Bankablaðið - 01.12.1967, Page 15
Sumarbúðirnar í Selvík teknar í notkun
Eins og áður hefur verið minnzt á hér í
blcðinu, þá voru hafnar byggingarfram-
kvæmdir í landi starfsfólks Landsbankans,
Selvík við Alftavatn, fyrir liðlega einu ári.
Þvkir rétt að gera nokkra grein fyrir þessum
framkvæmdum. Sérstaklega vegna mjög vill-
andi greina, sem birtust í blöðum borgarinnar
nokkru eftir að búðirnar höfðu verið teknar í
notkun.
Fyrir nokkrum árum festi Félag Starfs-
manna Landsbanka Islands kaup á 10—12
hektörum lands úr landi Ondverðarness fyr-
ir austan fjall. Með það fyrir augum að hægt
væri að skapa aðstöðu fyrir starfsfólk Lands-
bankans til dvalar í sumarleyfum og öðr-
um frítímum, eftir því sem ástæður leyfðu.
Hér var að margra dómi ráðizt í stórvirki og
fjárhagsgrundvöllur æði ótryggur. Kom
mörgum spánskt fyrir á hvern hátt væri
hægt að tryggja fjárhagsgrundvöll fyrirtæk-
isins. Fyrsti vísirinn varð til á 30 ára starfs-
afmæli FSLI, en þá áskotnuðust félaginu eitt
hundrað þúsund krónur í afmælisgjöf. Lands-
banki Islands hafði um árabil boðið starfs-
fólki bankans og gestum til árlegrar skemmti-
ferðar, starfsfólki að kostnaðarlausu. Vegna
mikillar þátttöku og kostnaðar þótti ýms-
um fjármununum betur varið til annarrar
félagsstarfsemi, þar sem skemmtiferðir þess-
ar þótm á stundum skilja heldur lítið eftir.
Auk þess sem fjölmenni stofnunarinnar gerði
það að verkum, að oftast varð að fara sama
hringinn í ferðalögin. Komu fram þær radd-
ir að fara þess á leit við ráðamenn bankans,
að í stað þess að eyða miklum fjármunum
til skemmtiferðar fengi félag starfsmanna
bankans ákveðna upphæð til félagsmála-
starfs. Varð það að ráði og var ákveðið á
fundi starfsmanna að leggja ferðalögin nið-
ur um óákveðinn tíma. Verja verulegum
hluta þessarar upphæðar til uppbyggingar fé-
lagsstarfs í Selvík. Margskonar framkvæmd-
ir og undirbúningsvinna var hafin þar eystra.
Arkitekt var fenginn til að teikna mannvirki.
Mikil sjálfboðaliðsvinna var lögð þar fram
og almennur áhugi fyrir framkvæmdum. Það
var þegar ljóst að þessar framkvæmdir kost-
uðu mikla peninga og vildu allir leggjast
á eitt með að gera Selvík byggilega hið
fyrsta. Arin liðu og nokkrum fjármunum var
safnað saman, en þeir fóru allir í undirbún-
ingsvinnu þar eystra.
Landsbanki Islands átti merkisafmæli um
þessar mundir minntist sjötíu og fimm ára
afmælis bankans. Margir starfsmenn gerðu
ráð fyrir dýrlegri veizlu og miklum gleðskap
í tilefni afmælisins. Ráðamenn bankans tóku
það ráð, að í stað veizluhalda skyldi leitað
til starfsmanna og þeim heitin aðstoð til að
„Hús i smiðum— Sjálfboðaliðar að starfi.
BANKABLAÐIÐ 13