Frjáls verslun - 01.04.2004, Síða 74
Garðvinnan
Hörður Arnarson, forstjóri Marels, og kona hans, Guðný
Hallgrímsdóttir, að koma úr göngu á Uxatind við Skælinga.
Fjallið sést í baksýn.
Jóga,
göngur
og hjól
^■g hef í gegnum tíðina ekki haft fyrir stórum garði að sjá,
■■ en í dag er ég með töluvert stóran garð,“ segir Bjarni
^■Benediktsson alþingismaður. „Það er ætlunin að taka
I garðinn í gegn í sumar og skipuleggja hann upp á nýtt. Eg vil
I halda í þau tré sem prýði er af en grisja annað og eftir atvikum
I gróðursetja nýjar plöntur og tré. Ég verð að viðurkenna að ég
| er ekkert sérstaklega duglegur við garðvinnu og fæ því aðstoð
I við öll stærri verk, en þegar allt er tilbúið vonast ég a.m.k. til
I að geta haldið garðinum sæmilega við. Eins og margir aðrir
I hef ég komið mér upp palli í garðin og þessa dagana erum við
að velja okkur sumarhúsgögnin. Vonandi verður allt tilbúið
I um miðjan júní svo við getum haldið alvöru grillveislur og
I notið blíðu sumarsins til fulls. Fyrir utan góðar stundir í garð-
I inum var ég að vona að ég gæti lækkað golfforgjöfina eitthvað
í sumar, dregið nokkra fiska úr Þingvallavatni, ferðast lítillega
og e.t.v. farið á hestbak. Við höfum farið undanfarin ár nokkrir
vinir í þriggja daga reiðtúr og erum farnir að huga að því fyrir
sumarið. Rúsínan í pylsuendanum í sumar verður samt nýja
barnið sem við eigum von á í ágúst.“ SQ
Til að hafa hemil á streitunni er fátt betra en hreyfing.
Hver hreyfingin er skiptir rninna máli og hentar sitt
hverjum.
„Ég hreyfi mig mikið og það fer eftir árstíma og aðstæðum
hvernig sú hreyfing er,“ segir Hörður Arnarson, forstjóri
Marels. „Ég nota líkamsræktarstöðvar til að fara í spinning og
að lyfta og það er hluti af mínum lífsstíl. Á sumrin er ég mikið
úti við og geng þá talsvert. Ég hjóla líka mikið á ijallahjóli yfir
sumarið. Á veturna spila ég körfubolta með „old boys“ öðru
hvcrju."
Hörður segir ijölskylduna ganga saman og fara í að
minnsta kosti eina langa göngu á hverju sumri. Yfirleitt tekur
gönguferðin u.þ.b. vikutíma.
„Við förum ákveðnar gönguleiðir og þetta árið er ferðinni
m.a. heitið í Núpsstaðaskóg og Skaftafell ásamt fleiri stöðum
og þetta er tilhlökkunarefni á hveiju ári. Ég lít á hreyfingu
sem lykil að streitustjórnun, a.m.k. hvað sjálfan mig varðar en
ég fer líka í jóga af og til. Það er allt öðruvísi hreyfing og
æfingar og vinnur vel með hinu.“ [Jj
74