Bankablaðið - 01.12.1967, Síða 12
/ hátiðarskapi i boði bankanna.
starfsmannafélaga hinna einstöku banka.
2. Álit hóps 3 er að SIB nái bezt tilgangi
sínum með aukinni kynningar- og fræðslu-
starfsemi. Brýn nauðsyn er á því að efla
skilning og áhuga bankamanna á samtök-
unum. Telur hópurinn að ráðstefna eða
námskeið eins og það sem við nú sitjum
sé spor í þá átt. Leggja beri áherzlu á að
framvegis verði slíkar ráðstefnur haldnar
og þá með sérstöku tilliti til þess að fá
yngri bankamenn til virkrar þátttöku í
starfi SÍB.
3. Hópur 3 telur fyllilega tímabært að SIB
ráði til sín starfsmann, hluta úr degi til
að byrja með. Allan daginn þegar fjár-
hagsgrundvöllur hefur verið tryggður.
Hópurinn er sammála um að hækka eigi
verulega árgjöld til sambandsins til þess
að standa straum af og gera mögulega,
þá auknu starfsemi SIB, sem hópurinn tel-
ur nauðsynlega.
1. Sem svar við fyrstu spurningu um eftir-
launasjóðina telur hópurinn sjálfsagt að
allir bankamenn og starfsmenn sparisjóða
njóti sömu lífeyrissjóðskjara. I því sam-
bandi er æskilegt að athugun fari fram á
stofnun sameiginlegs eftirlaunasjóðs
bankamanna. Yrði þar höfð sérstök hlið-
sjón hve mikill styrkur slík sjóðsstofnun
væri starfsmönnum einkabankanna, sem í
dag hafa lakari eftirlaunakjör en starfs-
menn í ríkisbönkunum.
2. Hópurinn er andvígur vísitölubindingu
lána og telur hana ekki koma til mála
meðan lán eru ekki almennt vísitölu-
bundin.
3. Hópurinn telur að ávaxta beri fé eftir-
launasjóðanna fyrst og fremst með lánum
til sjóðsfélaga, áfram eins og hingað til.
4. Hópurinn telur að ekki komi til greina
að bankamenn greiði hærra hundraðshluta
af launum í eftirlaunasjóði, þar eð bank-
arnir hafa tekið á sig ábyrgð á skuld-
bindingum sjóðanna. Slík hækkun væri
bein kjaraskerðing.
5. Hópurinn álítur ekki eðlilegt að bankarnir
yfirtaki sjóðina heldur þvert á móti, að
sjóðsfélögum beri aukin hlutdeild í stjórn
sjóðanna. T. d. þannig að stjórnarmeð-
limum væri fjölgað í fimm og tveir væru
kjörnir úr hópi sjóðsfélaga.
Að lokum vilja þátttakendur í fyrstu helg-
arráðstefnu bankamanna þakka Akureyring-
um frábærar móttökur. Húsráðanda Skíða-
hótelsins gott viðmót og ágætan aðbúnað.
Síðast en ekki sízt viljum við þakka bönkun-
um á Akureyri skemmtilegt kvöldverðarboð
undir stjórn Steingríms Bernharðssonar, Sig-
urðar Ringsted, Ragnars Steinbergssonar og
Halldórs Helgasonar.
10 BANKABLAÐIÐ