Frjáls verslun - 01.04.2004, Qupperneq 80
Styrk stoð
til framtíðar
Steypustöðin ehf. hefur framleitt steinsteypu í rúmlega 50
ár og hefur á þeim tíma byggt upp mikla sérþekkingu á
öllu því sem við kemur steypu eða tengdum vörum sem
skilar sér ávallt til viðskiptavina í formi enn betri þjónustu.
Steypustöðin ehf. í Reykjavík sameinaðist um mitt síðasta ár
Steypustöð Suðurlands ehf. á Selfossi og Steinsteypunni ehf. í
Hafnarfirði og eru þau nú rekin undir nafni Steypustöðvarinnar
ehf. „Flestir starfsmenn Steypustöðvarinnar ehf. hafa unnið í
faginu árum og áratugum saman og hafa mikla þekkingu á
steypu og tengdum efnum og leggjum við ofurkapp á að skapa
gæðalausnir með okkar viðskiptavinum," segir Benedikt Guð-
mundsson, sölustjóri tyrirtækisins.
„Um mitt síðasta sumar var sett upp ný helluverksmiðja þar
sem unnið er með nýja tækni,“ segir BenedikL „Þessi nýja verk-
smiðja er nánast að öllu leyti tölvustýrð sem skapar mun meiri
nákvæmni í framleiðslunni en áður hefur þekkst. Aðferðin er í
stuttu máli þannig að hellurnar eru lagskiptar, eira lagið er tals-
vert þynnra en undirlagið og er úr norsku kvartsi. Hægt er að
setja í það hvaða lit sem er, það er mjög slitsterkt og þétt og
býður upp á gríðarlega möguleika umfram hefðbundnar hellur.
Með því að nota ofursterkt kvarts í yfirborð hellunnar
sparast umtalsverðir fjármunir úr veski viðskiptavinarins því
mikill kostnaður liggur í því að heillita helluna. Um 10% af
heildarverði litaðrar hellu sparast með þessu móti. Áður þurfti
að heillita hellur þar sem slit og veðrunarþol olli því oft að þær
urðu ljótar og uppétnar þrátt íýrir ungan aldur og liturinn hefði
fljótt farið af þeim ef þær væru ekki gegnlitaðar.
Með því að tvískipta hellunum á þennan máta er hægt að
bjóða hágæða litaðar hellur með þéttara og sléttara yfirborði
en nokkurn tímann hefur
áður sést hérlendis og á sam-
keppnishæfu verði og segir
Benedikt að dýrustu hell-
urnar séu umtalsvert ódýrari
en þekkst hefur hér til þessa
þrátt fyrir rándýr gæðaefni í yfir-
borði sem þekkist vel um alla Evrópu,
„Nú getum við framleitt hellur eftir óskum
viðskiptavina okkar og þeir sem vilja t.d. hafa
sérstaka steina eða ákveðna liti 1 hellunum
geta fengið það,“ bætir hann við. „Það er
ódýrara að framleiða litaðar hellur þegar
aðeins þarf að setja lit í þunnt lag en þegar
V\.
Benedikt Guðmundsson, sölustjóri Steypustöðvarinnar ehf.
þarf að heillita þær eins og áður var gert. Þó litarefnið og
kvartsið sé dýrt, þá er þetta samt ekki dýrara í heildina heldur
en gömlu aðferðirnar."
Hellurnar eru steyptar úr efni sem er mjög þurrt af steypu
að vera og þegar búið er að móta þær er hægt að taka þær
nær strax upp. Þurrktími er sáralítill en Benedikt segir það
einmitt undirstöðu þess að hellurnar séu svo sterkar og
endingargóðar. „Með þessari aðferð sparast tími og peningar,
bæði fyrir framleiðandann og neytandann og er varan vægast
sagt glæsileg í alla staði.“
Keyrt á yæðum Steypustöðin ehf. leggur mikið upp úr því
að framleiða og selja gæðavörur og til viðbótar við hellurnar
er boðið upp á allar gerðir af steypu og múrvörum.
„Yið erum að opna nýja múrverslun hér á Malarhöfða en
þar mun fást allt sem hugsanlega er þörf á til múrverks,"
segir Benedikt.
„Við verðum með sement, flotmúr, grunna, flísalím,
steinlím og allar epoxýlausnir ásamt verkfærum, bæði til
leigu og sölu. Starfsmenn okkar búa yfir gríðarlegri
þekkingu og rejmslu og geta aðstoðað viðskiptavini við
val á réttum efnum í hvert einstakt
verk. Það þykir orðið sjálfsagt að
hafa fallegt í kring um sig og fólk vill
geta valið fallegar og vandaðar vörur
bæði úti og inni og treyst á endingu
þeirra, og þar kemur Steypustöðin
ehf. einmitt sterkt inn.“ S!j
Steypustööin ehf. er framsækið
þjónustu- og framleiðslufyrirtæki
sem skapar ásamt viðskiptavinum
sínum verðmætar gæðalausnir.
80