Frjáls verslun - 01.04.2004, Page 35
1
'
1
Zj— 1
1 n
Svala Thorlacius, hrl. „Ef eignir eru fluttar milli manna án þess að gerð sé grein fyrir því með lögformlegum hætti um hvers
konar eignayfirfærslu sé að ræða þá er vitanlega hætta á því að viðkomandi „erfingi" lendi í tekjuskatti og þá er nú erfða-
fjárskatturinn skárri!" Mynd: Geir Ólafsson
ekki selt húsnæðið fyrr en eftir langan tíma á verði sem var
talsvert undir fasteignamati," segir hún og bætir við að margt
eldra fólk vilji gjarnan afhenda börnum sínum eignir sínar í
lifanda lífi. Astæða sé til að benda á að til þess að um löglega
fyrirframgreiðslu arfs sé að ræða verði að greiða erfðafjár-
skatt og ganga lögformlega frá því með gerð erfðaljárskýrslu
sem sýslumaður samþykki.
InnbÚ lágt metið Hvað hlutabréf varðar segir hún að
breyting á mati hlutabréfa komi til með að hafa mikil áhrif hjá
Dæmi
Einbýlishús 40 milljónir
Bíll/bílar 5 milljónir
Sumarbústaður 5 milljónir
Málverk 2 milljónir
Verðbréf 20 milljónir
Samtals 72 milljónir
5% erfðafjárskattur: 3,6 milljónir
þeim sem fá hlutabréf í arf. „Það er auðvitað ekkert farið að
reyna á þetta ennþá en ég veit dæmi þess í tíð gömlu laganna
að fólk notaði þetta ákvæði um nafnverð hlutabréfa til að
lækka erfðaíjárskatt sinn. Það var t.d. gert þegar átti að skipta
upp dánarbúum, þar sem hafði verið setið í óskiptu búi, að
selja fasteignir á markaðsverði og kaupa fyrir þær hlutabréf í
fyrirtækjum sem voru hátt skráð og greiða svo erfðafjárskatt
samkvæmt lágu nafnverði."
Svala segir að ekki hafi verið auðvelt að „gera neinar
kúnstir til að lækka erfðaíjárskatt. Lögfræðingar sýslu-
mannsembættanna eru nákvæmir og samviskusamir og
ganga hart eftir því að allt sé talið rétt fram. Leggja þarf fram
gögn yfir allar skuldir og greiðslur og bankayfirlit fram á
síðasta dag. Það eina sem segja má að hafi verið litið í
gegnum fmgur sér með, ef svo má segja, er að innbú dánar-
bús er yfirleitt lágt metið. Hefur almennt ekki þurft að leggja
fram neitt formlegt mat á búsmunum jafnvel þótt reikna
megi með að arfláti hafi skilið eftir sig verðmætt innbú. Sé
staðan hins vegar sú að erfðaskrá liggi fyrir þar sem t.d. eru
talin upp verðmæt málverk þá þarf að verðmeta sérstaklega
hvern hlut.“S!i
35