Frjáls verslun - 01.04.2004, Síða 102
Texd: Hilmar Karlsson Myndir: Geir Ólafsson
Ferðaskrifstofa Islands rekur í]ölbreytta starfsemi á sviði
ferðalaga. Má þar nefna Úrval Útsýn, sumarleyfis- og
skemmtiferðir, Plúsferðir og Ferðaskrifstofu íslands, við-
skiptaferðir. Anna Haraldsdóttir er deildarstjóri viðskiptaferða.
„Markmið okkar er að veita þeim sem ferðast í viðskipta-
erindum bestu þjónustu. Meðal viðskiptavina okkar eru mörg
fyrirtæki stór og smá, ráðuneyti og ríkisstofnanir. Ferðaskrif-
stofan gerir viðskipta- og þjónustusamninga við fyrirtæki og
stofiianir. I þessum samningum skuldbindum við okkar til að
finna hagstaeðustu fargjöld miðað við lengd ferðar. Þetta geta
; verið bæði venjuleg fargjöld eða á Netinu. Viðskiptavinurinn
j velur síðan ferðamátann. Við erum lítið með hópa, það er sér-
I deild innan íyrirtækisins sem sér um þess háttar, til dæmis að
1 bóka ferðir á stórar sýningar."
Breytingar á umhverfi Miklar breytingar hafa orðið á
1 umhverfinu sem Anna starfar í. „Forsendur
viðskiptaferða breyttust mikið með tilkomu
Ilnternetsins og einnig með tilkomu flug-
H félagsins Iceland Express. Fram til þess
h höfðum við tekjur okkar eingöngu af
I umboðslaunum flugfélaga. Lággjaldafélög
| greiða hins vegar ekki umboðslaun þannig
| að við þurftum að finna aðra leið til að
| standa undir rekstrinum. Við settum því á
I þjónustugjöld og viðskiptavinir okkar hafa
I fullan skilning á því.
Við gerðum nýjan samning við ríkið um
I að annast bókanir á Netinu. Um leið skuld-
I bundum við okkur að finna hagstæðustu
I fargjöldin í samráði við farþegann. Hefur
I þetta lýrirkomulag gengið vel.
Einnig eru mörg einkafýrirtæki í við-
I skiptum við okkur. Það hefur sýnt sig að
I öll þau góðu sambönd sem við höfum við
hótel og erlendar bókunarskrifstofur reynast fýrirtækjum
mjög vel þegar á reynir. Við njótum þess einnig að hafa aðgang
að öllum öðrum deildum fýrirtækisins og ég álít að við getum
leyst úr öllum vandamálum sem upp kunna að koma á sem
bestan og einfaldastan hátt.“
Helstu viðskiptalöndin Starf Önnu og annarra sem starfa í
viðskiptaferðum hjá Ferðaskrifstofu íslands byggist á að koma
fljótt með ferðatilhögun: „Okkar viðskipti fara að langmestu
leyti fram í gegnum síma og á Netinu. Starf okkar byggir á
góðri skipulagningu og góðu samráði við farþegann. Við erum
sjálfstæð ferðaskrifstofa en ekki flugfélag, það gerir okkur t.d.
kleift að gefa út farseðla með mörgum flugfélögum."
Hver skyldu svo helstu viðskiptalöndin vera? „Til skamms
tíma voru Norðurlöndin helstu áfangastaðir okkar. Norrænt
samstarf er mikið og tíð ferðalög vegna þess. Nú liggja hins
vegar allar leiðir til Brussel. Margir eiga einnig erindi til Genfar
þar sem eru margar alþjóðastofnanir. Mikið er um heimsóknir
viðskiptavina okkar til annarra landa í Evrópu. Mörg týrirtæki
eiga viðskiptaerindi út íýrir Evrópu, svo
sem til Austurlanda tjær og Astralíu og að
sjálfsögðu til Bandaríkjanna."
Framtíðin Anna segir erfitt að spá íýrir
um hvort breytingar verði á viðskipta-
ferðum: „Umhverfið breyttist mikið með
tilkomu Netsins og farið var að bjóða lág
flugfargjöld sem margir nýttu sér. Eg held
að þetta sé að breytast aftur. Þeir sem
ferðast mikið í viðskiptaerindum þurfa oft
sveigjanleika og að geta unnið á ferðum
sínum. Fyrirtækin vilja frekar borga hærri
fargjöld en að vita af dýrmætum starfsmanni
á einhveiju hóteli að bíða eftir fari. Það er
samt týrst og fremst okkar skylda að finna
hagkvæmasta ferðamátann miðað við óskir
farþegans.“H!j
Anna Haraldsdóttir, deildarstjóri
£srrða hw
Þessi deild er sterk - og annast viðskiptaferðirnar hjá Ferðaskrifstofu íslands.
„Markmid okkar er að
veita þeim sem ferðast
í vióskiptaerindum
bestu þjónustu.“
Feróaskrifstofa íslands:
Skipulagning og góð sambönd