Frjáls verslun - 01.04.2004, Page 41
Allt að 50% sparnaður
Það eru ekki mörg ár frá því farið var að einangra hús að utan í stað
þess að setja einangrunina innst en Magnús segir gjörbreytingu
verða á hitakostnaði við þá breytingu eina. „Við sjáum það glöggt
þegar við berum saman hitakostnað í húsum sem byggð hafa verið
með eldri aðferðinni og hinni nýju. Það er hægt að laga eldri hús sem
orðið hafa fyrir steypuskemmdum á þann hátt að einangra þau aftur
að utan og setja álklæðningu yst og spara með því hitakostnað og
viðhald. Grindin þarf að vera úr áli en ekki timbri svo hún hreyfist til
jafns til klæðninguna.
„Það er gríðarlegur kraftur í klæðningunni þegar hún hitnar og
kólnar," segir hann. „Með því að hafa sams konar efni í grindinni flýtur
klæðningin ofan á henni ef svo má segja og spennan verður engin. Þetta
eykur enn endingartíma klæðningarinnar."
„Við erum með umboð fyrir Alcan álklæðningar sem þykja hinar
bestu í heiminum," segir Magnús Ólafsson, framkvæmdastjóri Áltaks,
sem er ungt fyrirtæki, sérhæft í utanhússklæðningum. „Alcan er annar
stærsti álframleiðandi í heimi og framleiðir álklæðningar í öllum
þykktum og gerðum en þær klæðningar sem við flytjum inn eru fram-
leiddar I Þýskalandi.
Endist endalaust
Álklæðning hentar sérstaklega vel þar sem er mikil saltmengun enda
tærist ál langminnst allra málma samkvæmt niðurstöðum rannsókna
sem gerðar hafa verið hjá Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins. Álið
er lakkað til að vernda það fyrir eðlilegri veðrun og einnig til þess að
Stórfyrirtækið Alcan
Áltak er í eigu Húsasmiðjunnar sem keypti fyrirtækið fyrir skömmu.
Magnús stofnaði fyrirtækið áamt Jóni Steingrfmssyni eftir að hafa
kynnst yfirburðum Alcan klæðninga við störf annars staðar en hann
segir fagmenn fljótlega hafa áttað sig á því að þó kostnaður væri hærri
í upphafi skilaði hann sér til baka að nokkrum árum liðnum þegar Ijóst
væri að einskis viðhalds væri þörf. „Alcan er næststærsti álframleið-
andi í heiminum og hefur verksmiðjur um allan heim. Álverið í Straums-
vfk er innan við 1% af heildarveltu Alcan en við verslum einkum við verk-
smiðjur í Þýskalandi."
í nýjum húsakynnum Áltaks að Stórhöfða 33 er sýningarsalur þar
sem hægt er að skoða allar þær vörur sem fyrirtækið hefur á boð-
stólum. Á heimasíðunni www.altak.is er að finna ýmsar upplýsingar um
fyrirtækið og samstarfsaðila þess auk þess sem þar eru teikningar af
ýmsu tagi fyrir fagmenn. B!j
auka fjölbreytileika í útliti húsa. Hvað lakkið varðar skipta gæði þess
miklu máli um endingu lakkhúðarinnar.
„Alcan leggur mikið upp úr gæðum og notar eingöngu PVDF og
polyester lakkhúð, en PVDF-lakkhúðin er með sérstakri vöm gegn sólar-
Ijósi. Þannig dugar klæðningin í áratugi og í raun veit enginn hversu
lengi hún dugar því elstu klæðningar eru orðnar 50 ára gamlar og ekki
sér á þeim ennþá," segir Magnús. „Hér á landi hefur Alcan klæðning
verið notuð í rúmlega 30 ár og þær elstu eru enn í góðu lagi.“
Litir á álklæðningum Alcan eru þægilegir og hafðir þannig að litlar
líkur eru á að fólk fái leið á litunum. Þó kemur fyrir að fólk vill skipta um
lit en Magnús segir það þá um leið verða til þess að mála þurfi með
nokkurra ára millibili. „Annað lakk er einfaldlega ekki eins sterkt og það
sem Alcan notar. Þetta er dýrt lakk en þegar endingin er höfð í huga er
það ódýrt."
ÁLBAK
Stórhöfða 33- 110 Reykjavík
Sími: 577 4100
KYNNING
41