Bankablaðið - 01.12.1967, Qupperneq 34
anum, sem hvatti mjög eindregið til að
þingið sameinaðist um tillögu allsherjar-
nefndar. Þorsteinn Egilsson, formaður FSLI,
tók þá til máls og kvaðst draga til baka til-
lögur fulltrúa Landsbankamanna, en í stað
hennar lagði hann fram svohljóðandi til-
lögu: „Þing SIB samþykkir framkomnar til-
lögur samvinnunefndar bankanna frá 4. 4.
1967 um laugardagslokun og að teknar verði
upp viðræður um samræmingu á afgreiðslu-
tíma og vinnustundum í þessum stofnunum
og þeim viðræðum verði lokið 30. sept. 1967.
I sambandi við þá samræmingu verði tek-
ið fullt tillit til þeirrar auknu vinnu banka-
manna, sem skapast af því að opnunartími
bankanna er færður fram um 30 mínútur.
Náist ekki samkomulag fyrir 30. sept.
hefjist vinna og vinnu ljúki í þessum stofn-
unum á sama tíma og var fyrir 15. maí."
Þá var þeim tilmælum beint til fundar-
stjóra að gefa fundarhlé svo hægt væri að
ræða tillöguna í hópi fulltrúa hvers starfs-
mannafélags fyrir sig. Að loknu fundarhléi
hófust umræður um tillöguna og kom í 1 jós,
að engin samstaða var um þessa tillögu
frekar en álit allsherjarnefndar. Margar ræð-
ur voru fluttar og sitt sýndist hverjum, en
þó mun sanni nær að skoðanaágreiningur var
ekki mikill. Osk hafði komið um, að leyni-
leg atkvæðagreiðsla færi fram um tillöguna
og samþykkti þingið tillöguna með 29 atkv.
gegn 7. Fundarstjóri úrskurðaði að tillaga
Þorsteins Egilssonar væri breytingartillaga
við álit Allsherjarnefndar og afgreidd sam-
kvæmt því. Atkvæði um tillöguna féllu
þannig, að hún var samþykkt með 34 at-
kvæðum gegn 23.
Stjúrnarkjör.
Uppstillinganefnd hafði setið á rökstólum
og lagði fram þessar uppástungur:
Formaður: Hannes Pálsson, og var hann
kjörinn með lófataki.
Meðstjórnendur: Sigurður Orn Einarsson,
Bjarni G. Magnússon, Adolf Björnsson og
Ólafur S Ottósson og voru þeir einnig kjörn-
ir með lófataki.
Vara/itjórn: Þorsteinn Egilsson, Jóhahn
Ingjaldsson, Jón Bergmann og Þorsteinn
Friðriksson.
Endurskoðendur: Ólafur Gunnlaugsson og
Halldór Jónsson voru kjörnir einróma.
Hinn nýkjörni formaður, Hannes Pálsson,
ávarpaði þingið, þakkaði það traust er sér
væri sýnt með kjöri þessu og kvaðst vona að
stjórnin yrði samtaka í því að vinna að bætt-
um kjörum bankamanna. Þakkaði fundar-
stjóra og riturum ágæt störf. Fundarstjóri
þakkaði þingfulltrúum góða fundarsetu og
störf og sagði þinginu slitið.
Á fyrsta fundi hinnar nýkjörnu stjórnar
undir forsæti formanns, Hannesar Pálssonar,
skipti stjórnin með sér verkum:
Varaformaður: Sigurður Örn Einarsson
Ritari: Adolf Björnsson.
Gjaldkeri: Ólafur Ottósson.
Meðstjórnandi: Bjarni G. Magnússon.
GLEÐILEG JÓL!
Farsælt nýtt ár!
SVEINN HELGASON H.F.
GLEÐILEG JÓL!
Farsæli nýtt ai'
j. þorlÁksson & nOkðmann h.f.
32 BANKABLAÐIÐ