Frjáls verslun - 01.04.2004, Síða 61
LUNDÚNAPISTILL SIGRÚNAR
fl fimm börn með honu sinni, Irönu Þeir voru fáir sem vissu
eitthvað um Abramovich í fyrra þegar hann slengdi skyndilega
um 200 milljónum punda á borðið og keypti skuldum vafið
knattspyrnufélagið Chelsea og slangur af leikmönnum. Um
svipað leyti var hann að koma sér fyrir í Englandi, keypti 440
hektara sveitasetur í Sussex, vinsælu héraði fyrir þá sem þurfa
meira en venjulega sumarbústaði. Þar býr Irina kona hans og
börn þeirra fimm. Eignin er metin á 12 milljónir punda, auk
þess sem hann á hús í auðmannahverfinu Belgravia Chelsea.
Til að komast á réttan stað í þjóðfélaginu gekk hann í einn
af einkaklúbbunum hér, Annabel’s í Mayfair. Klúbburinn
lætur ekki mikið yfir sér að utan, nema hvað dyraverðirnir
eru ábúðarmiklir en þarna eru ýmsir auð- og áhrifamenn
meðlimir. Eftir að hafa dælt 200 milljónum í Chelsea svitnar
Abramovich varla af árgjaldinu, sem er 500 pund, um 65
þúsund krónur. Fyrir það fæst aðgangur þegar honum
hentar. Maturinn þykir góður og andrúmsloftið notalegt,
stíllinn og tónlistin í anda 9. áratugarins en mikilvægust eru
auðvitað tengslin, sem þarna geta myndast.
Einkavæðing Jeltsíns Einkavæðingin, sem Jeltsín hrinti af
stað 1992 með loforðum um dreifða eignaraðild hefur nú
hnikast í þann farveg að áætlað er að Abramovich og 22
umsvifamenn, flestir á líku reki og hann, stýri 60 prósentum
af rússneska hagkerfinu - samanlagðar eignir þeirra eru
metnar á um 45 milljarða punda. Þáttur í þessari sögu gerðist
árið 1998 þegar rússneska stjórnin lenti í miklum ijár-
hagskröggum og gat ekki borgað af erlendum lánum og
stjórnin hélt nokkurs konar brunaútsölu á ríkiseignum til að
skrapa saman fé. Hvað gerðist þá og hverjir fengu hvað fyrir
hvaða verð er enn óljóst en ljóst að fáir fengu mikið. Reglur
um tilkynningaskyldu varðandi hlutabréfaeign eru mun ófull-
komnari í Rússlandi en við eigum að venjast og því erfitt að
sjá hve mikið menn eiga. Gagnsæi á markaðnum er því lítið
og þar við bætist að mörg fyrirtæki eru einkafyrirtæki og
upplýsingaskylda þá enn minni.
Saga rússnesku einkavæðingarinnar er öll heldur ókræsi-
leg, nema auðvitað fýrir þá sem á endanum fengu eignirnar.
Einn kaflinn var sala olíu- og orkufyrirtækisins Sibneft 1995
og 1997. Fjármálafyrirtæki Berezovskýs, NFK, þar sem
Abramovich var hægri höndin, var fengið til að sjá um
útboðið. A endanum var Sibneft selt fyrirtæki, sem í ljós kom
að Berezovský og Abramovich áttu sjálfir. Banki, sem átti
hærra boð, fór í mál, en af ótilgreindum ástæðum var kæran
dregin til baka. Abramovich á nú 50 prósent í Sibneft. Undan-
farin misseri hefur Sibneft verið í samrunaviðræðum við
Yukos-olíufélagið, sem síðan hefur verið ákært fyrir svik.
Ríkasti Rússinn á Forbes-listanum er Mikhail Khodorkovský
einn af aðaleigendum Yukos-olíufélagsins. Hann var
hnepptur í varðhald í október og Abramovich og samstarfs-
menn hans eru nú að reyna að losna úr Yukos-samkrullinu.
Roman keypti hlutabréf starfsmanna Annar hiuti af Sibneft-
sögunni er hvernig Abramovich hefur markvisst keypt upp
hlutabréf starfsmanna Sibnefts og annarra. Sibneft borgaði
starfsmönnum ekki laun mánuðum saman, en bauðst svo til
að kaupa hlutabréf starfsmanna, sem af eðlilegum ástæðum
voru ekki í aðstöðu til að mögla um verðið.
Flókið ferli sambræðings Sibneft og Yukos er, samkvæmt
The Russia Journal, meðal annars ábending um minnkandi
áhrif Abramovichs í Kreml. Samband hans við Vladimir Pútín
Rússlandsforseta er ekki eins gott og við Jeltsín á sínum tíma,
Pútín hefur eldað grátt silfur við Rússlandseigendurna. Eins
og örlög Berezovkýs og Khodorkovskýs sýna þá eru aðrir
tímar í Rússlandi nú en þá. Þess vegna eru líka fleiri landar
Chelsea-eigandans á svipuðu róli og hann í Englandi. Allt
bendir til að uppgripatímarnir miklu séu að baki og nú eru
þeir, sem þá eignuðust mest að koma eignum sínum annað,
meðal annars til að losna við pólitísk afskipti heima fyrir.
Stálmaðurinn Alisher Usmanov hefur síðan í fyrra keypt æ
stærri hlut í stálsamsteypunni Corus, forðum breska ríkis-
stálfyrirtækinu og hann lá ekki á því við fjölmiðla að hann
ætlaði sér sæti í stjórninni. Tíðar fréttir í Financial Times um
hann og stuðningur hans frá fyrrum stjórnmálamönnum eins
og David Owen lávarði og fyrrum utanríkisráðherra benti til
að allt myndi ganga eftir. A endanum reis stjórn Corus þó upp
á afturfæturna og hafnaði Usmanov og samþykkti heldur
ekki tilboð hans um að hann drægi sig til baka og tilnefndi
virtan viðskiptamann í sinn stað. Allt benti til að Usmanov
hefði ætlað sér stjórnarsetuna til að ná réttu samböndunum
hér, en það gekk ekki. Peningarnir einir duga ekki alltaf.
Millhouse Capitai Millhouse Capital er eignarhalds- og
ijárfestingarfélag Abramovichs í Englandi, stofnað 2001. I
gegnum það félag á hann 26 prósent í flugfélaginu Aeroflot og
50 prósent í Rusal, rússneska álfélaginu, sem er næststærsta
álfélag í heimi á eftir Alcoa. Félagið var brætt saman árið 2000
61