Bankablaðið - 01.12.1967, Qupperneq 19
Stokkhólm, okkur sýnt bankasafnið, og skoð-
uðum við svo aðalstöðvar Svenska Bank-
mannaförbundet við Kungsgatan nr. 2.
Hafa þeir tvær heilar hæðir til umráða og
allt hið glæsilegasta, enda starfsemi um-
fangsmikil, því SBfm, telur tæplega nítján
þúsund meðlimi. Um kvöldið var svo leik-
húskvöld, Káta ekkjan með Jarl Kulle á fjöl-
unum hjá Oscarsteater, en áður vorum við
sex gestirnir boðnir heim til forsvarsmanns-
ins Hilding Sjöberg og konu hans, en hann
er flestum að góðu kunnur, sem um banka-
mál fjalla hérlendis. Daginn eftir var svo
enn farið með okkur gestina sex í sýningar-
ferð um Stokkhólm, skoðað hið fræga ráð-
hús og farið uppí sjónvarpsturninn nýja, sem
var opnaður á síðastliðnu sumri. Var og
snæddur hádegisverður í skóla þeim er
Svenska Handelsbanken á og rekur fyrir
starfsfólk sitt og stendur á Lidingö. Er þetta
menningarmiðstöð hin mesta og starfræktur
skóli á vetrum en leigður út starfsfólkinu til
sumardvalar fyrir það og gesti þess. Standa
byggingar ákaflega fallega, enda náttúrufeg-
urð með eindæmum á eynni, en aðbúnaður
allur mjög nýtízkulegur.
Svo leið vikan, föstudagurinn mest í fyrir-
lestra um vinnutíma, sumarfrí og auðvitað
launakerfi. Um kvöldið var svo haldið
kveðjuhóf; var það fagnaður mikill með góð-
um mat og miklu gríni og lögðum við marg-
nefndir gestir fram okkar skerf til skemmti-
haldsins. Hálf var dapurt þegar komið var
að kveðjustund um hádegi laugardagsins. Við
höfðum kynnzt og að góðu einu. Margt hafði
skemmtilegt skeð og að mörgu hlegið og
kannske sjáumst við ekki aftur, en við bít-
um á jaxlinn. Talað var um að skrifa, og
svo verður mót aftur í Finnlandi já og
Reykjavík; kannske hittumst við þá.
Bergendal, þar sem mótið fór fram, er í
eigu T.C.O. (Tjánstemánnens Centralorgan-
isation), en það er samsteypa ýmissa félaga-
sambanda sem telur yfir hálfa milljón með-
lima og SBfm. er aðili að. Sjálfur skólinn er
gamall herragarður ,en byggðir hafa verið
þar nemendabústaðir, sem rúma um 60
manns, og í smíðum er önnur slík álma og
öllu afar vel fyrir komið með samkomu- og
tómstundastofum, böðum og gufu. Stendur
skólinn við Edsviken í Sollentuna, hverfi í
geysilega fallegu umhverfi norður af Stokk-
hólmi, svo sem fyrr er sagt.
Er mikill fengur að slíkum námskeiðum
og verður maður margs vísari. Sjálf hefi ég
um árabil unnið við bankastörf í Stokkhólmi,
svo ýmislegt kom mér kunnuglega fyrir sjón-
ir, en engu að síður er öllum hollt að kynnast
nýju fólki og læra meira.
Skipulag og undirbúningur mótsins var til
sóma fyrir þá, er að stóðu, en forsvarsmaður
mótsins var, eins og fyrr segir Hilding Sjö-
berg, og naut hann mikilla vinsælda, enda
ætíð reiðubúinn til leiðbeininga og aðstoðar
og mun lengi í heiðri hafður. Vil ég því færa
mínar beztu þakkir til hans og Svenska Bank-
mannaförbundet í heild fyrir þetta tækifæri,
sem mér gafst.
BANKABLAÐIÐ 17