Frjáls verslun - 01.04.2004, Síða 111
VINUMFJOLLUN SIGMARS B
Tilvalið er að hafa flösku af Calvados með sér í ferðalagið.
leður og austrænt krydd. Bragðið er mikið og þétt, ljúft bragð
af sveskjum, kanel, negul og svörtum pipar. Þetta er rétta
vínið með glóðarsteiktum mat, lambi og jafnvel villibráð.
Dýrari gerð af þessu sumarvíni er De Martino Carmenere
Reserva De Familia kr. 2.800,-. Þetta er ljómandi vín og eitt
best geymda leyndarmálið í verslunum A.T.V.R. i ár. Vín-
gerðarmenn i Suður Frakklandi og víðar eru nú farnir að
gera tilraunir með þessa athyglisverðu þrúgu og verður
spennandi að sjá hver útkoman verður. De Martino
Carmenere frá Maipo dölunum í Chile er aldeilis magnað vín
sem svo sannarlega er hægt að mæla með.
Gat í magann Þegar Normandíbúar setjast að veislu-
borðum hafa þeir flösku af Calvados innan seilingar. I miðri
máltíðinni fá veislugestir sér svo staup af Calvados og kallast
það „gat í magann“. Staup af Calvados þykir nefnilega bæta
meltinguna. Calvados er vinsæll drykkur í Norður Frakk-
landi. Calvados er eplabrennivín sem framleitt er eftir
gömlum hefðum. A haustin eru eplin tínd af trjánum og þeim
komið fyrir á þurrkloftum þar sem þau eru geymd í nokkurn
tíma, iðulega fram að áramótum. Þá er safinn pressaður úr
eplunum. Með því að geyma eplin í einhverja mánuði verður
eplasafinn bragðmeiri. Eplasafinn er svo geijaður og að
lokum eimaður og þá verður til eplabrennivínið Calvados.
Eins og áður sagði bætir Calvados meltinguna og svo má
dreypa á honum með góðu kaffi rétt eins og koníaki. Kjörið
er að hafa með sér flösku af Calvados í sumarbústaðinn eða í
ferðalagið. Ef kalt er úti og hrollur í mannskapnum er tilvalið
að fá sér staup af Calvados. I verslunum A.T.V.R. er frekar lítið
úrval af þessu ljúffenga eplabrennivíni frá Norður Frakklandi.
Meðal þeirra tegunda af Calvados sem hægt er að fá er Bern-
eroy. Þetta er mildur Calvados með ljúfu frískandi eplabragði.
Á.T.V.R. ríkísstofnun til fyrirmyndar 2004 át.v.r. hefur verið
valin ríkisstofnun til fyrirmyndar árið 2004. Fjármálaráðherra
les greinilega Fijálsa verslun. Nú fyrir skömmu taldi ég hér í
vínpistli mínum Á.T.V.R. vera opinbera fyrirtæki ársins. I
niðurstöðum valnefndar segir: ,Á.T.V.R. er þjónustufyrirtæki
sem farið hefur í gegnum miklar breytingar á undanförnum
árum og gerbreytt ímynd sinni með markvissum aðgerðum.“
Eg vil nota tækifærið og óska starfsfólki ÁT.V.R til hamingju
með þessa vegsemd. Þá skora ég á stjórnendur fyrirtækisins
að sofna ekki á verðinum. Mér sýnist nefnilega að senn komi
að því að endurmeta þurfi stefnu fyrirtækisins hvað varðar val
vína sem koma í reynslusölu. Innflytjendur virðast vera farnir
að aðlaga sig kerfinu. Áhugaverðum vinum sem kosta yfir kr.
1.500,- virðist fækka. Flóra ódýrra borðvína eykst að sama
skapi. Dæmi um úrvalsvín sem er í mikilli hættu að detta út er
Brundlmayer Reid Kaferberg Gruner Veltliner kr. 2.740,-
Þetta er aldeilis frábært vín, eitt af áhugaverðari vínum í vín-
búðum ÁT.V.R. Ef þetta úrvalsvín dettur út, verður enginn
Gruner Veltliner til í búðunum. Það væri miður, því þessi
austurrísku þurru og fersku vín hafa vakið verulega athygli og
náð miklum vinsældum í vínheiminum. Ekki væri úr vegi að
hafa fleiri en einn flokk, - sérflokkur gæti verið fyrir úrvalsvín
í dýrari kantinum. Ekki yrði gerð sú krafa að þessi vín yrðu
seld í miklu magni til að komast í kjarna eða þá að þau yrðu
aðeins höfð til sölu í Heiðrúnu og Kringlunni. 11]
Sigmar B. Hauksson mælir með eftirtöldum vínum:
Hvítvín
Brundlmayer Reid Kaferberg Gruner Veltliner kr. 2.740,-
Valle Pinot Grigio kr. 1.490,-
Banfi le Rime Chardonnay Pinot Grigio kr. 1.190,-
Cloudy Bay Sauvignon Blanc kr. 1.990,-
Rósavín
Domaine de Barbrarossa kr. 1.550,-
Lambrusco Emilia Rose kr. 690,-
Rauðvín
De Martino Carmenere Reserva de Familia kr. 2.800,-
De Martino Carmenere kr. 1.260,-
Calvados
Berneroy kr. 3.360,-
111