Bankablaðið - 01.12.1955, Page 29
ilum og varð hún Sameinuðu þjóðunum
að ómetanlegu gagni í síðari heimsstyrjöld-
inni. Reis stakk einnig upp á því að semja
um flutning á þúsund portúgölskum fjöl-
skyldum, sem verða skyldu landnemar á
hinum frjósömu liásléttum Angola. Land-
stjórinn hlýddi á, fullur hrifningar, er
fyrrverandi umsjónarmaður hans með op-
inberum framkvæmdum útlistaði fyrir hon-
um áfornt sín í þágu landsins.
En rás viðburðanna hafði orðið hrað-
stíg heima í Lissabon, meðan þessu fór
fram. Rodrigues bankastjóri og fram-
kvæmdastjóri hans höfðu haft spurnir af
dularfullri viðleitni til að kaupa upp
hlutabréf Portúgalsbanka, og þeir hófu
rannsókn. Allmargar slóðir virtust liggja
í áttina til senor Alves Reis. Þá kom til
sögunnar skyndirannsóknin á útibúi bank-
ans í Oporto, sem leiddi til þess, að föls-
uðu seðlarnir fundust.
Reis kom til Lissabon frá Angola dag-
inn el'tir og var þá tekinn fastur. En falsar-
inn var ekki af baki dottinn fyrir því. í
fangelsinu tókst honum að búa til fjöld-
ann allan af athyglisverðum skjölum, sem
bentu til þess, að Rodrigues bankastjóri
og nokkrir af framkvæmdastjórum Portú-
galsbanka væru hinir raunverulegu svika-
hrappar, og að hann, Reis, væri fórnarlamb
stjórnmálalegs samsæris. Skjöl þessi voru
svo sannfærandi, að Portúgalar skiptust í
tvær andstæðar fylkingar urn málið mán-
uðum saman, og það leiddi til þess, að
réctarrannsókn á hendur Reijs kafðist í
fimm ár. En í maí 1930 fór réttarrann-
sóknin fram, enda lá þá fyrir játning Reis.
Hann var sakfelldur og dæmdur í 20 ára
fangelsi.
Hinn örlagaríki draumur Alves Reis urn
að stofna nýlenduveldi var að engu orð-
inn. Þegar hann hafði lokið fangelsisvist
AÐALFUNDUR F.S.L.t.
Aðalfundur Félags starfsmanna Lands-
banka íslands var haldinn í fundarsal
félagsins 25. október s. 1.
Formaður félagsins, Björn Tryggvason,
flutti ársskýrslu stjórnarinnar um störfin
á liðnu starfsári. Eitt megin verkefni
stjórnarinnar var afskipti af launamálum
starfsmanna bankans, svo og önnur félags-
störf. Gjaldkeri félagsins flutti skýrslu um
fjárhag félagsins. Formaður Náms- og
kynnisfararsjóðsstjórnarinnar flutti skýrslu
um sjóðinn.
Náms- og kynnisfararsjóðnum hafði bor-
ist, eins og áður hefir verið minnst á hér
í blaðinu, höfðingleg gjöf frá Landsbanka
íslands i tilefni af afmæli bankans, og var
framkvæmdastjórn bankans færðar þakk-
ir fyrir ræktarsemi og skilning á málefn-
um félagsins af þessu tilefni. Stjórninni
var þakkað ágætt starf á árinu. Formaðut
félagsins, Björn Tryggvason, þakkaði með-
stjórnendum ágætt samstarf og félögum
góða samvinnu, en skoraðist undan að taka
við endurkjöri. Formaður var kjörinn:
Bjarni G. Magnússon og meðstjórnendur:
Jóhannes Nordal og Jón Júl. Sigurðsson.
Varastjórn var kjörin: Hannes Þorsteins-
son og Sigríður Brynjólfsdóttir. Stjórn
Náms- og kynnisfararsjóðsins var endur-
kjörin, svo og aðrir starfsmenn félagsins.
Þá voru og kjörnir 15 aðalfulltrúar og
varafulltrúar í fulltrúaráð Sambands ísl.
bankamanna.
sinni, fór hann til Brasilíu sem mótmæl-
endatrúboði, „til þess að bæta fyrir liinar
miklu misgerðir sínar,“ eins og hann orð-
aði það. Og það var hið síðasta, sem til
hans fréttist. Upp frá því hefur ekkert
frétzt af glæpamanni þeim, sem stóð fyrir
hinni dæmalausu seðlafölsun í Portúgal.
BANKABLAÐIÐ 35