Frjáls verslun - 01.04.2004, Blaðsíða 95
Jón Pétursson, stöðvarstjóri hjá Esso á Ártúnshöfða
Grillið fylgir sumrinu rétt
eins og vor fylgir vetri.
Hjá Esso er gott. úrval af
grillum og þau koma
samsett til kaupandans.
Esso:
Góð grill
AEssostöðinni á Artúnshöfða er líf og ijör allan sólar-
hringinn. Stöðin er frábærlega vel staðsett og auðvelt að
aka inn að henni þegar farið er út úr bænum eða á
heimleið - eigi maður heima í efri byggðum borgarinnar eða
fyrir utan. Vöruúrvalið er gott og flest hægt að fá sem mann
vanhagar um.
„Við leggjum áherslu á að vera þægindavöruverslun í
bland við hefðbundna bensínstöð og matsölustað," segir Jón
Pétursson, stöðvarstjóri. „Hingað kemur fólk í ýmsum erinda-
gerðum, kaupir bensín, fær sér samloku, sest niður og
drekkur kaffibolla og lítur í blað og svo auðvitað til að kaupa
grill. Grillin okkar eru nefnilega frábær og við skilum þeim
samsettum til kaupenda á höfuðborgarsvæðinu, Reykja-
nesbæ og á Akureyri. Förum með þau eftir kl. 17 alla daga -
nema sunnudaga. Þessi þjónusta mælist vel fyrir, enda miklu
betra að fá grillið alveg tilbúið heim heldur en að byija á því
að eyða tíma í að skrúfa það saman.“
Hjá Esso hafa lengi fengist grill frá Fiesta og segir Jón þau
hafa sýnt sig endast vel og vera eigendum sínum til ánægju í
mörg ár. A síðasta ári var farið að flytja inn nýja tegund,
Outback, sem er í þremur stærðum, eitt í venjulegri stærð og
tvö stærri og veglegri og með trégrind. „Þannig má segja að við
höldum í gamlar hefðir með því að fiytja inn Fiesta-grillin en
séum samt að feta nýjar brautir með því að selja Outback-
grillin.“
Grill og rigning Jón segir fólk orðið grilla í öllum veðrum og
að smárigning skipti engu. „Það hindrar mig ekkert í því að
grilla nema helst rok,“ segir hann. „Mér þykir grillmatur góður
hjá Esso
og sérstaklega lambahryggvöðvi sem ég grilla oft.“ Með
fersku salati, kartöflum og mjög góðri sósu sem konan mín
gerir, sem er sýrður ijómi, hvítlaukur og ferskur engifer."
Það skemmir ekki að með hverju nýju grilli kemur sérstök
grillbók, „Grillveisla í garðinum", en í henni eru fjölmargar
góðar grillhugmyndir og uppskriftir. Jón segir bókina
skemmtilega og uppskriftirnar fjölbreyttar og ekki verra að
hafa myndirnar þegar verið er að matreiða.
Ferðagasgrill Það er ekki nóg að eiga grill heima heldur þarf
að vera til grill sem taka má með sér í ferðalagið. „Við vorum
að fá nýja tegund sem hentar vel heima og bijóta má saman og
fara með í ferðalag," segir Jón. „Þetta hentar vel þeim sem
ferðast með tjald og hjólhýsi eða húsbíla því það fer lítið fyrir
grillinu en það er ekki síðra en önnur grill þegar búið er að
setja það upp aftur. Með þessu grilli er hægt að matreiða lúxus-
máltíðir hvar sem er.“
Kaffibarinn Á Essostöðinni eru auk verslunarinnar tveir veit-
ingastaðir, Subway og hamborgarastaður. Þar er einnig nýr
kaffibar þar sem hægt er að fá frábært kaffi frá Kaffitári og
nýbakað meðlæti. Það er notalegt að setjast niður og ná úr sér
streitu dagsins á heimleið með kaffisopa og góðgæti, eða
skella í sig rótsterku kaffi áður en lagt er í langferð. Þeir sem
vilja geta tekið kaffið með sér og drukkið á leiðinni úr einnota
glösum eða bílaglösum.
Og svo er auðvitað hægt að fá pylsur, samlokur, brauð og
allt annað sem hugsanlegt er að vanti, auk leikfanga, veiðivara,
bóka og blaða. Sem sagt - á Esso er gott að stoppa. IU
95