Ármann - 01.04.1959, Síða 23
af þeim mönnum, sem eru ómissandi
fyrir hvert íþróttafélag. Þá hefur Jó-
hann verið formaður frjálsíþrótta-
deildarinnar síðastliðin sjö ár, og skal
þeim sagt, scm ckki vita, að hann hef-
ur í því starfi reynzt svo frábærlega
vel, að frjálsíþróttamenn félagsins
telja hann sinn annan föður, ef svo
mætti segja.
Við spyrjum Jóhann nú um „syni“
hans, frjálsíþróttamennina, og gefum
honum nú orðið.
Ármann hefur alið margan afreks-
manninn á sviði frjálsíþróttanna. Þeir,
sem á seinni árum hafa borið merki fé-
lagsins hæst, eru þeir Guðmundur Lár-
usson, sem enn á Islandsmet í 400 m
hlaupi, Hörður Haraldsson, sem var
einn bezti spretthlaupari, sem íslend-
ingar áttu um skeið, og Hallgrímur
Jónsson, sem enn er nær ósigrandi í
kringlukasti. Þá eru ótaldir þeir Þórir
Þorsteinsson, sem er kunnur fyrir hið
frábæra keppniskap sitt og síðast en
Forseti Islatuls, herra Ásgeir Ásgeirsson, afbendir Herdi Haraldssyni forsetabikarinn.
FRÁ FRJÁLSÍÞRÓTTAMÖNNUM
,,J*4öíum aldrei boðið mÖHHum
gylliboð"
Við Jóhann Jóhannesson, formaður
frjálsíþróttadeildar Ármanns, áttum
fyrir skömmu tal saman, og fara hér á
eftir glefsur úr því viðtali.
Hver eru þín fyrstu kynni af Ár-
manni? spyrjum vér Jóhann.
Það mun hafa verið 1928, að ég
gekk í Ármann og æfði glímu með fé-
Iaga mínurn. En þá viidi svo til, að
hann slasaði sig, og þá dró ég mig í
hlé frá glímunni og hef aldrei iðkað
hana síðan.
Hættir þú þá alveg afskiptum af
íþróttum?
Nei, síður en svo. Ég var í Val og
æfði þar knattspyrnu, lfkt cg fleiri fé-
lagar mínir. Þá var það eitt sinn, að
Jens Guðbjörnsson var staddur uppi á
íþróttavelli, þar sem ég var að hlaupa.
Og hann spyr mig, hvort ég vilji taka
þátt í 5000 m hlaupi, sem Ármann
stóð fyrir. Skipti það engum togum, en
ég fór í hlaupið og vann.
Við spyrjum hann nú nánar um
íþróttaferil hans, en hann vill sem
minnst um það tala, enda hlédrægur
maður. Þó getum við veitt það upp,
að hann var oft Islendsmeistari í 110 m
grindahlaupi, 1500 m hlaupi og 800 m
hlaupi. Það er ekki nóg með það, að
Jóhann hafi verið einn af beztu frjáls-
íþróttamönnum Ármanns á sínum
tíma, heldur er hann einn af þeim
mönnum, sem ekki láta sér nægja að
eiga góðar endurminningar frá þeim
árum, sem þeir sjálfir stóðu í eldinum.
Hann sat í aðalstjórn félagsins í 15 ár
og tók þátt í starfi félagsins sem einn
Armann
23