Frjáls verslun - 01.04.2004, Page 73
Svifflug hefur átt hug og hjarta Steinþórs Skúlasonar, forstjóra SS.
Fæddist með þrá til svifflugs
Sumir fæðast með þrá til flugs og geta ekki annað,“ segir
Steinþór Skúlason, forstjóri Sláturfélags Suðurlands.
„Ég er einn þeirra og ætlaði mér að verða atvinnuflug-
maður en hæfileg litblinda olli því að áætlanir breyttust. I
svifflugi næri ég þrá mína til flugs. Fyrir þá sem ekki hafa
prófað er erfitt að lýsa þeirri tilfinningu að svífa hljóðlaust
milli skýja og elta fuglana. Sambland frelsis og fegurðar fylgir
því að líða um loftin með þessum hætti og horfa á landið og
skýin. Einnig felst mikil áskorun í glímu við náttúruöflin og
að komast leiðar sinnar án vélar.“
Einn þeirra „gömlu" „Svifflug hefur verið aðaláhugamál mitt
að sumri síðan ég var 18 ára sem eru orðin allmörg ár. Ég telst
því einn af „gömlu mönnunum“ í félaginu okkar í dag í reynslu
talið. Svifflugfélag íslands er með frábæra aðstöðu á Sand-
skeiði. Þar stundar samhentur hópur um
100 félaga svifflug en margir eru einnig
virkir í öðrum fluggreinum, svo sem
heimasmíði flugvéla eða eru vélflug-
menn. Við erum einnig með mjög góðan
kjarna atvinnuflugmanna í okkar hópi.
Það er eðli svifflugs að menn verða
að hjálpast að. Það getur enginn flogið
nema með aðstoð annarra til að komast
á loft og koma vélum inn og út úr
skýlum. Það þarf að hafa svolítið það
viðhorf að menn séu að skreppa í sumarbústaðinn þegar þeir
fara upp á Sandskeið. Þetta tekur sinn tíma og menn dytta að
vélum og tækjum á meðan aðrir fljúga og segja sögur af flugi
sem þeir flugu eða eiga eftir að fljúga.
Það hefur verið fjölgun í okkar hópi á undanförnum árum.
Þar spilar eflaust inn í að vélflug er orðið mjög dýrt og menn
hafa fært sig úr því í svifflug. Einnig held ég að hraði nútíma-
lífsins hvetji fólk til að leita tómstunda á öðrum hraða og með
rólegra yfirbragði. Það er algengur misskilningur að það
þurfi sérstaka kjarkmenn til að takast á við lofthræðslu í
svifflugi og að í loftinu leynist göt sem við getum dottið niður
um. Svo er ekki og hvet ég sem flesta til að koma og prófa og
dæma sjálfir hvað þeim finnst.
Lífið snýst um lærdóm, þroska og reynslu.
Upplifa eitthvað nýtt til að verða rikari
að reynslu og finna það sem gerir mann
meiri. Við eigum að nota þetta líf til að
verða allt sem við getum orðið. Fyrir
mér er svifflug hluti af þessari reynslu.
Þegar sól skin á himni finnst mörgum
miður ef skýjahnoðrar taka að myndast
og ský dregur iýrir sólu, en iyrir okkur
svifflugmenn er það merki um gott upp-
streymi og við sjáum í skýjunum ævin-
týri sem bíður eftir þátttakendum." 33
Gott uppstreymi
73