Frjáls verslun - 01.04.2004, Side 54
NÆRMYND AF JÚNl KARLl QLAFSSYNI
semi hans trufli þó ekki samningaferlið. Ávallt
finnist leiðir til að ljúka ágreiningsmálum á far-
sælan hátt.
Viðmælendur FV eru sammála um að Jón
Karl komi ávallt beint að hlutunum. „Hann er
hreinn og beinn og kemur heiðarlega fram í hvi-
vetna. Hann gerir ráð fyrir að aðrir komi fram á
sama hátt en það er því miður ekki alltaf raunin
í lífinu. Verið getur að hann reki sig á þess vegna
en þegar upp er staðið er þetta ótvíræður kostur
í hans fari,“ segir einn samferðamaður Jóns.
Ólafur Arnarson hagfræðingur kynntist Jóni Karli í Þýska-
landi og eru þeir góðir vinir. Ólafur segir hverjum manni ljóst
að rekstur samgöngufyrirtækis sé flókinn og erfiður og þar
þurfi oft að fást við ófyrirséðar uppákomur. En hann segir Jón
Karl einfaldlega yfirburðamann í sínu fagi.
„Flugfélagið var oft í mjög neikvæðri umræðu og menn að
bregðast við krísum af ýmsu tagi. En effir að Jón Karl kom að
félaginu heyrir maður nánast engar neikvæðar fréttir eða
slæmt umtal um það. Jón þurfti vissulega að taka erfiðar og
umdeildar ákvarðanir, t.d. þegar flugi var hætt til rótgróinna á-
fangastaða. Hann stóð þá í eldlínunni en gaf sig hvergi. Tíminn
hefur leitt í ljós að þessar ákvarðanir voru réttar, félaginu til
hagsbóta."
Velgengni Jóns Karls hjá Flugfélaginu og vegtyllur sem
honum hafa hlotnast gefa tilefni til að ætla að hann sé afar
metorðagjarn maður. Viðmælendur segja það rétt að vissu
marki en það einkenni ekki persónuleika hans. „Hann er vissu-
lega metnaðarfullur en það er aðeins á faglegum nótum.“
Hæfur tónlistarmaður Jón Karl er viðskiptafræðingur frá
Háskóla Islands. Áður en hann réðst til Flugfélagsins vann
hann sem svæðisstjóri Flugleiða í Þýskalandi. Þar kynntist
hann tveimur af góðum vinum sínum, þeim Ólafi Arnarsyni og
Kristjáni Arasyni, fyrrum handboltakappa. I vinahópnum eru
einnig Hjörtur Þorgilsson hjá Flugleiðum og meðal nánustu
vina hans frá því í æsku eru Birgir Ottósson sem starfar hjá
Félagsþjónustunni og Michael Valur Clausen barnalæknir.
Umsögn Ólafs
Arnarsonar um Jón
Olafur Arnarson hagfræðingur, sem kynntist Jóni Karli
úti í Þýskalandi, er ekkert að skafa utan af hlutunum
þegar falast er eftir lyndiseinkunn um Jón Karl:
„Hann er sennilega besti, klárasti og skemmtilegasti
maður sem ég hef kynnst. Hann er einstaklega hæfur
maður í alla staði og ljúfur í viðkynningu. Heill og rétt-
sýnn. Og svo er hann með fyndnari mönnum. Það kæmi
mér ekki á óvart þó forystumenn annarra fyrirtækja
mundu falast eftir starfskröftum hans.“ S3
Jón Karl er ekki aðeins fær fyrir-
tækjastjórnandi heldur er hann afbragðs
tónlistarmaður, þykir spila fantavel á
píanó. Ólafur Arnarson, sem einnig er
lunkinn píanóleikari, orðar það svo að
Jón Karl hafa meiri tónlistarhæfileika í
litlaputta en hann í öllum kroppnum.
Spilamennskan byijaði strax í gagn-
fræðaskóla og voru menn síðhærðir
eins og títt var um unga menn í þá daga.
Þeir félagar spiluðu á böllum í Templara-
höllinni, tóku reglulega í hljóðfærin í Háskólanum, höfðu m.a.
tekjur af því að spila á árshátíðum. Hljómsveitir þeirra félaga
hétu Basil fursti, en hún þótti afar frambærileg, og Nátthrafnar.
Þá spilaði Jón Karl með hljómsveit sem skemmti á þorrablót-
um í Frankfurt þegar hann starfaði þar. Reyndar er Jón Karl
enn að spila með félögum sínum en þeir þykja eftirsóttir á hefð-
bundnum dansleikjum.
StÓtfjÖISkylda Jón Karl er fæddur 12. september 1958, á Ljós-
vallagötu 30. Það hús reisti afi hans og þar var fjölskyldan til
húsa í mörg ár; afi, amma, foreldrar og börn. Sannkölluð stór-
fjölskylda. Jón Karl gekk í Melaskóla og síðar Hagaskóla áður
en hann fór í Menntaskólann í Reykjavík. Á þeim árum
kynntist hann eiginkonu sinni, Vallríði Möller. Þau hófu
búskap í íjölskylduhúsinu en það var selt þegar afi Jóns dó. Jón
Karl og Valiríður búa í Grafarvoginum ásamt fjórum börnum
sínum, þremur stúlkum og einum litíum gutta.
Jón er mikill ijölskyldumaður, er í góðu sambandi við systur
sínar tvær og föður sinn, Olaf G. Karlsson tannlækni. Móðir
Jóns, Guðrún Anna Árnadóttir, lést í byijun þessa árs.
í góðu formi Jón er mikill athafnamaður i frítíma sínum sem
hann eyðir þó að mestu með ijölskyldunni. Hann hefur gaman
af veiði og fer þá gjarnan með félögum sínum í Sandá í Þistil-
firði. Hann er ákafur golfari og stundar skvass sem reynir
sannarlega á þolið. Hann er í ágætu formi enda veitir ekki af í
erfiðu og annasömu starfi og öllum þeim trúnaðarstöðum sem
hann hefur verið valinn tíl.
Einhver kynni að halda að maður uppalinn í Vesturbænum
væri KR-ingur. Aldeilis ekki. I þeim efnum slær hjarta Jóns á
Hliðarenda, steinsnar frá flugvellinum. Jón er í Rótarýklúbbi
Reykjavíkur, var þar stallari 2002-2003, en sú staða er ígildi fram-
kvæmdastjóra. Þá er Jón í stjórn Vinafélags Islensku óperunnar,
hefur setið þar frá 2001 og varaformaður frá árslokum 2003.
Hrókur alls fagnaðar Jón þykir afar skemmtilegur í návígi og
sannkallaður gleðigjafi og húmoristí á góðum stundum, tekur
þá gjarnan syrpu á píanóið. Vinir hans segja hann vera afar
traustan og ráðagóðan, sannan vin vina sinna. Hann er reyndar
sagður fastur fyrir og ákveðinn í meira lagi en það hafi aldrei
spillt vináttunni. Enda veður hann ekki yfir fólk, heldur tekur
rökum. Haft er eftir einum vina hans: „Hann er gegnheill,
hreinn og beinn og ekki þekktur af undirferli eða baktjalda-
makki. Það er ekki hans stíll að koma aftan að fólki.“ H3
Hæfur leiðtogi
Viðmælendur Frjálsrar
verslunar eru sammála um
að Jón Karl sé afar hæfur
leiðtogi. Þá er ekki endilega
átt við að hann sé þessi
dæmigerði sterki leiðtogi
heldur hafi hann einstakt
lag á að drífa fólk með sér.
54