Bankablaðið - 01.12.1955, Blaðsíða 23

Bankablaðið - 01.12.1955, Blaðsíða 23
í pósthúsinu, að mér bauðst staða í Lands- banka íslands. Ég kveið fyrir að skipta um, þrátt fyrir hærra kaup, en brátt fór svo, að mér fannst ég hafa himin höndum tek- ið. Launin urðu fljótt helmingi hærri en ég hafði í pósthúsinu, vinnutími reglu- legur, kl. 9—4 og mjög sjaldan aukavinna. Ekki var þá, fyrstu 4—5 árin er ég var í bankanum, farið heim í mat, menn fengu stundarkorn 15—30 mínútur til að borða bita er menn höfðu með sér, líkaði mér slíkt ágætlega, að vinna í einu lagi 7 tíma og vera svo laus. Svo komu nýjir siðir með nýjum herrum, fólk fór að fara heim í mat og hætti að vinnu síðar, var það miklu verra, vinna lengdist og óánægjan óx. Bankinn óx ákaflega á árunum um og eftir 1920. Ofvöxtur hljóp í hann. Starfs- aðferðir voru gamaldags og löngu úreltar. Þeir Emil Schon og Torfi í Islandsbanka höfðu endurbætt bókhakl eftir þörfum tímans. Það var alveg ótrúlegt hve lengi okkar bankastjórar, ágætir menn, þybbuð- ust við, að breyta starfsaðferðum og bók- haldi. Satt að segja var það bæði fávíslegt og hættulegt. Allt öryggi vantaði í mörg ár. Þetta voru erfiðir og leiðinlegir tímar. Ég fékk að sjá hvernig innheimtur voru afgreiddar í íslandsbanka og lagði til við einn bankastjóra í mínum banka að við tækjum upp sömu aðferð. Því var ekki illa tekið, en ekkert var gert. í fjögur ár vorum við Helgi Magnússon, sem nú er forstöðumaður innheimtudeildar, að reyna að fá innheimtur færðar á vél, eins og nú er gert. Ég veit ekki hve mörg ár hafa liðið frá því ég fór, þar til þessi aðferð var tek- in upp. Stjórn Landsbankans var, að mörgu leyti góð og velviljuð í garð starfs- manna, en á þeim árum, er bankinn var í þessum ofvexti vantaði cluglegan skipu- lagsstjóra, sem ekki hafði annað að gera en breyta starfsaðferðum og bókhaldi bankans, sækja fróðleik um það til er- lendra banka og láta hendur standa fram úr ermum. Þeim mönnum sem helzt var falið þetta verk, var einnig ætlað að vinna fullkomið verk á öðru sviði, og auk þess máttu þeir ekkert gera nema bera það undir bankastjóra, sem voru konserva- tiver og lágu á tillögum manna árum saman. Loks voru fengnir útlendir menn til þess að skipuleggja bókhald bankans. Ýmislegt lagaðist við komu þeirra, — t. d. var sett á stofn hin löngu sjálfsagða end- urskoðunardeild bankans. Hvernig er þetta nú? Vex bankinn ekki enn þá ört og vantar ekki enn hinn ötula skipulagsstjóra, sem eingöngu gefur sig að endurbótum á starfsaðferðum bankans? Sem stöðugt aflar sér þekkingar á nýjum aðferðum, nýjum vélum? Landsbanki ís- lands virðist nú vera orðinn stórbanki. Stöðugt nota menn meira tékkávísanir og eru þær þó alltof lítið notaðar enn þá. Þess vegna er seðlaveltan óeðlilega mikil. Það þarf að livetja menn til að nota tékka og vélar, sem skrifa tékka og eru jafnframt bókhaldsvélar. Stór fyrirtæki ættu að greiða allar útborganir í tékkum, það er bæði ör- uggara og auk þess dregur það afar mikið úr seðlaveltunni, sem allir vita að er óeðli- lega og hættulega mikil. í Bandaríkjun- um t. cl. á nær því hver maður tékkhefti. Hér ganga menn með þúsundir króna í vösunum. í slíku er ekkert öryggi. — En bankarnir kæra sig kannske ekki um fleiri tékka? Hér vantar, sem sé „Clearing" stofn- un og virðist þó löngu kominn tími til þess að hún væri til. — Þegar ég kom í bankann, snemma á ár- inu 1914 voru innan við 20 starfsmenn BANKABLAÐIÐ 29
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Bankablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bankablaðið
https://timarit.is/publication/720

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.