Morgunn - 01.06.1994, Page 35
MORGUNN
guðanna var t.d. að finna guðleysi sem sjaldan eða aldrei hafði
verið boðað íslenskri alþýðu á jafn afgerandi hátt. Haraldur brást
hart við þessari ádrepu gegn kristnum dómi og birti harðorðan
ritdóm um ljóðabókina í tímaritinu Verði Ijós í ársbyrjun 1898.
Hann segir þar að alda vantrúar rísi óvenjuhátt á íslandi um þær
mundir. Hann skrifar af þessu tilefni:
„ Þeir sem kristnir em meira en að nafninu til og vilja vera það,
hljóta nú að sjá, að það er full ástæða til þess að gera alvöru af
kristindóminum og að kristindómurinn nú verður að vera barátta
og stríð.“
Rétt fyrir aldamótin var því kominn fram hópur guðfræðinga
og presta sem vildu skera upp herör gegn gagnrýni á helga dóma
trúarinnar.
Þorsteinn Erlingsson blandaði sér í þær deilur sem út af
áðumefndum ritdómi Haralds spunnust og taldi sig, þó trúlaus
væri, ekki vera óvin Krists né andstæðing siðferðisboðskapar
kristninnar. Ut af ritdóminum varð ritdeila milli Haralds og
Guðmundar Hannessonar læknis, en þeir höfðu verið samtímis við
nám í Kaupmannahöfh. Haraldur segist lengi hafa vitað Guðmund
lang andvígastan kristinni trú af öllum löndum sínum að Þorsteini
Erlingssyni einum frátöldum, en Þorsteinn hafði auk þess snúist til
fýlgis við sósíalismann sem þá var vart þekktur á íslandi. Deilan
snérist mikið um það hvort og að hve miklu leyti siðferðis-
hugsjónir og mannúð væm bundnar kristindóminum einum. En
það var einnig fjallað um grundvallaratriði kristinnar trúar, sem er
upprisa Jesú Krists frá dauðum. Þetta hafði greinilega verið
deiluefhi meðal íslenskra stúdenta í Kaupmannahöfh því Haraldur
skrifar á móti Guðmundi Hannessyni í Isafold 4. júní 1898:
✓
„Eg man vel eftir því enn, að þú komst einu sinni til mín í
Kaupmannahöfn, sem oftar og hélst því þá sterklega fram, að allur
kristindómurinn hlyti að standa og falla með upprisu Jesú; og það
var alveg rétt ályktað. Væri Jesús upprisinn, þá hlyti kristin-
dómurinn að vera sannleikur; væri hann eigi upprisinn, hefði hann
verið hugarburðarmaður eða blátt áfram svikari; .. þú hafðir þau
33