Bankablaðið - 01.12.1967, Qupperneq 16
Sjálfboðaliðar við störf.
byggja upp menningarstarf á vegum félags-
ins. Var niðurstaðan sú, að Landsbankinn og
FSLI tóku höndum saman um byggingar-
framkvæmdir eystra. Starfsmennirnir áttu
landið, en vantaði fjármagn til að hefja
byggingar þar eystra. Bankinn taldi ekki
æskilegt að efna til stórrar afmælisveizlu.
Því var það ráð tekið af hálfu bankans að
ljá máls á því að byggja nokkur lítil timbur-
hús til afnota fyrir starfsfólk bankans og
fjölskyldur, gegn framlagi frá starfsfólkinu,
með afnot af landsréttindum, sjálfboðaliðs-
vinnu og framlagi starfsmannafélagsins, eins
og ástæður leyfðu hverju sinni.
Arangurinn var sá að keypt voru frá Finn-
landi 10 timburhús ca. 45 ferm að stærð.
Nánar tiltekið þrjú lítil herbergi með tveim
svefnplássum og stórri stofu með eldhúskrók.
Lítil hreinlætisherbergi er og með vaski. Hús
þessi voru reist fyrir ári síðan og komust
allvel frá vetrinum. Með vorinu var haldið
áfram byggingarframkvæmdum. Rafmagn
var leitt í húsin, vatnsveita og klóak að
hverju húsi. Þá voru húsin búin nauðsynleg-
ustu tækjum og húsbúnaði. Margir unnu
þarna eystra og gekk á ýmsu með fram-
kvæmdir. Otaldar eru vinnustundir starfs-
manna Landsbankans og óþarft er að leiða
getum að áhyggjum trúnaðarmanna bank-
ans og starfsfólksins, hvort að unnt myndi
verða að taka húsin í notkun. I byrjun júlí
komu fyrstu dvalargestirnir og frá 8. júlí
til 9. september nutu um 290 starfsmenn
bankans og fjölskyldur þeirra þeirrar ánægju
að eiga vikudvöl í Selvík. Oþarft er hér að
lýsa þeirri ánægju, sem þeir urðu aðnjótandi,
sem dvöldu í Selvík. Þar er allt sem einn
stað má prýða. Sérlega fallegt umhverfi og
allur aðbúnaður hinn bezti. Máske verður
tækifæri til að rita síðar um þá hlið málsins.
Fullyrði ég að fátt hefur glatt hug starfs-
manna meir, en Selvík eins og hún kom okk-
ur fyrir augu, þegar við komum í hlað þar
til vikudvalar. Forráðamönnum Landsbank-
ans og Félags starfsmanna Landsbanka Is-
lands ber að þakka sérstaklega fyrir stórhug
og framsýni, án þess að hægt sé að saka um
/burð á nokkru sviði. Mörg verkefni eru enn
óleyst eystra. Mikil vinna framundan. Margir
munu hugsa gott til glóðarinnar á sumri
komanda, að taka þar til hendi til fegrunar
og gleði fyrir þá, sem þar eiga að njóta dýrð-
legrar dvalar á komandi árum.
14 BANKABLAÐIÐ