Bankablaðið - 01.12.1955, Blaðsíða 17

Bankablaðið - 01.12.1955, Blaðsíða 17
AÐALFUNDUR fulDriíaráös Nambandi ísl. bankamanna Aðalfundur fulltrúaráðs Sambands ís- lenzkra bankamanna var haldinn dagana 11. og 12. nóvember s. 1. í samkomusal Fé- lags starfsmanna L.andsbanka íslands. Fulltrúaráðið, sem fer með málefni S.Í.B. milli funda, er kosið til tveggja ára aí starfsmannafélögum bankanna, kemur saman til funda annað hvert ár og oftar ef þurfa þykir. Það kýs stjórn Sambands- ins til tveggja ára og gerir tillögur um og markar stefnu þess í félags og hagsmuna- málum. Formaður sambandsjns, Þórhallur Tryggvason, Búnaðarbankanum, setti l'undinn og bauð fulltrúa velkomna til starfa og lýsti fulltrúakjöri. Sambands- stjórninni hafði borizt inntökubeiðni frá nýstofnuðu félagi starfsmanna Iðnaðar- banka íslands h.f., og lagði hún til að inntökubeiðnin væri samþykkt, sem og gert var með einróma lófataki fulltrúa. Fundarstjóri var kjörinn Hjálmar Bjarna- son, Útvegsbankanum. Fundarritari var kjörinn Ólafur Tómasson, Landsbankan- um. Þá voru lögð frarn kjörbréf fulltrúa sem samþykkt voru einróma og voru mætt- ir til fundar 35 fulltrúar frá öllum sam- bandsf élögunum: Félag starfsmanna Landsbanka íslands, 15 fulltrúar. Starfsmannafélag Útvegsbanka íslands h.f., 13 fulltrúar. Starfsmannafélag Búnaðarbanka íslands, 6 fulltrúar. Starfsmannafélag Iðnaðarbanka Islands h.f., 1 fulltrúi. SKÝRSLA STJÓRNARINNAR. Þórhallur Tryggvason, flutti starfs- skýrslu stjórnarinnar og rakti starf Sam- bandsins í stórum dráttum á kjörtímabil- inu og komst hann m. a. svo að orði: „Allt fyrra árið (1953—1954) má heita að launamálin hafi ekki verið á döfinni. Allt bundið í fösturn skorðum og var ekki hugsanlegt að neinu væri unnt að þoka. í desembermánuði 1954 varð bráðabirgða samkomulag milli Bandalags starfsmanna ríkis og bæja við ríkisstjórnina um að greiða 20% grunnkaupshækkun á öll laun í stað 12—17% sem verið hafði. Var bönk- unum í áframhaldi af því skrifað og farið fram á hliðstæðar hækkanir og opinberir starfsmenn fengu. Var það auðsótt mál. Enn var af stað íarið í maímánuði s. 1. og óskað eftir breytingum á launakjörum bankastarfsmanna. Það var bein afleiðing frá verkföllunum, sem þá voru nýafstað- in. Sambandið óskaði eftir að full vísitala væri greidd á öll grunnlaun, en það náði ekki fram að ganga. Bankamenn fengu sömu lausn á þessu máli og opinberir starfsmenn. Þá hóf stjórnin umræður um lengingu á sumarleyfum bankastarfsmanna við bankana. Sumarið 1953 voru öll leyfi lengd um 3 virka daga. Við það hefur set- ið síðan. í sambandi við lausn verkfalls- ins í vor var um nokkra lengingu á orlofi verkafólks að ræða og því nokkuð tilefni til að fá frekari rýmkun á leyfum okkar, en ekki þótt ástæða til að taka þetta mál upp fyrr en á næsta ári. Þar eð orlofsár byrjar um miðjan maímánuð, svo að í BANKABLAÐIÐ 23
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Bankablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bankablaðið
https://timarit.is/publication/720

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.