Frjáls verslun - 01.04.2004, Síða 25
Fréttablaðið fær 43%
allra auglýsinga frá stór-
mörkuðum og öðrum
stórverslunum og
Morgunblaðið tun 29%.
Samtals um 71%.
Fréttablaðið
f • >
ííj !■;]
3§ álf- #5 II ■, - . « n i*i
mm g
f w jrl
VmntTin—iTrTwmniiii rnn i-r- - ÁÍ /
f/i ÆÆ
Stórmarkaðirnir eru Sterkir auglýsendur Áberandi er hvað Baugsfyrirtækin Hagkaup,
Bónus og 10-11 auglýsa mikið í Fréttablaðinu en lítið í öðrum fjölmiðlum. Fjarðarkaup
eru þar þó sterkur auglýsandi sem og Nettó. Á hinn bóginn er áberandi hvað Nóatún
auglýsir mikið í Morgunblaðinu en lítið í Fréttablaðinu.
Samkvæmt úttekt gagnagrunns IMG er Hagkaup sá stórmarkaður sem auglýsir
mest. Áætlað er að matvöruverslanir og stórmarkaðir hafi auglýst fyrir yfir 500 millj-
ónir á síðasta ári. Skv. upplýsingum úr áðurnefndum gagnagrunni auglýsti Hagkaup
mest og var með 22% af auglýsingaútgjöldum í þessari atvinnugrein.
Stórmarkaðirnir auglýsa langmest í Fréttablaðinu og Morgunblaðinu. Samkvæmt
áðurnefndum gagnagrunni fær Fréttablaðið 43% allra auglýsinga frá stórmörkuðum og
öðrum stórverslunum og Morgunblaðið um 29%. Samtals um 71%. Aðrir fjölmiðlar fá
langtum minna. En Skjár 1, Stöð 2, Sjónvarpið og DV voru í næstu sætum, hver og einn
fékk um 5% af auglýsingum stórmarkaðanna.
Þegar horft er á einstaka stórmarkaði þá þarf ekki að koma neinum á óvart að
Bónus auglýsti langmest í Fréttablaðinu á síðasta ári. En Frétt, sem rekur Fréttablaðið
og er með Baugsveldið á bak við sig, eignaðist ekki DV fyrir undir árslok.
í ljósi þessara talna þarf engan að undra að menn spyiji sig hvers virði Norðurljós
og þá sérstaklega Fréttablaðið séu án Baugs. Á móti má segja að Fréttablaðið er borið
út frítt i öll hús og skorar mun hærra en aðrir ijölmiðlar í könnunum. Það er fyrir vikið
í góðri stöðu á eigin forsendum gagnvart sínum skæðustu keppinautum, eins og
Morgunblaðinu, eins og glöggt má sjá þegar auglýsendur í blaðinu eru skoðaðir. Og
hver er kominn til með að segja að Bónus, Hagkaup, 10-11 og önnur fyrirtæki Baugs-
veldisins hætti að auglýsa í Fréttablaðinu þótt nýir eigendur komi að blaðinu? 33
I
Morgunblaðið 12,0%
DU 5,2%
flðrir 0,4%
Heimild: Gagnagrunnur IMG
HUAR AUGLÝSIR HAGKAUP?
Fréttablaðið 71,1% I
Stöð 2 8,4%
5 ( Skjár 1 8,1%
Sjónuarpið 4,7%
Morgunblaðið 4,6%
flðrir 3,1%
Heimild: Gagnagrunnur IMG
25