Bankablaðið - 01.12.1967, Page 4
„Bankastjórn Seðlabankans hefur, að
höfðu samráði við bankaráð, að fengnu sam-
þykki ríkisstjórnarinnar, ákveðið nýtt stofn-
gengi íslenzkrar krónu gagnvart bandarísk-
um dollar og tekur það gildi frá kl. 16 í dag
24. nóvember 1967. Akvörðun þessi hefir
verið staðfest af stjórn Alþjóðagjaldeyris-
sjóðsins.
Hið nýja stofngengi er 57,00 íslenzkar
krónur hver bandarískur dollar, en það er
24,6% lækkun frá því gengi sem í gildi hef-
ur verið. Jafnframt hefur verið ákveðið að
kaupgengi dollars skuli vera 56,93 og sölu-
gengi 57,07, en kaup- og sölugengi annarra
mynta í samræmi við það. Vegna gengis-
lækkunar sterlingspunds breytist gengi krón-
unnar gagnvart því mun minna, eða um 12%
og er hið nýja miðgengi sterlingspunds
136,80. Ráðgert er að Seðlabankinn birti
fyrir opnun bankanna, mánudaginn 27. nóv-
ember n.k. nýja gengisskráningu fyrir allar
myntir er skráðar hafa verið hér á landi að
undanförnu, en þangað til helzt sú stöðvun
gjaldeyrisviðskipta er ákveðin var af Seðla-
bankanum 19- nóv. s.l."
Greinargerð fylgdi ofanritaðri tilkynningu,
sem rúmsins vegna er ekki birt og ekki
ástæða til, þar eð hún birtist í öllum blöðum
um leið og tilkynningin um gengisbreyting-
una.
Gengisfelling er alltaf mjög alvarlegt spor
til hins verra. I flestum tilfellum kemur
verst niður á launþegum í hækkuðu vöru-
verði og þjónustu. Til góða þeim er flytja
út og framleiða útflutningsverðmæti. Boð-
aðar hafa verið hliðarráðstafanir, sem vænt-
anlega eiga að létta undir með þeim, sem
harðast verða úti vegna þessara breytinga.
Þá hefir ríkisstjórnin haldið fast við að af-
nema bæri vísitölugreiðslur á laun, nema í
desembermánuði skyldi vísitölugreiðsla koma
á kaup, tæplega 4%.
Að svo stöddu verður þessi „guðsgjöf
Wilsons" ekki rædd að ráði. Eitt er víst að
búið var að gefa fyrirheit um að gengisfell-
ing væri ekki leið til lausnar að steðjandi
vandamálum. Mörgum kom á óvart, að krón-
an skyldi felld gagnvart erlendum gjaldeyri
svo mikið, sem raun varð á. Tíminn mun
leiða í ljós, hve geigvænleg áhrif þessar ráð-
stafanir hafa á kjör launþega í landinu. Það
er talað um, að nú skuli vera á valdi atvinnu-
rekenda og launþega og samningsatriði, hvort
vísitala verði greidd á laun, eða kaup hækki
í næstu framtíð. Urskurður meirihluta kjara-
dóms gefur launþegum nokkra vísbendingu,
þá sérstaklega opinberum starfsmönnum,
hver þeirra hlumr á að verða. Obreytt laun
í næsm tvö ár var úrskurður hins vísa
dóms! Ihugunarefni er hvernig þeir lægst
launuðu eiga að lifa, miðað við dagvinnuna
eina saman, þegar vöruverð og þjónusta hef-
ir hækkað um 30% a. m. k.
Margir hafa talað um gullkálf að undan-
förnu. Eitt er víst að vanda hefir nú borið
að höndum og sennilegt er að dansinn í
kringum gullkálfinn verður ekki neinn hring-
dans, sem áður.
Allir launþegar munu sammála um að
standa beri vel á verði um framvindu kjara-
mála á næsm mánuðum.
2 BANKABLAÐIÐ