Frjáls verslun - 01.04.2004, Blaðsíða 113
Arnþór Halldórsson tók við af Jóhannesi Georgssyni sem
framkvæmdastjóri lceland Express þann 6. apríl síðastliðinn.
Mynd: Geir Ólafsson
Dæmi um áfangastaöi
sem hægt er aö fljúga til
meö öðrum lágfargjaldafélögum
frá London (Stansted)
og Kaupmannahöfn.
• Téngiliiiij frj LONDON/STANSTED
• Tengiflug fr„ KAUPMANNAHÖFN
• Adrar borgir
upp á tengiflug. Veitingar eru
seldar og flugfreyjur eins fáar
og reglur leyfa. Fyrir vikið eru
þessi félög oft nefnt „no-frills
airlines." Lágfargjaldafélögin
hafa ekki síst náð góðum
árangri meðal viðskiptafar-
þega, vegna þess að þau hafa
numið sunnudagaregluna úr
gildi.
Fyrsta árið var Iceland
Express með eina Boeing
737 þotu í notkun og flaug
einu sinni á dag til hvors
áfangastaðar. Þann 1. apríl
síðastliðinn bættist önnur B-
737 þota við hjá félaginu og
er nú flogið tvisvar á dag til
beggja staða. Við þessa tvö-
földun á framboði jókst eftir-
spurn að sama skapi og í
aprílmánuði var fjölgun far-
þega 100% frá april í fyrra.“
Arnþór Halldórsson tók
við af Jóhannesi Georgssyni
sem framkvæmdastjóri
Iceland Express þann 6. apríl
sl. Arnþór er 43 ára gamall.
Hann lauk námi í bygginga-
verkfræði frá Háskóla
Islands og mastersgráðu í
verkfræði og MBA prófi frá
University of Washington í
Bandaríkjunum. Að loknu
Antbór Halldórsson,
hjá lceland Express
Texti: ísak Örn Sigurðsson
Iceland Express er nýkomið
yfir á sitt annað rekstrarár.
Fyrirtækið byijaði að selja
farmiða í janúar 2003 og fyrsta
flugið til London og Kaup-
mannahaihar var í lok febrúar.
Iceland Express er fyrsta
íslenska lágfargjaldafélagið að
hætti þeirra félaga sem hafa
verið að hasla sér völl í
Evrópu og Bandaríkjunum
undanfarin ár. Rekstur lágfar-
gjaldafélaganna byggir á
lækkun kostnaðar umfram
það sem hefðbundnu flug-
félögin ráða við,“ segir
Arnþór Halldórsson, fram-
kvæmdastjóri Iceland
Express.
„Þannig er dreifingar-
kostnaður lægri vegna þess
að salan fer að mestu leyti
fram á Netinu og farmiðar eru
rafrænir. Flugvélar eru full-
nýttar með því að hafa aðeins
eitt farrými og ekki er boðið
námi sinnti hann verkfræði-
störfum hérlendis og
erlendis, en var ráðinn 1997
til að vinna að stofnun og
uppbyggingu Tals. I árslok
1999 var Arnþór ráðinn fram-
kvæmdastjóri Mobilestop.
com með aðsetur í Miami og
réðst síðan til starfa sem
framkvæmdastjóri hjá
Western Wireless
International og starfaði þar
til ársloka 2002. Frá 2003
hefur Arnþór verið sjálfstætt
FOLK
starfandi rekstrarráðgjafi og
einn af stofnendum og eig-
endum Behrens Capital,
sem stundar ijármálaráðgjöf.
Eiginkona Arnþórs er
Hulda B. Pálsdóttir og sam-
tals eiga þau 4 börn. Hulda
er viðskiptafræðingur og
starfar sem viðskiptastjóri
hjá Islandsbanka. Saman
eiga þau Arnþór og Hulda
tvö börn, Önnu Rakel, sem
er fædd í september 2002 og
Ólöfu Thelmu, sem er fædd í
mars sl. Fyrir á Arnþór son,
Halldór, sem er fæddur 1991
og Hulda á dótturina,
Söndru, sem er fædd 1988.
„Sameiginleg áhugamál
okkar Huldu leiddu til þess
að við kynntumst, við
stunduðum bæði langhlaup
um margra ára skeið og
kynntumst í gegnum svokall-
aðan Ö1 hóp, skokkhóp sem
hafði þann sið að hittast á
sunnudagsmorgnum og
hlaupa saman 20-25
kílómetra. Við hjónin höfum
tekið okkur tímabundið frí frá
hlaupunum en stefnum
ótrauð að því að taka þráðinn
upp að nýju á komandi sumri.
Utivist og skíðamennska
hafa einnig verið ofarlega á
baugi þegar áhugamál eru
annars vegar. Við hjónin
stundum tjallgöngur, bak-
pokaferðalög, jöklaferðir auk
þess að ferðast um hálendið á
tjallahjólum, bæði hér heima
og í Washingtonfylki í Banda-
ríkjunum þar sem við
bjuggum um skeið. Was-
hingtonfylki er paradís fyrir
þá sem unna útiveru og er
ekki laust við að við söknum
þessarar útivistarparadísar.
Um þessar mundir erum við
hjónin að leggja drög að hjóla-
ferð nk. haust, liklega til Dan-
merkur og er ætlunin að hjóla
með litlu stelpurnar í kerru
auk farangurs og gista á tjald-
stæðum," segir Arnþór. 33
113