Morgunn


Morgunn - 01.06.1994, Page 25

Morgunn - 01.06.1994, Page 25
MORGUNN Þó svo að tilraunir spíritista hafi verið kenndar við vísindi, jafnvel raunvísindin, þá hefur seinni tíma þróun þessarar starfsemi sýnt að þessar sálarrannsóknir em áhugaverðar út frá sjónarhomi trúarbragðafræðanna. Það væri í raun nauðsynlegt að greina það nánar, hvemig hugtökunum þekkingu og vísindi var beitt við þessar sálarrannsóknir sem öðmm þræði vom trúarlegs eðlis. Sumir stunduðu þessar rannsóknir eingöngu í nafni raunvísinda, en aðrir vildu fyrst og fremst verja trú sína með vísindalegum rökum. Aðgreining milli trúar og vísinda var því ekki alltaf á hreinu. Það kom fyrir að vísindalegum aðferðum var beitt á vemleika sem í eðli sínu er trúarlegur og trúarlegum skýringum beitt á fyrirbæri sem vom efnisleg. Miðlar vom stundum staðnir að svikum og sálarrannsóknimar gengu mikið út á að fyrirbyggja þau. Þessi glíma trúar og vísinda var tímanna tákn um aldamótin hér á landi og varðandi trúailega þáttinn þá var Haraldur Níelsson leiðandi maður. Hann var vígður prestur og þjónaði dóm- kirkjusöfnuðinum í Reykjavík nokkra mánuði árið 1909, en varð að segja því starfi lausu vegna veikleika í hálsi, sem gerði honum erfitt um vik að flytja ræður. Þessi veikleiki var tímabundinn og Haraldur hefur orðið þekktur einmitt fyrir starf sitt sem predikari. Hann þjónaði einnig sem prestur á holdsveikraspítalanum að Laugamesi frá árinu 1908 til æviloka. Framlag Haralds til spíritismans Margir telja Harald meðal merkustu kennimanna í íslenskri klerkastétt. Það er ekki ofsögum sagt að enginn íslenskur predikari á fyrri hluta 20. aldar hafi haft meiri áhrif á þjóð sína en séra Haraldur. Segja má að það predikunarstarf sem hann hóf í Fríkirkjunni í Reykjavík árið 1914 hafí átt mikinn þátt í þeim vinsældum og áhrifum sem spíritisminn hafði meðal íslendinga fram á okkar daga. 23

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.