Bankablaðið - 01.12.1967, Side 25
Búnaðarbankinn í HveragerÖi
Búnaðarbanki íslands opnaði nýtt útibú
hinn 11. ágúst að Breiðumörk 19 í Hvera-
gerði. Af því tilefni var efnt til hófs fyrir
heimamenn og fleiri gesti.
A meðal gestanna var landbúnaðarráð-
herra Ingólfur Jónsson, Magnús Jónsson fjár-
málaráðherra, bankastjórn, bankaráð og ýms-
ir forystumenn í héraðinu.
Aðalræðuna flutti Stefán Hilmarsson,
bankastjóri og fjallaði m. a. um landbúnað-
arframleiðslu Arnessýslu og hið mikilvæga
framlag Búnaðarbankans og sjóða hans til
uppbyggingar landbúnaðarins í sýslunni.
Stofnun útibúsins væri í beinu samræmi við
lög bankans, en í þeim segir, að tilgangur
bankans sé að styðja landbúnaðinn og greiða
fyrir fjármálaviðskiptum þeirra, er smnda
landbúnaðarframleiðslu.
Sagði bankastjórinn, að Arnessýsla væri sú
sýsla landsins, er Búnaðarbankinn hefði veitt
mestan fjölda stofnlána og sömuleiðis væri
lánsfjárhæðin hærri en til nokkurrar ann-
arrar sýslu.
Baldur Eyþórsson, varaformaður banka-
ráðs Búnaðarbankans, stýrði hófinu, sem
haldið var í tilefni opnunar útibúsins, og
tóku margir gestir til máls og lém í ljós
ánægju sína með stofnun útibúsins og árn-
uðu bankanum allra heilla á komandi árum.
Meðal ræðumanna voru Ingólfur Jónsson
landbúnaðarráðherra, Jón Pálmason formað-
ur bankaráðs Búnaðarbankans, Þorsteinn Sig-
urðsson formaður Búnaðarfélags Islands o. fl.
en að lokum talaði hinn nýji bankaútibús-
stjóri Tryggvi Pémrsson.
Tryggvi Pémrsson, sem nú hefur verið ráð-
inn bankaútibússtjóri Búnaðarbankans í
Hveragerði, er fæddur 25. nóvember árið
1909 á Eyrarbakka. Faðir Tryggva var Pét-
ur Guðmundsson skólastjóri á Eyrarbakka og
kona hans Elísabet Guðmundsdóttir, þjóð-
kunn kona og skáldmælt vel. Tryggvi lauk
Tryggvi Pétursson banka-
útibússtjóri á skrifstofu
sinni i Búnaðarbankaúti-
búinu i Hveragerði.
BANKABLAÐIÐ 23