.2004, Page 14
Pharmaco
verður Actavis
Nafni Pharmaco-samstæðunnar hefur verið breytt í
Actavis Group hf. Með nýju nafni fær félagið nýtt
merki og kjörorðið „Hagur i heilsu“. Þetta er liður
í uppbyggingu félagsins á alþjóðlegum samheitalyija-
markaði. Róbert Wessman forstjóri tilkynnti breyting-
una á fundi með starfsmönnum í Smárabíói. B3
Róbert Wessman, forstjóri Actavis Group, tilkynnti
breytingu á nafni og kjörorði á fundi með starfs-
mönnum í Smárabíói.
Mynd: Geir Ólafsson
Ingvar Helgason kynnir nýjan bíl
Ingvar Helgason kynnti nýlega
nýjan bíl, Nissan 350 Sedan, og
var fjölmenni saman komið í
sýningarsölum fýrirtækisins af
því tilefni. Kiistinn Þór Geirsson
framkvæmdastjóri flutti ræðu og
sýnd var skjámynd af nýja bílnum
á ferð um ijöll og firnindi. S3
Bíllinn var
afhjúpaður
að viðstöddu
fjölmenni.
iTitnað j iTtsbendingu
Áskriftarsími: 512 7575
Síðast en ekki síst væri ástæða til
þess að setja skorður við því hvaða
ítök þingmenn mega hafa í atvinnu-
lífi og fjölmiðlum. Nú mega seðla-
bankastjórar ekki eiga hlut i fyrir-
tækjum en yfirmenn þeirra mega
það hins vegar. Þingmenn geta fjall-
að um mál á Alþingi [ tilvikum þar
sem á almennum vettvangi væru
menn afspyrnuvanhæfir.
Guðmundur Magnússon
(Æ sér gjöf til gjalda).
Margaret Thatcher sagði mikið at-
vinnuleysi í upphafi stjórnarára
hennar stafa af því að efnahagslífið
þyrfti að endurnýjast eftir þann
skaða sem margra ára tekjustefna
hefði valdið. Skyldu slík eftirköst
bíða (slendinga þegar þensluskeið-
inu lýkur?
Sigurður Jóhannesson
(Skínandi horfur).
íslensk fyrirtæki þurfa að auka enn
frekar áherslu á menntun og þjálfun
starfsfólks til að standast saman-
burð við leiðandi fyrirtæki erlendis.
Það á ekki síst við um fyrirtæki í
landbúnaði, sjávarútvegi og iðnaði
og einkanlega á það við um starfs-
fólk með litla menntun.
Ingi Rúnar Eðuarðsson
(Starfsmenntun í íslenskum
fyrirtækjum).
Aukin framleiðni ætti að vera kjör-
orðið, þar sem betri nýting auðlind-
anna skiptir höfuðmáli og áherslan
ætti umfram allt að vera á þær at-
vinnugreinar sem þegar leika mikil-
vægt hlutverk í þjóðarframleiðsl-
unni. Eina leiðin til þess er að nýta
þekkinguna betur. Það er líka leiðin
til stöðugra framfara.
Eyþór íuarJúnsson
(Samkeppni um framleiðni).
14