Frjáls verslun - 01.04.2004, Side 104
Islendingar ferðast gjarnan með Ijöl-
skyldunni og því er mikilvægt að
gæta þess að allir finni eitthvað við
sitt hæfi. I nágrenni hótelanna eru oft
fallegar og góðar gönguleiðir, t.d. á
Hallormsstað, þar sem er stærsti
skógur landsins, einnig á Húsavík,
Bifröst í Borgarfirði og víðar.“
Susanne Götzinger, sölu- og markaðsstjóri Fosshótela.
Fosshótel:
Fjölskylduvæn
Hvort sem ferðast er með eða án fjölskyldunnar, er Foss-
hótel góður gistikostur. Hótelin bjóða upp á mismunandi
aðstöðu og eitt þeirra, Fosshótel Höfði í Reykjavík, er sér-
staklega barnvænt og býður litlum gestum upp á þemasængur-
föt, barnabækur og jafnvel gullfisk í herbergið. Nokkur hótel-
anna leyfa gestum að vera með hunda, svo sem Fosshótel Húsa-
vík og Fosshótel Nesbúð.
Fosshótel er keðja 12 hótela sem leggur metnað sinn í að
skapa vingjarnlegt og hlýlegt andrúmsloft. Styrkur hótelanna
felst einkum í mismunandi og ijölbreyttum aðbúnaði en hægt er
að velja um sumarhótel sem eru heimavist að vetrarlagi og upp
í 3ja stjörnu hótel.
„Þó að hótelin séu mismunandi eiga þau þó eitt sameigin-
legt,“ segir Susanne Götzinger, sölu- og markaðsstjóri Foss-
hótela, „en það er góð þjónusta. Slagorð okkar er „vinalegri um
allt land“ og það er okkur mikilvægt að gestum okkar líði vel á
hótelum okkar og geti slakað þar á.“ Öll hótelin hafa herbergi
með baði en einnig er hægt að fá ódýrari herbergi sem eru með
sameiginlegt bað. Það segir Susanne vera vinsælt meðal
Islendinga á ferðalögum. „Þau hótel sem bjóða hvort tveggja
eru Höfði í Reykjavík, Bifröst, Aning á Sauðárkróki, Laugar í
Reykjadal og Nesbúð
á Nesjavöllum," segir
Susanne. „Við tökum
vel á mótí barnafjöl-
skyldum og gerum vel
við litlu gestina okkar
og reynum að láta
þeim líða vel.
104
Góður matur Ekki má gleyma
matnum. A öllum Fosshótelunum
nema Höfða í Reykjavík eru veitinga-
hús sem bjóða mat við allra hæfi.
„Það er oft rætt um verð á
hótelgistingum og þær bornar
saman en það er ekki auðvelt,"
segir Susanne. „Iistaverð á sumrin
er misjafnt eftír staðsetningu og stærð, en gestum okkar til
þæginda bjóðum við afsláttarkort sem heitir Skanplus og fá
handhafar slíks korts 1040% afslátt frá listaverði og 6. nóttina
fría. Kortið gildir einnig á um 170 hótelum á Norðurlöndum
og þannig getur eigandinn til dæmis gist eina nótt á Reyðar-
firði, eina á Fosshótel Vatnajökli á Hornafirði, eina á Fosshótel
Hlíð í Ölfusi, eina á Fosshótel Lind í Reykjavík, eina í Kaup-
mannahöfn og átt fría nótt í Osló. Þessi kort eru óhemju
vinsæl og út á þau fást ýmis sértilboð að auki. Mörg fýrirtæki
kaupa slík kort tíl að gefa starfsmönnum sínum.“
Samningar við fyrirtæki Mörg fyrirtæki hafa samið við Foss-
hótel um sérkjör sem fyrst og fremst eru hugsuð fyrir viðskipta-
ferðir þó að auðvitað megi nota þau starfsmönnum til hagsbóta.
VR og Efling hafa einnig gefið út orlofsávísanir sem gilda á
Fosshótelum, auk þess hafa félagar í VR aðgang að sérstöku
tílboði, „á elleftu stundu“, sem er fyrir þá sem ákveða með mjög
stuttum fyrirvara að fara í ferðalag."
Fosshótel eru í samstarfi við e-kortið og oft eru sértilboð í
gangi í tengslum við það. Einnig fá eldri borgarar afslátt, svo og
handhafar ISIC stúdentakortsins.
„Eg vil líka benda á
að hægt er að bóka
hótel beint á Netinu, á
slóðinni www.foss
hotel.is og þar eru oft
góð tilboð," segir
Susanne að lokum.Œi