Bankablaðið - 01.12.1955, Síða 39

Bankablaðið - 01.12.1955, Síða 39
Jolavaka F.S.L.I var haldin laugardaginn 17. des. s. 1. í sal- arkynnum félagsins. Vakan hóí'st með hangikjötsáti kl. 7 e. h. Heiðursgestur félagsins var Gunnar Við- ar bankastjóri og frú. Jólavökugestur fé- lagsins var séra Bjarni Jónsson vígslubisk- up og frú. Formaður félagsins bauð gesti og félags- menn velkomna og þá sérstaklega heiðurs- gesti félagsins. Séra Bjarni Jónsson vígslubiskup flutti jólahugleiðingu yfir borðum, er var af- burðavel tekið og þakkað með miklu lófa- taki. Þá ávarpaði formaður félagsins, Bjarni G. Magnússon, heiðursgest félagsins, Gunn- ar Viðar bankastjóra. Rakti hann störf bankastjórans fyrr og síðar og benti m. a. á, að ævistarí hans væru að miklu leyti bundið við Landsbankahúsið. Hann hafði gerzt starfsmaður Hagstofu íslands að loknu prófi frá Kaupmannahafnarháskóla árið 1924, en hún hefði verið til húsa x Landsbankahúsinu. Hefði liann síðan ver- ið fulltrúi í þeirri stofnun, þar til hann tók við bankastjórastörfum við Lands- bankann árið 1948. Tilkynnti í'æðumaður, að ákveðið væri að afhenda bankastjóran- um gjöf frá starfsmönnum bankans, en vegna forfalla væri ekki hægt að alhenda hana á jólavökunni, eins og ætlað hefði verið. Síðan árnaði hann bankastjóranum heilla í hinu nýja starfi. Gunnar Viðar tók því næst til máls, þakkaði hann heiður, sem sér og konu sinni væri sýndur, Jxakkaði starfsmönnum bankans sýnda vinsemd og væntanlega gjöf og árnaði þeim heilla. Undiispil undir borðum annaðist Krist- ín Ólafsdóttir, starfstúlka í endurskoðun- ardeild bankans. Karl Guðmundsson leik- ari flutti snjallan leikþátt, er var vel fagn- að af veizlugestum. Að loknu borðhaldi voru borð rudd og dans stigin fram eftir nóttu. Húsakynni félagsins voru fagurlega skreytt og sérstaka athygli vakti helgimynd er Helgi Guðmundsson, starfsmaður í end- urskoðunardeild bankans hafði teiknað. Nokkuð á annað hundrað manns sátu jólavöku þessa, þeirra á meðal Jón G. Maríasson bankastjóri og Svanbjörn Fri- mannsson aðalbókari. Var það mál allra viðstaddra, að jólavaka þessi hefði tekizt afburðavel og væri Félagi starfsmanna Landsbanka íslands til hins mesta sóma. GLEÐILEG JÓL! j ( Farsœlt nýtt ár! j ( VERZLUNIN HAMBORG j j ☆ ☆ ☆ ☆ ☆ ☆ j ( GLEÐILEG JÓL! / j Farscelt nýtt ár! / j MATARDEILDIN, HAFNARSTRÆTI ) j ☆ ☆ ☆ ☆ ☆ ☆ j j GLEÐILEG JÓL! j j Farscelt nýtt ár! j / MATARBÚÐIN, LAUGAVEG 42 ( BANKABLAÐIÐ 45

x

Bankablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bankablaðið
https://timarit.is/publication/720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.