Frjáls verslun - 01.04.2004, Side 60
LUNDÚNAPISTILL SIGRÚNAR
Roman Abramovich er þekktastur fyrir að vera eigandi Chelsea. Þess má geta að hann bauð forseta íslands, Ólafi Ragnari, á
leikvöll Chelsea, Stamford Bridge, eftir opinbera heimsókn Ólafs Ragnars til Rússlands í fyrra. Roman er landstjóri í Síberíu.
MYND: GUARDIAN
Hvernig varð
Roman ríkur?
Auðugasti íbúi Englands kom með auðæfin og konuna með sér. Hérlendis spyija þó
ýmsir hvernig Roman Abramovich hafi auðgast jafii hratt og raun ber vitni.
Textí: Sigrún Davíðsdóttír
Með eignir metnar upp á 7,5 milljarða punda (975 millj-
arða króna) hefur Roman Abramovich Chelsea-
eigandi með meiru, fæddur 1966, skotið hertoganum
af Westminster aftur fyrir sig á nýjum lista Sunday Times yfir
auðmenn Bretlands. Roman er í 25. sæti á lista Forbes yfir
helstu auðmenn heims. Auðæfi hertogans standa hins vegar
á gömlum merg, hann á víðfeðmar lóðir í miðborg Lundúna
og rekur ættir aftur í aldir.
Munaðarlaus frá untja aldri Nýgræðingurinn, Roman
Abramovich, varð munaðarlaus á unga aldri, ólst upp hjá afa
og ömmu í Síberíu, fór út í olíusölu um það leyti sem Sovét-
ríkin leystust upp árið 1991 og gerðist svo aðstoðarmaður
Boris Berezovský, sem er nú landflótta í Englandi eftir rann-
sókn á umsvifum hans heima fyrir. Þar með komst
Abramovich inn í innsta hringinn, sem einkavæðingarhrina
Boris Jeltsíns þáverandi forseta varð svo hagstæð. Um tíma
hafði Abramovich meira að segja íbúð í Kreml - gamlir siðir
glatast seint: Stalín gaukaði slíkum sporslum einnig að þeim
sem voru handgengnir honum.
Abramovich var lengi vel óþekkt nafn í heimalandinu,
en nú beinist athyglin líka að honum hér í Englandi. í
nýlegri grein í Guardian er látið að því liggja að hann sé að
koma fé sínu frá Rússlandi og pólitískum hræringum þar
yfir í stöðugra umhverfi um leið og heldur ófögur saga er
sögð af því hvernig Abramovich náði undir sig hluta-
bréfum í olíufýrirtækinu OAO Sibneft, 5. stærsta olíufyrir-
tæki Rússa.
60