Bankablaðið - 01.12.1955, Side 40

Bankablaðið - 01.12.1955, Side 40
SIGURtíUR ÞORSTEINSSON: Ció ClCj Cl Grjótagata! Hversu oft liafði hún ekki gengið þessa kyrrlátu götu, sem lá út úr miðbæjarskarkalanum, heim í litlu íbúð- ina vestur í bæ. Hér hafði leið hennar legið í skólann niður í miðbæ á bernsku- og unglingsárum, og hér hafði hún gengið hamingjusöm við hlið mannsins síns sál- uga svo árum skipti. Og nú, seinustu ár- in, hafði leið hennar legið um þessa bröttu en þó þægilega liljóðu götu, þar sem ekk- ert truflaði hugsanir hennar nema ein- stöku strákar í indíánaleik og þægilega fjarlægur ómur af umferð Aðalstrætis, er hún kom þreytt heim úr vinnunni á degi hverjum. Hún hafði farið niður í miðbæ á Þor- láksmessukvöld til að gera innkaup fyrir jólin. Þau innkaup voru að vísu ekki. neitt stórkostleg, því að síðan maðurinn hennar dó, höfðu peningaráðin alltaf ver- ið af skornum skammti. En þó var alltaf eitthvað jólalegt við þessa ferð hennar í bæinn, eitthvað, sem vakti eftirvæntingu eftir jólakyrrðinni, sem í vændum var ann- að kvöld. Jólaösin í verzlununum var svo gjörsamleg andstæða við kyrrðina, sem var framundan, að hún naut hvíldarinnar bet- ur fyrir bragðið í faðrni fjölskyldunnar. Hérna í Grjótagötunni hafði það verið kvöld eitt, er Sveinn var að fylgja henni heim af dansæl'ingu, að henni skrikaði fótur og hún var nærri dottin. Þá hafði hann gripið hana traustlega í sterka arma sína og kysst liana fyrsta kossinn. Þetta var upphafið að sextán ára hamingjuríkri sambúð þeirra, sem endaði svo alltof fljótt og snögglega, þegar hann varð fyrir bíl og lézt af völdum slyssins. Hversu sárt höfðu þau ekki saknað hans, hún og börnin tvö, Sveinn yngri, tíu ára, og Anna, tólf ára. Nú voru að vísu sex ár síðan, en ennþá geymdi hún vandlega með sér minning- una um hann og fölskvalausa ást til hans. Vesalings börnunum var að vísu vork- unn, þó að þau virtust vera farin að gleyma honurn, æskan var svo fljót að gleyma nú á tímum. Þó var það verst með Önnu, aumingjann, hún var farin að vera svo rnikið úti á kvöldin síðasta árið og var ekki laust við að hún kæmi stundum heim hálfdrukkin. Já, vel á minnzt. Var það ekki einmitt hér í Grjótagötunni, sem hún hafði talið sig sjá Önnu í hálfgerðum ryskingum við strák eitt kvöldið, þegar hún var á leið heim eftir að hafa unnið lengi frameftir? Jú, vissulega voru margar minningar tengdar við þessa götu. Nú var hún að komast heim að húsinu. Það var ljós í báðum gluggunum, sem sneru út að götunni, svo að Sveinn myndi vera kominn heim. Hann var sennilega að hita sér eitthvað í svanginn í eldhús- inu, en sat svo sjálfur í stofunni og las í bók. Það marraði harkalega í snjónum undir fótum hennar, þegar hún gekk upp tröpp- 46 BANKABLAÐIÐ

x

Bankablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bankablaðið
https://timarit.is/publication/720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.