Frjáls verslun - 01.04.2004, Qupperneq 19
STIRÐLEIKINN Á MILLI ÚLAF5 RAGNARS OG DAVÍÐS
Brúðkaup Friðriks krónprins Dana Þá komum við að
brúðkaupi Friðriks krónprins Dana. Það er með hreinum
ólíkindum að forsetinn hafi tekið þá óvæntu ákvörðun að
afboða komu sína í brúðkaupið og gefa út tilkynningu þar sem
sagði að hann gæti ekki yfirgefið landið og farið í brúðkaupið
„vegna óvissu um hvenær Alþingi lyki afgreiðslu mikilvægra
mála“. Langflestir túlkuðu heimkomu hans á þá leið að henni
væri ætlað að vera táknræn og sýna í verki að forseti
lýðveldisins ætlaði að hafna fjölmiðlafrumvarpinu og „taka þar
með völdin af Alþingi og Davíð“.
Forsetanum var í lófa lagið að kynna sér stöðu mála á Alþingi
og átta sig á að þar var haldið uppi málþófi af stjórnarand-
stæðingum og frumvarpið yrði aldrei samþykkt af handhöfum
forsetavalds í einum grænum að honum flarstöddum ef til þess
kæmi. Ekki nema forsetinn hafi ekki treyst samherjum sínum í
sflórnarandstöðunni betur en þetta til að halda uppi málþófi.
Auðvitað átti hann að vera viðstaddur brúðkaupið og var það
hjákádegt þegar sljórnarandstaðan taldi það mjög eðlilegt að
forsetinn afboðaði komu sína í brúðkaupið. Gat hann ekki séð
af einum degi í að heiðra prinsinn iyrir hönd íslensku
þjóðarinnar? Nei, óvissa á Alþingi. Kunna menn annan betri?
Enn á ný reyndu foringjar stjórnarandstöðunnar, Össur
Skarphéðinsson, Guðjón A. Kristjánsson og Steingrímur J.
Sigfússon, að koma þeim skilaboðum til þjóðarinnar að þetta
væri mjög eðlileg hegðun af hálfu forsetans og Davíð að kenna,
eins og ævinlega áður, að hann kæmist ekki i brúðkaupið.
Hvers vegna þarf umræðan að vera á þessu plani?
Afleikur forsætisráðherra í viðtali við Sjónvarpið Davíð gerði
sig hins vegar sekan um fáheyrðan afleik í viðtali við Sjón-
varpið föstudagskvöldið 14. maí þegar hann blandaði dóttur
forsetans inn í umræðuna og sagði að forsetinn væri vanhæfur
til að synja fjölmiðlafrumvarpinu vegna þess að dóttir
forsetans ynni hjá Baugi. I lagi var að láta það flakka að forset-
inn gæti verið vanhæfur vegna tengsla við forstjóra Norður-
ljósa, sem var kosninga- og fjármálastjóri Ólafs Ragnars í for-
setakosningunum 1996. En dóttur forsetans átti ekki að
blanda í umræðuna hversu mikil sem „Séð og heyrt væðing“
forsetaembættisins er orðin og hversu mikið sem tjölskylda
forsetans er í flölmiðlum við ýmiss konar tækifæri.
Önnur afdrifarík mistök forsætisráðherra í þessu viðtali var
að tjá sig reiður. Allt yfirbragð viðtalsins var með þeim hætti að
Davíð væri fokvondur út í forsetann. I raun sýndi viðtalið enn og
aftur hversu slæmt er að tjá sig í mikilli bræði. Engu að síður
varð það kristaltært í þessu viðtali (og aldrei sem iýrr) hve
mikill pirringur og hve mikið vantraust ríkir á milli forsetans og
forsætisráðherra. Forsetinn fór ekki í brúðkaupið vegna þess að
hann treysti ekki forsætisráðherra - hvernig sem hann gat
fundið það út að málþófinu á Alþingi myndi linna um leið og
hann færi út. En að tjá sig svo reiður við Sjónvarpið verða að
teljast mjög taktísk mistök hjá Davíð.
Reynt að breiða yfir pirringinn Forsætisráðherra reyndi að
breiða yfir pirringinn á milli embættanna tveggja þegar hann
ræddi við blaðamenn eftir fund hans með forsetanum að
morgni mánudagsins 17. maí sl., eða helgina eftír bniðkaup
Danakrónprins. Forsætisráðherra tók sérstaklega fram að þeir
hefðu „átt mjög gott samtal, eins og þeir eigi alltaf, þótt þeir
skiptist á skoðunum". Hann sagði ennfremur: „Eg er búinn að
þekkja Ólaf frá því við vorum 18 ára, frá því við vorum að spila
badminton saman, síðan höfum við þekkst með svona hléum.
Þannig að það [samkomulagið] hefur alltaf verið ágætt og er
enn ágætt.“
Þetta hljómaði svo sem ágætlega; að allt væri sléttstraujað og
fínt á milli þeirra. En stöldrum aðeins við; minni fólks er ekki
alveg svona skammvinnt. Hins vegar er allt annað að sjá Davíð
þegar hann afslappaður og brosandi ræðir við fréttamenn um
samskipti sín við Ólaf Ragnar og gjörðir hans - eða þegar hann
þungbúinn ræðir við íréttamenn um „að útskýra þurfi fjarveru
forsetans" - eða segir reiður á Alþingi að umræðan um ríkisráðs-
fund án vitundar forsetans vegna 100 ára afmælis heimastjórnar
sé „upphlaup út í himinblámann". Það sama verður sagt um
forsetann, það er allt annað að sjá til hans þegar hann
afslappaður sinnir sínum skyldum og svarar blaðamönnum
með bros á vör í stað þess „að skella á þá“ með einhverjum
svipbrigðum, eins og hann gerði á Bessastöðum við heim-
komuna og vildi engu svara.
Greinilega bört á fleiri fundum Ekki var vanþörf á að forseti
Islands og forsætisráðherra héldu þennan fund að morgni 17.
maí. Embættin eru sögð funda reglulega. En fundirnir eru
greinilega eitthvað af skornum skammti. Þetta var t.d. tyrsti
fúndur þeirra síðan íýrir heimastjórnarafmælið, þótt fram hafi
komið hjá Davið að þeir hafi ræðst við í síma síðan. En hvernig
í ósköpunum stendur á því að þeir hittust ekki og funduðu við
fyrsta tækifæri eftír uppákomuna í tengslum við afmæli heima-
stjórnar 1. febrúar!? Gekk ekki nógu mikið á í kringum það
afmæli? Það að þeir skyldu ekki hafa fundað segir allt sem segja
þarf um neistaflugið á milli embættanna. Einhvern tíma hefðu
menn haldið fund út af minna tilefni.
Ekki undir sama paki Fyrir tíð ólafs
Ragnars Grímssonar í embætti for-
seta var skrifstofa forseta og forsætis-
ráðherra undir sama þaki á 1. hæð
stjórnarráðshússins við Lækjargötu.
Fram hefur komið að forseti og for-
sætisráðherra hafi á þeim tíma fund-
að saman einu sinni í viku, væru þeir
báðir viðlátnir. Þeir fundir stóðu yfir-
Hins vegar er allt annað
að sjá Davíð þegar hann
afslappaður og brosandi
ræðir við fréttamenn
um samskipti sín við
Ólaf Ragnan
Það sama verður sagt um for-
setann, það er allt annað að sjá
til hans þegar hann afslappaður
sinnir sínum skyldum og svarar
blaðamönnum með bros á vör í
stað þess „að skella á þá“.
19